Katy Perry: Bandarísk söngkona og lagahöfundur

Katheryn Elizabeth Hudson (f.

25. október 1984), betur þekkt undir nafninu Katy Perry, er bandarísk söngkona og lagahöfundur. Perry fæddist í Santa Barbara í Kaliforníu og voru foreldrar hennar prestar. Hún ólst upp við að hlusta á gospeltónlist og söng í kirkju sem barn. Eftir að hafa klárað GED-próf fyrsta árið í menntaskóla (e. „highschool“) byrjaði hún að vinna að tónlistarferlinum. Hún gaf út sjálftitlaða gospel-plötu árið 2001 undir nafninu Katy Hudson en platan náði ekki vinsældum. Hún tók upp plötu og kláraði meirihlutann af sólóplötu á árunum 2004–2005 en hvorug platan kom út.

Katy Perry
Katy Perry: Æska, Ferill, Útgefið efni
Perry árið 2023
Fædd
Katheryn Elizabeth Hudson

25. október 1984 (1984-10-25) (39 ára)
Önnur nöfn
  • Katy Hudson
  • Katheryn Perry
Störf
  • Söngvari
  • lagahöfundur
Ár virk2001–í dag
Maki
Börn1
Tónlistarferill
Stefnur
Hljóðfæri
  • Rödd
  • gítar
Útgefandi
Vefsíðakatyperry.com
Undirskrift
Katy Perry: Æska, Ferill, Útgefið efni

Eftir að hafa skrifað undir samning við Capitol Records árið 2007 fékk hún sér sviðsnafnið Katy Perry og gaf út fyrstu stafrænu smáskífuna sína, „Ur So Gay“, í nóvember sama ár og fékk lagið mikla athygli. Hún varð fræg þegar hún gaf út aðra smáskífuna sína, „I Kissed a Girl“ árið 2008 sem toppaði marga bandaríska vinsældalista. Fyrsta hefðbundna sólóplata Perry, One of the Boys, kom út sama ár og var í 33. sæti yfir best seldu plötur heims árið 2008. Platan fór í platínusölu; „I Kissed a Girl“ og önnur smáskífan, „Hot n Cold“, fóru báðar í margfalda platínusölu. Hún varð þekkt fyrir að klæðast óhefðbundnum kjólum, blandi af litum og eldri tísku. Næsta platan hennar, Teenage Dream, kom út í ágúst 2010.

Perry átti í löngu ástarsambandi við Travis McCoy og var gift leikaranum Russell Brand í eitt ár. Þau skildu árið 2012. Frá árinu 2016 hefur hún verið í sambandi með enska leikaranum Orlando Bloom.

Æska

Katy Perry fæddist 25. október 1984 sem Katheryn Elizabeth Hudson í Santa Barbara, Kaliforníu. Hún er annað barn foreldra sinna en þau eru bæði prestar. Katy á eldri systur og yngri bróður. Móðir hennar hetir Mary Hudson (áður Perry) og ólst hún upp í Suður-Kaliforníu. Frænka og frændi Katy í móðurættina voru handritshöfundurinn Eleanor Perry og leikstjórinn Frank Perry. Perry er af portúgölskum og þýskum ættum.

Perry tengdist prestsstörfum foreldra sinna náið. Hún söng í kirkjunni þeirra þegar hún var 9-17 ára. Hún ólst upp við að hlusta á gospeltónlist og var ekki leyft að hlusta á það sem móðir hennar kallaði „veraldlega tónlist“. Perry gekk í kristilega skóla og fór í kristnar sumarbúðir. Sem barn lærði hún að dansa í afþreyingarbúðum í Santa Barbara. Kennararnir voru vel menntaðir og byrjaði hún á að læra swing, Lindí hopp, og jitterbug. Hún tók GED-próf eftir fyrsta árið í menntaskóla og ákvað að hætta í skóla til að láta reyna á feril í tónlist. Perry byrjaði upphaflega að syngja „vegna þess að ég var á þeim tímapunkti í æskunni þar sem ég var að herma eftir systur minni og gerði allt sem hún gerði.“ Systir hennar æfði sig með kassettum og Perry hlustaði á þessar kassettur sjálf þegar systir hennar var ekki heima. Hún æfði lög og flutti þau fyrir foreldra sína sem lögðu til að hún myndi fara í söngtíma. Hún greip tækifærið og byrjaði í tímum 9 ára og hætti 16 ára. Hún skráði sig í tónlistarakademíuna í Santa Barbara og lærði ítalskan óperusöng í stuttan tíma.

Ferill

2001: Katy Hudson

Áður en Perry var þekkt undir nafninu Katy Perry kenndi hún sig við Katy Hudson. Perry gaf út sína fyrstu stúdíóplötu 6. mars 2001 sem kallast Katy Hudson. Á þessum tíma var Perry óþekkt almenningi en fékk þó ágæt ummæli frá gagnrýnendum. Það var útgáfufélagið Red Hill Records sem gaf plötuna út en félagið varð stuttu seinna gjaldþrota. Áður en félagið varð gjaldþrota seldist platan einungis í rúmum 200 eintökum. Platan er með kristilega stefnu og fjallar um trú söngkonunar á Guði. Eftir að Perry varð þekkt poppstjarna seldist platan í fleiri eintökum.

