Stjórnsýsluvald er sá hluti ríkisvaldsins þar sem ákvarðað er um réttindi og skyldur tiltekinna aðila samkvæmt lögum.
Þær ákvarðanir eru kallaðar stjórnsýsluákvarðanir. Þegar ákvarðanir eru teknar án þess að um sé að ræða tiltekna aðila kallast þær stjórnvaldsákvarðanir. Ákveðnir aðilar fari með stjórnsýsluvald þegar þeir hafa lagaheimild til að taka slíkar ákvarðanir. Í lögum er tilgreint hvaða aðilar geti tekið hvaða ákvarðanir og eru í flestum tilfellum ríkisaðilar, sveitarstjórnir eða embættismenn, eða aðilar sem framangreindir aðilar hafa veitt umboð til slíkra verka.
Stjórnsýsluákvarðanir þurfa að uppfylla ýmis skilyrði samkvæmt lögum og þeim réttarreglum sem gilda í viðkomandi ríki og vísað er í, kallaðar stjórnsýslureglur, en þær eru byggðar á stjórnsýslurétti.
Venjulega er stjórnsýsluvald veitt tiltekinni stofnun og fer þá forstjóri hennar með stjórnsýsluvaldið. Hann framselur það í mörgum tilvikum til tiltekinna starfsmanna svo þeir geti tekið stjórnsýsluákvarðanir í umboði hans. Stjórnsýsluvald getur lent í höndum einstaklinga eða einkaaðila ef þeir þurfa að taka slíkar ákvarðanir við framkvæmd lagalegra skylda af hálfu hins opinbera.
Stjórnsýsluvald má finna í öllum þrem greinum ríkisvaldsins en er mest áberandi hjá framkvæmdavaldinu en er þá falið stofnunum, nefndum og embættismönnum. Innan löggjafarþinga má finna einkenni stjórnsýsluvalds þegar kemur að rekstri þeirra og sömuleiðis hjá dómstólum þó ekki sé alltaf kveðið á um það með berum orðum. Á Íslandi fer Hæstiréttur til dæmis með æðsta stjórnsýsluvald þegar kemur að afgreiðslu stjórnsýslukæra vegna framkvæmda forsetakosninga og annarra kosninga þar sem Hæstarétti er sérstaklega falið það vald.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Stjórnsýsluvald, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.