Dýjafjallshnjúkur

Dýjafjallshnjúkur er hæsti hnjúkur í fjallahringnum kring um Svarfaðardal og Skíðadal og jafnframt hæsta fjall á Tröllaskaga norðan Öxnadals, 1445 m hátt.

Hnjúkurinn er nr. 28 á lista yfir hæstu tinda á Íslandi og er einn af þeim fáu tindum utan jökla á landinu sem ná 1400 m hæð. Dýjafjallið, sem hnjúkurinn heitir eftir, er allt fjallið sem liggur að Klængshólsdal að austan og nær yfir Kvarnárdalsöxl, Kvarnárdalshnjúk og Dýjafjallshnjúk. Það er að mestu hlaðið upp úr basaltlögum með setlögum inn á milli. Hnjúkurinn er flatur að ofan eins og margir háhnjúkar á þessum slóðum. Tiltölulega gott er að ganga á hnjúkinn en fjallgangan tekur þó drjúgan tíma. Um ýmsar leiðir er að ræða bæði úr Hörgárdal og Skíðadal en algengasta gönguleiðin er upp frá Klængshóli í Skíðadal. Þar er gengið upp hlíðina og farið inn á Klængshólsdal. Á miðjum dal er síðan haldið á fjallið sjálft upp bratta en torfærulausa hlíð. Af Dýjafjallshnjúk er mikil útsýn yfir Tröllaskaga og Eyjafjörð en einnig sést allt vestur á Strandir og austur um Þingeyjarsýslur og Ódáðahraun. Dýjafjallshnjúkur er að mestu gerður úr blágrýtislögum en á milli þeirra eru víða allþykk setlög. Bergið er 9-10 milljón ára gamalt og frá míósen tímabilinu á tertíer.

Dýjafjallshnjúkur
Dýjafjall. Dýjafjallshnjúkur fyrir miðju, til vinstri við hann er Kvarnárdalshnjúkur (1424 m), til hægri er Tungudalsskarð og Kirkjufjall (1378 m
Dýjafjallshnjúkur
Dýjafjallshnjúkur og jökullinn í Illagilsdal
Dýjafjallshnjúkur
Kvarnárdalshnjúkur og Kvarnárjökull

Heimildir

    Bjarni E. Guðleifsson 1990. Óbyggðaleiðir umhverfis Þorvaldsdal og Hörgárdal. Árbók FÍ 1990 bls. 93-121
    Bjarni E. Guðleifsson 2011. Svarfaðardalsfjöll. Genginn fjallahringurinn umhverfis Svarfaðardal. Bókaútgáfan Hólar, 191 bls.

Tags:

BlágrýtiEyjafjörðurHörgárdalurKlængshóllListi yfir tinda á Íslandi eftir hæðMíósenSetSkíðadalurSvarfaðardalurTertíerTröllaskagiÓdáðahraunÖxnadalur

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

PáskarLundiBúdapestKnattspyrnufélagið VíkingurSönn íslensk sakamálLandspítaliMiðjarðarhafiðKári StefánssonGuðrún PétursdóttirRaufarhöfnRétttrúnaðarkirkjanÞorskastríðinÖskjuhlíðSíliHannes Bjarnason (1971)MosfellsbærStefán Karl StefánssonSveitarstjórnarkosningar á Íslandi 2022Listi yfir íslensk kvikmyndahúsSpánnEvrópaEgill ÓlafssonKarlakórinn HeklaParísÍtalíaHerðubreiðSvartahafLaufey Lín JónsdóttirSverrir Þór SverrissonEinar BenediktssonJólasveinarnirFáni FæreyjaMarylandEl NiñoLungnabólgaVallhumallÍsland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaMelkorka MýrkjartansdóttirEgill Skalla-GrímssonPragÚkraínaLánasjóður íslenskra námsmannaMagnús EiríkssonStuðmennEnglar alheimsins (kvikmynd)Guðrún AspelundMegindlegar rannsóknirIstanbúlSjávarföllHrafna-Flóki VilgerðarsonJónas HallgrímssonÝlirÖspGaldurJeff Who?Santi CazorlaNafnhátturJökullNeskaupstaðurHarvey WeinsteinLaxdæla sagaKristján 7.ÓslóFyrsti maíPylsaKúlaStefán MániHéðinn SteingrímssonAlþingiHákarlLýðræðiVladímír PútínHættir sagna í íslenskuBaldurÓlympíuleikarnirÍþróttafélag Hafnarfjarðar🡆 More