Kynþáttahyggja er sú hugmynd að mannkynið skiptist í nokkra kynþætti.
Þeirri hugmynd fylgir oft alhæfing um einkenni tiltekinna kynþátta og sú hugmynd að munur eða meintur munur á kynþáttum endurspegli verðleika fólks og ráði getu þess. Kynþáttahyggja felur oft í sér þá hugmynd að einn kynþáttur sé öðrum fremri. Á fyrri hluta 20. aldar fylgdu kynþáttahyggju hugmyndir um kynbætur á mannfólki.
Á 4. áratug 20. aldar lagði hreyfing nasista á Íslandi áherslu á kynþáttahyggju, rétt eins og hliðstæðar hreyfingar annars staðar.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Kynþáttahyggja, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.