Frjálslyndi flokkurinn var íslenskur stjórnmálaflokkur sem var stofnaður í Reykjavík árið 1973 að undirlagi Bjarna Guðnasonar sem áður hafði klofið sig frá Samtökum frjálslyndra og vinstri manna.
Flokkurinn hafði sömu stefnuskrá og Samtökin höfðu samþykkt á stofnfundi sínum 1969. Við klofninginn missti fyrsta ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar meirihluta í neðri deild Alþingis.
Frjálslyndi flokkurinn bauð fram í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík 1974 en fékk engan mann kjörinn. Hann bauð ekki fram í alþingiskosningum sama ár.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Frjálslyndi flokkurinn (2), which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.