Amharar: Þjóðarbrot í Eþíópíu

Amharar (amharíska: አማራ, amara, ge'ez: አምሐራ) eru þjóðarbrot í Eþíópíu sem búa aðallega í Amhara-héraði landsins og tala amharísku.

Amharar eru um 20 milljónir talsins og eru um 20 % Eþíópíumanna. Þeir voru taldir næststærsti þjóðflokkurinn innan landsins í manntali árið 2007 á eftir Orómóum.

Amharar: Söguágrip, Samfélag, Trúarbrögð
Lebna Dengel, nəgusä nägäst (Eþíópíukeisari), meðlimur Salómonsættar.

Söguágrip

Amharar: Söguágrip, Samfélag, Trúarbrögð 
Menelik 2., konungur Shoa.

Amharaþjóðin hefur sögulega byggt norðurhluta, miðhluta og vesturhluta Eþíópíu. Flestir Amharar eru bændur og raunar eru Amharar taldir meðal fyrstu landbúnaðarþjóða ríkisins. Talið er að þeir hafi hafið landbúnaðarsögu sína með rækt á korni í heimahéruðum sínum, meðal annars á hvingresi og nígerurtarfræum.

Sumar heimildir gefa í skyn að Amharar hafi flust til Eþíópíu frá Jemen (þar sem þá voru konungsríkin Saba og Himjar) og frá Konungsríkinu Aksúm og sest að í héraðinu Sayint, sem síðar fékk nafnið Wollo (eftir ættbálki Orómóa sem flutti þangað á 16. og 17. öld). Þessi héruð hafa sögulega verið talin hluti af heimalandi Amhara.

Amharar (áður yfirleitt kallaðir „Abissiníumenn“ í vestrænum heimildum) eru í dag næststærsti þjóðflokkur í Eþíópíu á eftir Orómóum.

Héraðið Amhar var sögulega staðsett í nútímahéraðinu Wollo (Bete Amhara). Á tíma lénskerfisins samanstóð svæðið sem í dag kallast Amhara úr nokkrum héröðum sem nutu sjálfstæðis í flestum málum, þar á meðal Gondar, Gojjam, Wollo, Lasta, Shoa, Semien, Angot og Fetegar.

Fyrir rúmum 2.000 árum voru hefðbundnar heimaslóðir Amhara á hásléttunum í miðhluta Eþíópíu. Fyrstu konungsríki þeirra voru fremur einangruð frá umheiminum vegna fjöllótts landslagsins og brattra gljúfra. Rekja má trúarleg umsvif kristna Konungsríkisins Aksúm í Amhara-héraðinu aftur til 8. aldar, en þá var Istifanos-klaustrið byggt á bökkum Haikvatnsins.

Önnur mannvirki og minnisvarðar benda til þess að Aksúmítar hafi sest að víðar í Amharahéraðinu, meðal annars steinstytta af ljóni sem finna má um tíu kílómetra sunnan við borgina Kombolcha, og talið er að hafi verið gerð á 3. öld eða jafnvel fyrir tíma Aksúmríkisins. Árið 1998 fundust brot af leirvösum í kringum grafhýsi í Atatiya í suðurhluta Wollo, í Habru suðaustan við Haik og norðaustan við Ancharo (Chiqa Beret). Myndskreytingarnar á þeim sýna ótvírætt fram á að menning Aksúmíta náði til suðurhluta Amharahéraðsins og út fyrir Angot. Eldri mannvirki voru lögð í rúst á valdatíð drottningarinnar Gudit á 10. öld og á 16. öld í innrásum múslima undir stjórn imamsins Ahmads ibn Ibrahim al-Ghazi, þar sem innrásarmenn létu greipar sópa um Amhara og Angot.

Fyrstu rituðu heimildirnar um Amharaþjóðina eru frá byrjun 12. aldar, frá valdatíð Zagwe-ættarinnar. Þá var ritað um að Amharar ættu í átökum við Werji-þjóðina árið 1129. Werji-þjóðin bjó á sléttum í austurhluta Shoa og því hefur þegar verið litið á Amhara sem sérstakan þjóðflokk í byrjun 12. aldar.

