Harry Potter: Bresk bókasería eftir J.K. Rowling

Harry Potter er söguhetja úr bókum eftir enska rithöfundinn J.K.

Rowling. Bækurnar fjalla um ungan galdramann, Harry Potter, og vini hans Ron Weasley og Hermione Granger, sem öll stunda nám við Hogwarts skóla galdra og seiða. Aðalsöguþráðurinn gengur út á tilraunir illa galdramannsins Voldemorts til að ná völdum í heimi galdramanna og baráttu Harry Potter og vina hans gegn því. Sögurnar um Harry Potter gerast í hliðarveröld þar sem venjulegt fólk (sem galdramenn nefna mugga í bókunum) veit ekki af galdraheiminum sem er eins konar huliðsheimur allt í kring um hinn hefðbundna heim. Æðstu völd í galdraheiminum eru í höndum Galdramálaráðuneytis.

Harry Potter: Bækurnar, Tengt efni, Tilvísanir
Harry Potter-lógóið.
Harry Potter: Bækurnar, Tengt efni, Tilvísanir
Hogwarts endurgerður í skemmtigarði í Orlandó í Flórída.

Bækurnar um Harry Potter komu fyrst út hjá bókaútgáfunni Bloomsbury í Bretlandi og Scholastic Press í Bandaríkjunum og komu út frá 1997 til 2007. Sögurnar blanda saman þáttum úr mörgum hefðbundum bókmenntagreinum, eins og fantasíum, þroskasögum, spennusögum, breskum skólasögum og ástarsögum. Rowling hefur sagt að meginviðfangsefni bókanna sé dauðinn.

Upprunalegu sjö bækurnar voru kvikmyndaðar í átta hlutum af Warner Bros. og sýndar frá 2001 til 2011. Í kjölfarið hafa fylgt fleiri bækur og kvikmyndir sem gerast í sama söguheimi og tengjast upprunalegu bókunum á ýmsan hátt. Árið 2016 var heildarvirði Harry Potter-sérleyfisins metið á 25 milljarða dala. Harry Potter er eitt tekjuhæsta miðlunarsérleyfi sögunnar. Skemmtigarðar undir nafninu The Wizarding World of Harry Potter hafa verið settir upp í Bandaríkjunum, Kína og Japan.

Bækurnar

Harry Potter: Bækurnar, Tengt efni, Tilvísanir 
Aðdáendur bíða eftir að sala á rússneskri þýðingu síðustu bókarinnar hefjist í Moskvu árið 2007.

Harry Potter er bókasería sem inniheldur sjö bækur, skrifaðar af breska höfundinum J.K. Rowling. Bækurnar fjalla um ungan, munaðarlausan dreng, sem elst upp hjá hræðilegu frændfólki sínu, Dursley-fjölskyldunni og ævintýri hans í galdraheiminum, ásamt Ron Weasley, Hermione Granger og fleirum. Á ellefta aldursári fær hann bréf frá Hogwarts, skóla galdra og seiða, þar sem útskýrt er fyrir honum að hann sé galdramaður og megi því sækja skóla í Hogwarts. Bækurnar snúast aðallega um baráttu hans við vonda galdramanninn Voldemort, sem drap foreldra Harrys þegar hann stjórnaði galdraheiminum og var að reyna að losna við „muggana“ (fólk sem getur ekki galdrað) og galdramenn af muggættum. Búnar hafa verið til myndir, tölvuleikir og ýmislegt fleira.

Allar sjö bækurnar hafa verið kvikmyndaðar.

Fyrsta bókin, Harry Potter og viskusteinninn, var gefin út árið 1997 og heitir á frummálinu Harry Potter and the Philosopher's Stone. Síðan þá hafa vinsældir galdrastráksins aukist til muna. Í júní 2008 höfðu verið seldar yfir 400 milljónir eintaka af bókunum og þær þýddar á 67 tungumál og síðustu fjórar bækurnar hafa slegið heimsmet í því að seljast hraðast, allra tíma.

Bækurnar

Einnig eru til aukabækur sem nefnast:

  • Fantastic Beasts And Where To Find Them (2001)
  • Quidditch Through The Ages (2001)
  • The Tales of Beedle the Bard (2007)

Kvikmyndir

Aðrar kvikmyndir sem gerast í sama söguheimi eru:

  • Fantastic Beasts and Where to Find Them (kvikmynd) (2016)
  • Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald (2018)

Leikrit

  • Harry Potter og bölvun barnsins (2016)

Tengt efni

Tilvísanir

Tenglar

Tags:

Harry Potter BækurnarHarry Potter Tengt efniHarry Potter TilvísanirHarry Potter TenglarHarry PotterHogwartsJoanne Kathleen RowlingMuggar

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

2024Manuela SáenzCSSSiglufjörðurÍslenski þjóðhátíðardagurinnBuster KeatonGuðni Th. JóhannessonSprengigos1874HagfræðiÞriðjudagurBikarkeppni KKÍ (karlar)Jón ArasonIngólfur ArnarsonHugo ChávezHafnirGeorgíaÍslandsklukkanHryðjuverkaárásirnar í Brussel í mars 2016HeklaPálmiMyndrænt viðmótKváradagurHanna Katrín FriðrikssonAþenaHeidi StrandGlobal Positioning SystemListi yfir morð á Íslandi frá 1874–1969KnattspyrnaJiddískaTorahMoskvaSíðasta kvöldmáltíðinVísindafélag ÍslendingaKnattspyrnufélag Reykjavíkur27. marsKaleoKramatorsk1963Listi yfir landsnúmerSkjaldarmerki ÍslandsElly VilhjálmsRúrik HaraldssonMorð á ÍslandiArnljóturUppstigningardagur2015SérhljóðEmmsjé GautiSönn íslensk sakamálBílarLandvætturVölsunga sagaVatnsdeigHassan RouhaniForsetakosningar á Íslandi 2020Eldgosin við Sundhnúksgíga 2023–2024Brest (Frakklandi)Laufey Lín JónsdóttirVorEigið féÍsraelKróatíaGerlarSeinni heimsstyrjöldinÍslendinga sagaEldgosið við Fagradalsfjall 2021EiginfjárhlutfallSkaftáreldarNorræna tímataliðÞágufall🡆 More