Hraundrangi

Hraundrangi er 1075 metra hár fjallstindur á Drangafjalli í Öxnadal.

Hann var lengi talinn ókleifur, en 5. ágúst 1956 var hann klifinn af tveimur Íslendingum og einum Bandaríkjamanni, sem voru Sigurður Waage, Finnur Eyjólfsson og Nicholas Clinch. Sagnir höfðu verið um að kista full af gulli væri geymdu upp á tindinum, en sú saga reyndist ekki á rökum reist að sögn klifurmannanna.

Hraundrangi

Hraundrangi er ekki síst þekktur vegna ljóðs Jónasar Hallgrímssonar, Ferðalok, sem hefst á línunum „Ástarstjörnu / yfir Hraundranga / skýla næturský.“

Nafnið er oft haft í fleirtölu, Hraundrangar, en það er rangt, enda er dranginn aðeins einn. Drangafjall skilur að Öxnadal og Hörgárdal og Hraundrangi blasir einnig við úr innanverðum Hörgárdal en þeim megin er hann yfirleitt aðeins nefndur Drangi.

Heimildir

  • Þorsteinn Jósepsson og Steindór Steindórsson (1981). Landið þitt Ísland (H-K). Örn og Örlygur hf. bls. 127-128
  • „Hraundrangi en ekki Hraundrangar. Dagur, 25. október 1995“.

Sjá einnig

Myndir

Hraundrangi 
Hraundrangi


Hraundrangi   Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

19565. ágústFjallÖxnadalur

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Listi yfir persónur í NjáluHallgrímur PéturssonBloggListi yfir íslensk mannanöfnJón GnarrThe Moody BluesLandspítaliGæsalappirÓlafur Ragnar GrímssonHernám ÍslandsLaufey Lín JónsdóttirDóri DNAAriel HenryHávamálListi yfir íslensk skáld og rithöfundaHarvey WeinsteinMerik TadrosForsetakosningar á Íslandi 2004WyomingKötturEfnaformúlaDaði Freyr PéturssonIngólfur ArnarsonEfnafræðiHallgerður HöskuldsdóttirBenito MussoliniMaineSólstöðurSauðféAlmenna persónuverndarreglugerðin25. aprílVorBubbi Morthensg5c8yIKEAÓsló1. maíReykjanesbærHalla TómasdóttirSagan af DimmalimmHrefnaLatibærSveppirSvartfuglarWolfgang Amadeus MozartStella í orlofiKvikmyndahátíðin í CannesKorpúlfsstaðirKnattspyrnufélagið HaukarUmmálListi yfir markahæstu og leikjahæstu knattspyrnumennMaðurVladímír PútínKarlsbrúin (Prag)ÓðinnHvítasunnudagurLómagnúpurSauðárkrókurÁslaug Arna SigurbjörnsdóttirSýndareinkanetKóngsbænadagurHnísaÍslenskaEnglar alheimsins (kvikmynd)Eiríkur blóðöxDýrin í HálsaskógiVerðbréfTjörn í SvarfaðardalEl NiñoReykjavíkMáfarListi yfir lönd og útliggjandi yfirráðasvæði eftir stærðKeflavík, íþrótta- og ungmennafélag🡆 More