Wham!

Wham! var ensk hljómsveit sem starfaði frá 1981 til 1986.

Hún var stofnuð af skólafélögunum George Michael og Andrew Ridgeley.

Wham!
Wham! árið 1985: George Michael (vinstri) og Andrew Ridgeley (hægri)
Wham! árið 1985: George Michael (vinstri) og Andrew Ridgeley (hægri)
Upplýsingar
UppruniBushey, Hertfordshire, England
Ár1981–1986
Stefnur
Útgefandi
Fyrri meðlimir
Vefsíða
  • georgemichael.com
  • andrewridgeley.com

Michael og Ridgeley hittust í skóla í Bushey nálægt Watford í Hertfordshire. Þeir stofnuðu fyrst ska-bandið The Executive með skólafélögum en þegar það leystist upp stofnuðu þeir Wham!. Árið 1982 gáfu þeir fyrst út lagið „Wham Rap! (Enjoy What You Do)“ en það lag náði ekki vinsældum. Hins vegar náði lagið „Young Guns (Go for It!)“ vinsældum síðar á árinu, meðal annars þökk sé framkomu í Top of the Pops tónlistarþætti BBC.

Árið 1983 var sveitin farin að keppast um hylli hlustenda við hljómsveitir Duran Duran og Culture Club. Árið 1984 varð smellurinn „Wake Me Up Before You Go-Go“ í fyrsta sæti víða um heim og smáskífan Last Christmas/Everything She Wants varð sölumesta smáskífa sem hafði lent í öðru sæti í Bretlandi (varð á eftir Band-Aid laginu „Do They Know It's Christmas?“ sem George Michael tók þátt í). Wham! varð fyrsta vestræna popphljómsveitin til að spila í Kína árið 1985 þar sem 15.000 áhorfendur sáu hljómsveitina.

Lagið „Careless Whisper“ var runnið undan rifjum George Michael og það varð orðið ljósara að Michael hafði stolið senunni meira en Ridgeley. Hann vildi hverfa frá ungmennapoppinu og gera alvörugefnari tónlist. Wham! hætti árið 1986 á góðum nótum milli þeirra félaga og síðustu tónleikar þeirra voru á Wembley-leikvanginum í júní það ár.

Micheal hélt áfram með sólóferill þar til hann lést árið 2016. Ridgely reyndi fyrir sér í Formúlu 1 kappaskstri í Mónakó og sem lagahöfundur og leikari í Los Angeles. Hann náði þó ekki árangri á þeim sviðum.

Breiðskífur

  • Fantastic (1983)
  • Make It Big (1984)
  • The Final (1986) (safnskífa)
  • Music from the Edge of Heaven (1986) (safnskífa: Norður-Ameríka og Japan)

Tilvísanir

Heimild

Fyrirmynd greinarinnar var „Wham!“ á ensku útgáfu Wiki. Sótt 27. des 2016.

Tags:

Andrew RidgeleyGeorge Michael

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

John F. KennedyAdolf HitlerGunnar HelgasonKírúndíJakobsvegurinnHeiðlóaHættir sagna í íslenskuViðskiptablaðiðIndónesíaVigdís FinnbogadóttirFrosinnJón Páll SigmarssonKarlsbrúin (Prag)Fimleikafélag HafnarfjarðarBergþór PálssonVarmasmiðurVífilsstaðirEinar Þorsteinsson (f. 1978)Listi yfir íslenska sjónvarpsþættiEivør PálsdóttirAlþingiskosningar 2009LatibærVilhjálmur Vilhjálmsson (söngvari)Englar alheimsins (kvikmynd)Tjörn í SvarfaðardalKnattspyrnufélag ReykjavíkurVopnafjarðarhreppurJafndægurHákarlReykjanesbærMörsugurTenerífeMílanóSamfylkinginHryggsúlaRagnar loðbrókÞýskalandBesta handrit á Kvikmyndahátíðinni í CannesSólstöðurBubbi MorthensLandvætturSagnorðÞingvallavatnDýrin í HálsaskógiCarles PuigdemontÍslandKötturStari (fugl)SeldalurVorVestmannaeyjarFreyjaEvrópaEvrópusambandiðKjartan Ólafsson (Laxdælu)Ísland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaJón GnarrKristófer KólumbusMoskvufylkiSpilverk þjóðannaÚrvalsdeild karla í körfuknattleikSverrir Þór SverrissonLofsöngurVikivakiHljómsveitin Ljósbrá (plata)Indriði EinarssonLaxdæla sagaTímabeltiBenito MussoliniSagan af DimmalimmListi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999SólmánuðurBaldur Már ArngrímssonParísHalla Hrund LogadóttirLokiTikTokJörundur hundadagakonungur🡆 More