2007–2009: One of the Boys

Í apríl 2007 skrifaði Perry undir samning við útgáfufélagið Capitol Records og fékk þar af leiðandi sviðsnafnið Katy Perry. Í nóvember 2007 gaf hún út lagið „Ur so Gay“. Capitol Records fékk Dr. Luke og Perry til að vinna saman og unnu þau að mörgum vinsælum lögum á borð við „I Kissed a Girl“ og „Hot n Cold“.

Perry gaf út sitt fyrsta lag við plötuna One of the Boys þann 28. apríl 2008 sem heitir „I Kissed a Girl“. Lagið skaut henni upp á stjörnuhimininn sem poppstjarna en hlaut töluverða gagnrýni af trúfélögum vegna skilaboða í textanum. Laginu gekk hinsvegar vel á vinsældalistum á náði fyrsta sæti á Billboard Hot 100.

Þann 17. júní 2008 gaf hún út fyrstu plötuna sína undir nafninu Katy Perry, One of the Boys, og náði hún níunda sæti á Billboard 200 listanum en toppaði vinsældalista í löndum eins og í Þýskalandi, Kanada, Hollandi og Austurríki. Platan var lengi í undirbúningi og var tekin upp á árunum 2003–2008 en hún hefur verið seld í meira en 7 milljónum eintaka í dag. Í september gaf hún síðan út lagið „Hot n Cold“ sem náði einnig miklum vinsældum og náði hæst 3. sæti á Billboard Hot 100 listanum. Smáskífurnar „Thinking of You“ og „Waking up in Vegas“ fylgdu síðan í kjölfarið árið 2009.

2010–2012: Teenage Dream

Katy Perry: Æska, Ferill, Útgefið efni 
Perry í Sydney á frumsýningu heimildarmyndarinnar Katy Perry: Part of Me árið 2012

Þann 7. maí 2010 gaf Perry út lagið „California Gurls“ með Snoop Dogg. Lagið var fyrsta smáskífan af plötunni hennar Teenage Dream. Lagið náði miklum vinsældum á var á toppi vinsældalista víðsvegar um heiminn. Í júlí gaf hún síðan út lagið „Teenage Dream“ sem einnig náði fyrsta sætinu á vinsældalistum. Platan Teenage Dream skaust beint í fyrsta sæti á Billboard 200 listanum en platan hefur verið seld í meira en 6 milljónum eintaka. Í október gaf Perry út lagið „Firework“ sem, eins og hin tvö lögin, náði fyrsta sæti á vinsældalistum. Þetta var þriðja samfellda lagið sem Perry gaf út sem náði fyrsta sæti.

Þann 16. febrúar 2011 kom lagið „E.T.“ með Kanye West út. Lagið dvaldi næstu fimm vikum í fyrsta sæti vinsældalistans. Í júní 2011 af hún síðan út lagið „Last Friday Night (T.G.I.F.)“. Þetta var fimmta samfellda lagið hennar sem fór í fyrsta sæti á Billboard Hot 100 listanum.

Perry er eina konan sem hefur átt fimm lög af sömu plötunni sem hafa verið í fyrsta sæti á listanum. Aðeins Michael Jackson hefur gert það áður af plötunni hans Bad. Sjötta smáskífan af plötunni fylgdi í október og náði hún þriðja sæti listans. Þar með hefur hún náð 6 lögum af sömu plötunni í topp 5. Aðeins tveir aðrir listamenn höfðu náð þessum árangri áður, þau Janet Jackson og George Michael.

Í kjölfar útgáfu plötunnar hélt Perry í tónleikaferðalag sem stóð frá febrúar 2011 til janúar 2012. Tónleikaferðalagið skilaði 59,5 milljónum dollara í tekjur. Þann 23. mars 2012 gaf útgáfufélag Perry út plötuna Teenage Dream: The Complete Confession. Tvær nýjar smáskífur fylgdu í kjölfarið. „Part of Me“ fór beint í fyrsta sæti vinsældalistans. Lagið „Wide Awake“ kom síðar út og komst hæst í annað sæti listans.

Í október 2010 giftist Perry leikaranum Russell Brand. Fjórtán mánuðum seinna tilkynnti Brand að þau ætluðu að sækja um skilnað.

