Fyrstu útsendingar á stafrænu sjónvarpi á Íslandi hófust árið 1998.
Nú er verið að leggja hliðrænt sjónvarp af með því að slökkva á hliðrænum sjónvarpssendum í áföngum. Slökkt var á fyrstu sendunum þann 2. september 2013. Áætlað er að slökkt verði á öllum hliðrænum sjónvarpssendum fyrir 31. desember 2014.
RÚV og Vodafone eru að vinna saman til að setja upp nýtt stafrænt dreifingarkerfi. Vodafone rekur þetta kerfi í 15 ár frá fyrstu lokunum á hliðrænum sendingum. Til að ná útsendingunum þarf tæki sem getur skilið staðalinn DVB-T eða DVB-T2. Nýja kerfið mun flytja fjórar sjónvarpsrásir í háskerpu. RÚV mun reka tvær þessara rása og Vodafone hinar tvær. Gert er ráð fyrir að stafrænar útsendingar nái til 99,8% Íslendinga um loftnet.
Þann 5. nóvember 2002 skipaði þáverandi samgönguráðherra Sturla Böðvarsson starfshóp til að gera tillögu um innleiðingu á stafrænu sjónvarpi á Íslandi. Þá var sett skilyrði um að stafrænar útsendingar næðu til 99,9% landsmanna. Árið 2003 gaf Samgönguráðuneytið út skýrslu um stöðu stafræns sjónvarps á Íslandi og hvernig skyldi fara að innleiðingu þess. Í henni var mælt með því að sameiginlegt stafrænt dreifingarkerfi yrði stofnað og að tryggt væri að allir aðilar hefðu jafnan aðgang að því.
Í skýrslunni voru ýmsir valkostir skoðaðir og ákveðið var að hagkvæmasta leiðin til að dreifa stafrænu sjónvarpi var með jarðbundnu útsendingarkerfi byggt á staðlinum DVB-T.
Verið er að slökkva á hliðrænum útsendingum í áföngum. Tímasetningar lokana er svona:
Dagsetning | Svæði |
---|---|
1. september 2013 | Hlutar Norðurlands eystra og Vestfirða |
1. febrúar 2014 | Hlutar Austfirða |
31. mars 2014 | Vesturland, hlutar Austurlands |
30. júní 2014 | Suðurland, Vestmannaeyjar |
30. september 2014 | Akureyri og hlutar Norðurlands eystra |
31. desember 2014 | Höfuðborgarsvæðið, Reykjanesskagi og Vestfirðir |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Stafrænt sjónvarp á Íslandi, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.