Actavis er vörumerki fyrirtækisins Actavis, sem nú er í erlendri eigu en var upphaflega íslenskt fyrirtæki.
Actavis Group | |
Rekstrarform | Einkafyrirtæki |
---|---|
Slagorð | Hagur í heilsu |
Stofnað | 1956 |
Staðsetning | Hafnarfjörður, Íslandi |
Lykilpersónur | Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður, Claudio Albrecht forstjóri og Guðbjörg Edda Eggertsdóttir forstjóri á Íslandi |
Starfsemi | Framleiðsla samheitalyfja (á íslandi og erlendis); auk fleiri vara eftir sameiningu við erlend fyrirtæki |
Starfsfólk | 10.000 |
Vefsíða | www.actavis.is www.actavis.com |
Íslenska fyrirtækið Actavis Group h.f., var eitt stærsta samheitalyfjafyrirtækis heims, eftir kaup á erlendum samheitafyrirtækjum, og var þá enn með aðalstöðvar á Íslandi og var skráð á aðallista Kauphallar Íslands þar til í júlí 2007, undir stuttnefninu ACT.
Eftir kaup á fyrirtækinu af erlendum aðilum var nafninu breytt ítrekað, því það var ítrekað sameinað öðrum lyfjafyrirtækjum, meðal annars við sameiningu við fyrirtækið sem framleiðir Botox (sem er ekki samheitalyf). Síðar var nafni fyrirtækisins aftur breytt í Actavis, og hluti þess seldur til Teva, sem er núverandi eigandi undirfyrirtækisins Actavis.
Actavis á Íslandi framleiðir og selur lyf og lyfjahugvit bæði innanlands sem utan en sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu samheitalyfja. Fyrirtækið var stofnað sem innkaupasamband lyfsala árið 1956 og hét þá Pharmaco. Hjá fyrirtækinu starfa nú í heildina um 10.000 manns, en fyrirtækið er með starfsemi í meira en 40 löndum.
Árið 2000 fjárfesti Björgólfur Thor Björgólfsson í gegnum Samson í félaginu Pharmaco og árið 2002 keypti Samson einnig lyfjafyrirtækið Delta og sameinaði það Pharmaco undir nafninu Actavis. Það fyrirtækið var svo í eigu Novators, fyrirtækis hans. Þýski stórbankinn Deutsche Bank þurfti að afskrifa 407 milljónir evra, eða um 66 milljarða íslenskra króna, vegna Actavis árið 2011.
Í nóvember 2012, keypti erlenda fyrirtæðið Watson Actavis Group sem var þá orðið mjög stórt á alþóðavísu en eftir sameininguna varð þriðja stærsta samheitafyrirtæki í heimi.
Erlendar heimasíður Actavis
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Actavis, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.