Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er útihátíð sem haldin er árlega í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum um Verslunarmannahelgina.
Hátíðin heitir eftir þjóðhátíðinni á þúsund ára afmæli Íslandsbyggðar 2. ágúst 1874 þegar slíkar þjóðhátíðir voru haldnar víða um land. Frá 1916 hefur hátíðin verið haldin árlega í ágústmánuði þar til 2020 og 2021 vegna heimsfaraldursins. Í upphafi 20. aldar var hátíðin fyrst og fremst íþróttahátíð þar sem keppt var í kappróðrum, glímu og fleiri íþróttum, líkt og tíðkaðist þá á þjóðhátíðum víða um land.
Fyrirrennarar þjóðhátíðar í Herjólfsdal eru kaupstefnur Vestmannaeyinga og erlendra skipa sem haldnar voru þar áður fyrr, hersýningar Heimavarnarliðs Vestmannaeyja sem haldnar voru í dalnum eftir miðja 19. öld og veislur sem Pétur Bryde kaupmaður hélt starfsfólki sínu í Herjólfsdal eftir miðja 19. öld. Pétur kostaði meðal annars endurnýjun vegarins inn í dalinn árið 1859.
Orðið Brekkusöngur var ekki til í íslensku máli fyrr en árið 1977 þegar Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður bjó til orðið og hélt hinn fyrsta Brekkusöng. Var hann haldinn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í Herjólfsdal. Í kjölfarið varð Brekkusöngur að árlegum viðburði á lokakvöldi hátíðarinnar.
Ár | Söngvari |
---|---|
1977-2002 | Árni Johnsen |
2003 | Róbert Marshall |
2004-2012 | Árni Johnsen |
2011-2012 | Jarl Sigurgeirsson og Sæþór Vídó |
2013-2019 | Ingólfur Þórarinsson |
2021- | Magnús Kjartan Eyjólfsson |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.