Vinsamlegast ekki fjarlægja } af greinum sem hafa verið listaðar sem slíkar.
Ef kemur á daginn að greinin er það þá erum við komnir í þá stöðu að geta ekki notað allar síðari breytingar á henni þar sem þær byggja á upprunalega textanum.
Að flokka greinar sem möguleg höfundaréttarbrot er ætlað til þess að ræða möguleikann á þeim, sem við vorum einmitt byrjaðir á og finnst mér ekki gott hvernig þú ákveður að grípa fram í fyrir ef svo má segja og ákveða sjálfur að greinin sé það ekki. Sértstaklega þar sem litið er aðstæður þær sem hún var búinn til undir, en enginn vafi leikur á því að hún er beinafrituð af vefsíðu og að við vitum ekki hvort sá sem setti hana hér hafði leyfi til þess. -- Ævar Arnfjörð Bjarmason 12:22, 4 sep 2004 (UTC)
Þessi eina lína þarna er líka kolvitlaus, Opinn hugbúnaður er ekki hugbúnaður þar sem frumkóði forritsins er aðgengilegur notendum hans með einhverjum hætti., ég hef ekkert á móti stubbum, en ég er hinsvegar á þeirri skoðun að stubbur þar sem eina lína greinarinnar er bandvitlaus sé minna virði en ekkert þar sem hann gefur rangar upplýsingar, ég hef þar með eytt þessu (aftur), sett útgáfuna á spjallið þangað til ég eða einhver nennir að skrifa eina línu sem er þá rétt.
Cheers eins og bretinn segir;) -- Ævar Arnfjörð Bjarmason 18:39, 19 nóv 2004 (UTC)
Ég hef verið að nota – fyrir lokuð bil eins og 1999 – 2000 (bil sem vitað er hvar enda) og — fyrir opin bil t.d. fyrir fólk sem ekki er dautt enn. -- Ævar Arnfjörð Bjarmason 09:03, 15 des 2004 (UTC)
...og sælir... gæti verið að við höfum verið kollegar á sínum tíma, um 2001, hjá SALT? --Smári McCarthy 03:34, 20 mar 2005 (UTC)
Jú, það er rétt! Ég vinn reyndar ennþá hjá afsprengi þess fyrirtækis VYRE. --Sindri 03:39, 20 mar 2005 (UTC)
Jæja, þú ert möppudýr núna! Er það ekki fínt tækifæri til að snúa aftur og byrja að breyta á fullu? --Bjarki 01:55, 11 ágúst 2007 (UTC)
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Notandaspjall:Sindri, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.