Lúðrasveitin Svanur (oft nefnd Svanurinn) er íslensk lúðrasveit sem var stofnuð þann 16.
nóvember">16. nóvember 1930 og hefur starfað óslitið síðan. 1962 kom Svanurinn sér upp búningum sem eru einkenni Svansins enn í dag. Búningarnir eru bláir að lit og fyrirmyndin frá Bandaríkjunum, en allir saumaðir á Íslandi. Árið 1970, á fjörutíu ára afmæli Svansins, spilaði Svanurinn inn á fyrstu innlendu steríóplötuna á Íslandi. Fálkinn gaf hana út, en um upptökuna sá Pétur Steingrímsson. Þetta var fjögurra laga plata og vakti mikla athygli, og þrátt fyrir þær frumstæðu aðstæður sem platan var tekin upp við er útkoman merkilega góð allavega er spilamenskan bara nokkuð góð, þetta voru eitt af þeim góðu og mörgum hlutum sem Jón Sigurðsson gerði fyrir Svaninn.
Svanurinn gaf út sína aðra plötu 1980. Á A-hlið lék Svanurinn og Big-band Svansins á B-hlið. Eingöngu voru leikin lög eftir Árna Björnsson. Sæbjörn Jónsson stórnaði.
Lúðrasveitin Svanur er fastagestur á lúðrasveitarhátíðinni í Bad Orb. Sveitin hefur farið þangað á tveggja ára fresti um árabil.
Árið 2015 stóð Svanurinn fyrir hópfjármögnun fyrir nýja búninga og náði setti marki. Í framhaldi af því komu nýjir búningar sem frumsýndir voru 17. júní 2016. Búningana hannaði Ragna Fróðadóttir og eru þeir frábrugðnir gömlu búningunum að því leyti að jakkinn er lokaður að framan. Gömlu búningarnir voru með opinn jakka að ofan. Þurfti því ávallt að vera í hvítri skyrtu með bindi undir jakkanum.
Svanurinn hefur ávallt verið í fremstu röð lúðrasveita á Íslandi og er núverandi vinningshafi Monthlemmsins mikla - farandgrips sem keppt er um árlega frá árinu 2018. Monthlemmurinn mikli veitir viðkomandi vinningssveit ótakmarkaðan montrétt í eitt ár - þar til keppnin fer fram að nýju. Fyrsta keppnin fór fram 18. ágúst 2018 á Menningarnótt í Reykjavík.
Lúðrasveitin Svanur er með netsíðuna Svanur.is
Stjórnendur Svansins hafa verið:
Heiðursfélagar Svansins eru:
Lúðrasveitir í SÍL |
---|
Lúðrasveit Akureyrar | Lúðrasveit Akraness | Lúðrasveit Hafnarfjarðar | Lúðrasveit Hornafjarðar | Lúðrasveit Húsavíkur | Lúðrasveit Reykjavíkur | Lúðrasveit Selfoss | Lúðrasveit Stykkishólms | Lúðrasveitin Svanur | Lúðrasveit verkalýðsins | Lúðrasveit Vestmannaeyja | Lúðrasveit Þorlákshafnar |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Lúðrasveitin Svanur, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.