Alþingiskosningar 1937

Alþingiskosningar 1937 voru kosningar til Alþingis sem haldnar voru 20.

júní 1937. Á kjörskrá voru 67.195 en kosningaþátttaka var 87,9%. Niðurstöður kosninganna urðu þær að Framsóknarflokkurinn bætti við sig fjórum þingmönnum en Alþýðuflokkurinn tapaði tveimur. Stjórn hinna vinnandi stétta hélt því velli en staða Alþýðuflokksins innan hennar var mun veikari. Kommúnistaflokkurinn fékk þrjá þingmenn í fyrsta og eina skiptið í sögu sinni en flokkurinn sameinaðist hluta Alþýðuflokks og myndaði Sameiningarflokk alþýðu - Sósíalistaflokkinn ári síðar sem fékk sex þingmenn í fyrri kosningunum 1942 og tíu í þeim síðari.

Framsóknarmenn bættu við sig fjórum þingmönnum þrátt fyrir að auka fylgi sitt ekki nema um tæp 3% og Sjálfstæðismenn misstu þrjú þingsæti út á 1,6% lækkun í fylgi. Meginskýringin á þessum miklu sveiflum var sú að ekki var notast við hlutfallskosningar í tvímenningskjördæmum og gátu Framsóknarmenn hirt bæði sætin með litlum meirihluta. Jók þetta enn á þrýstinginn á að breyta á ný kosningakerfinu sem tekið hafði verið í notkun í kosningunum þremur árum fyrr.

Niðurstöður

Niðurstöður kosninganna voru þessar:

Flokkur Formaður Atkvæði % +/- Þingmenn Breyting % þingm.
Alþýðuflokkurinn Jón Baldvinsson 11.084,5 18,8 -3,9 8 (3) -2 16,3
Bændaflokkurinn Þorsteinn Briem 3.578,5 6,1 -0,3 2 (1) -1 4,1
Alþingiskosningar 1937  Framsóknarflokkurinn Jónas Jónsson 14.556,5 24,6 +2,8 19 +4 38,8
Alþingiskosningar 1937  Sjálfstæðisflokkurinn Ólafur Thors 24.132 40,8 -1,6 17 (5) -3 34,7
Kommúnistaflokkurinn Brynjólfur Bjarnason 4.932,5 8,4 +2,4 3 (2) +3 6,1
Þjóðernissinnar 118 0,2 -0,5 0
Aðrir og utan flokka 13 0 0 -1
Alls 59.096 49 (11)

Tengt efni

Kosningasaga


Fyrir:
Alþingiskosningar 1934
Alþingiskosningar Eftir:
Alþingiskosningar 1942 (júlí)

Tags:

AlþingiKosningarSameiningarflokkur alþýðu - SósíalistaflokkurinnStjórn hinna vinnandi stétta

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

StuðmennJeff Who?Listi yfir morð á Íslandi frá 1874–1969Gunnar Smári EgilssonEinar Þorsteinsson (f. 1978)KlóeðlaForsetningGarðar Thor CortesInnrás Rússa í Úkraínu 2022–MílanóVilhjálmur Vilhjálmsson (söngvari)KópavogurNoregurVallhumallBesta handrit á Kvikmyndahátíðinni í CannesMenntaskólinn í ReykjavíkBjörgólfur Thor BjörgólfssonSvartahafAkureyriSkaftáreldarMarie AntoinetteÚkraínaSnæfellsnesSjónvarpiðTyrklandÖskjuhlíðÞykkvibærTímabeltiKári SölmundarsonEgill EðvarðssonHávamálÞÍslandsbankiAlfræðiritKalda stríðiðForsetakosningar á Íslandi 2012Alþingiskosningar 2016NæturvaktinUppköstHákarlÞóra FriðriksdóttirÍslenskt mannanafnTikTokFuglHarvey WeinsteinListi yfir íslensk póstnúmerÍtalíaJóhann Berg GuðmundssonSoffía JakobsdóttirAlþingiskosningar 2021Bergþór PálssonHandknattleiksfélag KópavogsÁstþór MagnússonWikiRaufarhöfnMagnús EiríkssonFrakklandLakagígarLögbundnir frídagar á ÍslandiMargföldunIndónesíaListi yfir íslensk kvikmyndahúsGuðmundar- og GeirfinnsmáliðListi yfir fylki og yfirráðasvæði Bandaríkjanna eftir stærðAftökur á ÍslandiHljómskálagarðurinnMagnús Kjartansson (tónlistarmaður)Knattspyrnufélagið HaukarKírúndíKnattspyrnufélagið ValurSteinunn Ólína ÞorsteinsdóttirEgyptalandHallgrímskirkja🡆 More