Þegar Zagwe-ættarveldið leið undir lok tók Salómonsætt við stjórn eþíópíska keisaradæmisins með valdatöku Amharans Yekuno Amlak árið 1270. Valdamiðstöð hans var í Amharahéraði og Shoa. Amharar ríktu þaðan af yfir Eþíópíu allt til loka valdatíðar Haile Selassie árið 1974 (að undanskyldri keisaratíð Tígrans Jóhannesar 4.) og urðu helsta valdastétt landsins. Á þessum tíma þöndu amharískir stjórnendur verulega út landamæri ríkisins, juku við alþjóðlegan hróður Eþíópíu og létu reisa fjölda konunglegra minnisvarða og höfuðborga, meðal annars Tegulet, Debre Berhan, Barara (sem staðsett er í Entoto, þar sem höfuðborgin Addis Ababa er nú), Gonder og Magdela. Þær þrjár fyrrnefndu voru staðsettar í Shoa.

Í byrjun 15. aldar reyndu keisarar Eþíópíu að koma á stjórnmálasambandi við konungsríki Evrópu í fyrsta sinn frá tíma Aksúmríkisins. Bréf frá Hinriki 4. Englandskonungi til Eþíópíukeisara hafa varðveist. Árið 1428 sendi keisarinn Ísak 1. tvo sendiboða til Alfonsar 5. Aragóníukonungs. Alfons sendi sendiboða til Eþíópíu en þeir komu aldrei á áfangastað.

Fyrsta varanlega samband Eþíópíu við Evrópuríki hófst árið 1508 við Portúgal á valdatíð Davíðs 2. Eþíópíukeisara, sem hafði þá nýlega tekið við krúnunni af föður sínum. Ríkið átti þá í stríði gegn innrásarmönnum Soldánsdæmisins Adal undir stjórn imamsins Ahmads ibn Ibrahim al-Ghazi. Portúgalir sendu vopn og 400 hermenn til að hjálpa Eþíópíumönnum í stríðinu, sem gerði syni Davíðs, Gelawdewos, kleift að sigra innrásarmennina. Þetta stríð Eþíópíu og Adal er eitt fyrsta dæmið um leppstríð í heimshlutanum þar sem Portúgal og Tyrkjaveldi studdu stríðsaðila hvort gegn öðrum.

Samfélag

Í hefðbundinni samfélagsskipan Amhara og annarra afrísk-asískra þjóða úr heimshlutanum eru til fjórar grunnstéttir. Samkvæmt bandarískra Eþíópíufræðingnum Donald N. Levine eru þessar stéttir aðalsstéttin, undirstéttin, iðnstéttin og þrælar.

Þrælar sátu neðst í samfélagsstiganum og komu aðallega úr heiðnum þjóðarbrotum Nílota. Á amharísku gengu þeir einnig undir nafninu barja (sem merkir „þræll“). Þeir voru gjarnan hnepptir í þrældóm eftir ránsferðir í jaðarhéruð í suðurhluta Eþíópíu. Stríðsfangar voru einnig gjarnan hnepptir í þrældóm en þó var staða þeirra og verkin sem þeir voru látnir vinna ekki um allt sambærileg við innlendu þrælastéttina.

Þrælahald í Eþíópíu var formlega bannað með lögum á fjórða áratugi 20. aldar en gamlir þrælar og afkomendur þeirra héldu í reynd áfram að vinna svipuð störf og áttu áfram sambærilega stöðu í amharískri samfélagsskipan.

Stéttskipting Amhara byggist á eftirfarandi meginreglum:

  1. innbyrðis hjónaböndum;
  2. stöðu innan stigveldisins;
  3. takmörkunum á leyfilegum borðfélögum við máltíðir;
  4. hugmyndum um „óhreinkun“;
  5. hugmyndum um hefðbundin störf sérhverrar stéttar;
  6. arfgengum stéttaraðildum.

