Björn Th. Björnsson: íslenskur listfræðingur og rithöfundur (1922-2007)

Björn Th.

(Theodor) Björnsson (3. september 192225. ágúst 2007) var íslenskur listfræðingur og rithöfundur. Hann hefur skrifað bækur um íslenska listasögu og sögulegar skáldsögur.

Björn fæddist í Reykjavík, foreldrar hans voru Baldvin Björnsson gullsmiður og Martha Clara Björnsson, fædd Bemme, húsmóðir. Björn útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1943 en þar gegndi hann embætti forseta Framtíðarinnar, nemendafélags MR, árið 1941. Því næst nam hann listasögu við Edinborgarháskóla 1943-44, var í háskóla í London 1944-46 og svo Kaupmannahafnarháskóla 1946-49.

Að námi loknu kenndi Björn við Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Kennaraskólann og Háskóla Íslands. Hann starfaði að undirbúningi að stofnun Ríkissjónvarpsins á árunum 1958-1964 og að þáttagerð eftir stofnun þess. Hann ritstýrði tímaritinu Birtingi á tímabilinu 1958-1963. Virkisvetur, fyrsta skáldsaga Björns, hlaut fyrstu verðlaun í skáldsögusamkeppni Menntamálaráðs árið 1959.

Ritverk

Skáldsögur

  • 1959 - Virkisvetur
  • 1975 - Haustskip
  • 1993 - Falsarinn
  • 1997 - Hraunfólkið: Saga úr Bláskógum
  • 1997 - Solka
  • 1998 - Brotasaga
  • 2000 - Byltingarbörn
  • 2001 - Haustlauf
  • 2004 - Glóið þið gullturnar
  • 2007 - Jarlhettur: sagan um Þórurnar tvær á Þingvelli

Leikrit:

  • 1991 - Ljón í síðbuxum, leikur í 12 atriðum með lokaþætti.
  • 1992 - Dunganon leikrit í 12 atriðum með lokaþætti.

Annað:

  • 1954 - Íslenzka teiknibókin í Árnasafni
  • 1954 - Íslenzkt gullsmíði, afmælisrit: Skartgripaverzlun Jóns Sigmundssonar.
  • 1955 - Brotasilfur
  • 1956 - Myndhöggvarinn Ásmundur Sveinsson
  • 1961 - Á Íslendingaslóðum í Kaupmannahöfn
  • 1964 - Íslenzk myndlist á 19. og 20. öld, I
  • 1969 - Reykjavík
  • 1973 - Íslenzk myndlist á 19. og 20. öld, II
  • 1973 - Aldateikn
  • 1982 - Seld norðurljós, Björn Th. Björnsson ræðir við fjórtán fornvini Einars Benediktssonar.
  • 1984 - Þingvellir - staðir og leiðir
  • 1988 - Minningarmörk í Hólavallagarði
  • 1996 - Úr plógfari Gefjunar: tólf Íslendingaþættir


Fyrirrennari:
Viggó Maack
Forseti Framtíðarinnar
(19411941)
Eftirmaður:
Skúli Guðmundsson


Tilvísanir

Tenglar

Tags:

1922200725. ágúst3. septemberListfræðiRithöfundurSöguleg skáldsagaÍsland

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

BoðhátturMoldóvaGrænlandListi yfir grunnskóla á ÍslandiBorgSnæfellsbærListi yfir íslenskar hljómsveitirFaðir vorBenjamín dúfaListi yfir risaeðlurSebrahesturÞýskalandRio de JaneiroStórar tölurSteinþór SigurðssonSuður-AmeríkaMaríuerlaKróatíaÍslandsbankiÍslenska karlalandsliðið í knattspyrnuCarles PuigdemontÓðinnSúðavíkurhreppurBelgíaXXX RottweilerhundarSvartfuglarÍslandsklukkanEgils sagaBergþórGarðaríkiKólumbíaFinnland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaFranskur bolabíturPjakkurSúrnun sjávarÁsatrúarfélagiðKommúnismiMedinaSkyrbjúgurSamheitaorðabókStuðlabandiðNúmeraplataHvíta-RússlandArnaldur IndriðasonElísabet 2. BretadrottningÚsbekistanKárahnjúkavirkjunHesturSuðurskautslandiðJón Kalman StefánssonAriana GrandeFranska byltinginBreiðholtSjálfbær þróunJohn Stuart MillNýja-SjálandGervigreindHornstrandirFornaldarheimspekiEldborg (Hnappadal)BlóðbergValkyrjaVestmannaeyjagöngLeikariÍslenska stafrófiðFiann PaulGiordano BrunoMerkúr (reikistjarna)SkákKynlaus æxlunVigdís FinnbogadóttirDvergreikistjarnaLeikfangasagaBolludagurMosfellsbærSikileyAdeleFlosi Ólafsson🡆 More