Flestir fræðimenn eru á sama máli um að veruleg samfélagshöft séu á milli Amhara og annarra eþíópískra þjóðflokka í atvinnu- og giftingarmálum. Sumir fræðimenn líta þó á þetta sem efnahagslega stéttskiptingu en aðrir, þar á meðal sagnfræðingurinn David Todd, telja þetta greinilegt dæmi um menningarlegt stéttakerfi.

Trúarbrögð

Flestir Amharar eru kristnir og eþíópíska rétttrúnaðarkirkjan gegnir mikilvægu hlutverki í menningu þeirra.

Samkvæmt manntali ársins 2007 eru 82,5% íbúa Amharahéraðsins meðlimir í eþíópísku rétttrúnaðarkirkjunni; 17,2% eru múslimar (aðallega í Wollo-héraðinu), 0,2% voru mótmælendur og 0,5 gyðingar.

Eþíópíska rétttrúnaðarkirkjan viðheldur nánu sambandi við koptísku rétttrúnaðarkirkjuna í Alexandríu. Páskar og þrettándinn eru mikilvægustu hátíðirnar og einkennast af hátíðarhöldum, helgiathöfnum og danssýningum. Jafnramt er fastað á mörgum helgidögum ársins þar sem aðeins má neyta grænmetis og fisks.

Hjónabönd eru gjarnan skipulögð af fjölskyldunni og karlar kvænast gjarnan undir lok táningsára sinna eða stuttu eftir að hafa náð þrítugsaldri. Samkvæmt venju hafa stúlkur gjarnan gifst í kringum fjórtán ára aldur, en á 20. öld lét keisarastjórnin hækka lágmarksgiftingaraldur upp í átján ár. Þegar kirkjan hefur vígt hjón í hjónaband er skilnaður illa séður. Fjölskylda hvors brúðhjónanna fyrir sig heldur yfirleitt sína brúðkaupsveislu eftir að giftingin hefur farið fram.

Þegar barn fæðist heimsækir prestur fjölskylduna til að blessa það. Móðirin og barnið dvelja heima í 40 daga eftir fæðinguna. Farið er með drengi í kirkju til skírnar eftir 40 daga, en með stúlkur eftir 80 daga.

Tilvísanir

Tags:

Amharar SöguágripAmharar SamfélagAmharar TrúarbrögðAmharar TilvísanirAmhararAmharískaEþíópíaOrómóarÞjóðarbrot

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

SamfélagsmiðillEtanólHvalfjörðurÞjóðhátíð í VestmannaeyjumKínaPáll ÓskarÞorriSöngvakeppnin 2024Niklas LuhmannDróniPálmi GunnarssonBaldur ÞórhallssonÁsynjurJakobsvegurinnMarie AntoinetteBerserkjasveppurStykkishólmurIðnbyltinginLögin úr söngleiknum Deleríum BúbónisBoðorðin tíu24. aprílMaríuhöfn (Hálsnesi)EignarfornafnÞingbundin konungsstjórnListi yfir kirkjur á ÍslandiEinar Sigurðsson í EydölumKalínNifteindJóhann JóhannssonXHTMLLeviathanTjaldGrænlandVaranleg gagnaskipanHeiðarbyggðinSeinni heimsstyrjöldinHvalveiðarGrikklandAuschwitzNafliKnattspyrnufélagið FramJarðfræði ÍslandsRaunvextirJarðskjálftar á ÍslandiSvissLeifur heppniPatricia HearstGylfi Þór SigurðssonListi yfir skammstafanir í íslenskuSundlaugar og laugar á ÍslandiLuciano PavarottiXXX RottweilerhundarLeikurRagnarökÁrmann Jakobssonmoew8Hrafn GunnlaugssonFrumeindLátra-BjörgStefán HilmarssonJurtÞýskalandÍsland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaListi yfir íslenskar stafsetningar- og málfræðivillurFiskurDýrin í HálsaskógiKaupmannahöfnReykjanesbærFjárhættuspilVilhjálmur Vilhjálmsson (söngvari)Íslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaLandráðTjaldurBenito MussoliniKristján EldjárnSagan um ÍsfólkiðABBAÆðarfugl🡆 More