2013–2015: Prism

Katy Perry: Æska, Ferill, Útgefið efni 
Perry á tónleikaferðalaginu Prismatic World Tour árið 2014

Perry byrjaði að vinna að sinni þriðju plötu Prism í nóvember 2012. Fyrsta smáskífa plötunnar, „Roar“, kom út í ágúst árið 2013 og náði fyrsta sæti Billboard listans. Tveim mánuðum seinna kom út önnur smáskífa Prism, „Unconditionally“, en hún náði 14. sæti vinsældalistans. Platan sjálf kom út 18. október 2013 og fékk hún góð viðbrögð frá gagnrýnendum og náði fyrsta sætinu á Billboard 200.

Í desember 2013 gaf Perry út þriðju smáskífuna af plötunni, „Dark Horse“. Með henni rappar Juicy J. Lagið var hennar níunda sem náði fyrsta sætinu á Billboard listanum. Árið 2014 fylgdu tvær aðrar smáskífur út, „Birthday“ og „This Is How We Do“. Bæði lögin komust í topp 25 á listanum.

Eftir útgáfu plötunnar hélt Perry í sitt þriðja tónleikaferðalag um heiminn. Næstum því tvær milljónir miða voru seldir á tónleikana. Gróði tónleikana var um 204 milljónir dollara.

Þann 1. febrúar 2015 var Perry fengin til þess að spila sem hálfleiksatriði í Ofurskálinni. Hún fékk mjög góð viðbrögð fyrir framkomu sína og horfðu meira en 118 milljónir manna á atriðið hennar. Það eru fleiri manns en horfðu á sjálfan leikinn en það voru 114 milljón manns. Ekkert hálfleiksatriði hafði fengið jafn mikið áhorf og þegar Perry kom fram í sögu Ofurskálarinnar.

2016–2018: Witness

Katy Perry: Æska, Ferill, Útgefið efni 
Perry á tónleikaferðalaginu Witness: The Tour árið 2017

Í júní 2016 byrjaði Perry að semja lög fyrir sína fjórðu plötu. Sama mánuð kom út lagið „Rise“ sem var samið fyrir Ólympíuleikana. Lagið var hins vegar ekki partur af komandi plötu. Þetta var hennar fyrsta lag síðan 2014 en lagið náði 11. sæti á Billboard listanum.

Þann 10. febrúar 2017 kom út fyrsta smáskífa af komandi plötu, „Chained to the Rhythm“ og var rapparinn Skip Marley með henni í laginu. Laginu gekk vel, og var spilað yfir 3 milljón sinnum á Spotify á 24 tímum sem var met fyrir mestar spilanir á einum sólarhring fyrir söngkonu. Lagið fór hæst í fjórða sæti vinsældalistans í Bandaríkjunum. Önnur smáskífan, „Bon Appétit“ með Migos kom út í apríl 2017. Tónlistarmyndbandið við lagið fékk mikla gagnrýni, en þar sést meðal annars í nýja hárgreiðslu á söngkonunni. Svarta hárið sem hún var með á fyrri plötum var horfið og ný, stutt, hvít hárgreiðsla hafði komið í staðinn. Þriðja smáskífan, „Swish Swish“ með Nicki Minaj kom út í maí. Í tónlistarmyndbandinu má meðal annars sjá vaxtartröllið Hafþór Júlíus halda á Perry á meðan þau spila körfubolta. Lögin „Bon Appétit“ og „Swish Swish“ náðu ekki jafn góðum árangri á vinsældalistum eins og fyrri lög Perry þar sem hið fyrrnefnda náði 56. sæti og hið síðarnefnda náði 46. sæti.

Fjórða plata Perry, Witness, kom út 9. júní 2017 og fékk þónokkra gagnrýni frá gagnrýnendum. Platan skaust beint í fyrsta sætið á Billboard 200 listanum. Eftir útgáfu plötunnar var Perry með fjögurra daga streymi af sér þar sem hún svaraði spurningum aðdáenda. Streymið endaði með tónleikum þann 12. júní. Hún hóf líka tónleikaferðalag sem byrjaði í september 2017 og stóð til ágúst 2018.

Perry var með í lagi Calvin Harris, „Feels“, sem kom út 15. júní 2017. Ásamt þeim tveim voru þeir Big Sean og Pharrell Williams með í för. Perry fék samtals 25 milljónir dollara í laun fyrir að vera dómari í næstu seríu af American Idol sem kom út í mars 2018. Snemma árs 2016 byrjaði Perry með leikaranum Orlando Bloom og trúlofuðust þau í febrúar 2019.

2019–2020: Smile

Katy Perry: Æska, Ferill, Útgefið efni 
Perry á iHeartRadio Music Awards árið 2019

Í janúar 2019 gaf Perry út lagið „365“ í samstarfi við Zedd. Mánuði seinna var hún partur af remixi við lagið „Con Calma“ með Daddy Yankee og Snow. Í lok maí 2019 gaf Perry út lagið „Never Really Over“ og var það vel tekið af gagnrýnendum. Lagið náði 15. sæti Billboard listans og var það streymt yfir 15,8 milljón sinnum fyrstu vikuna. Bæði lögin „365“ og „Never Really Over“ voru á þessum tíma ekki partur af neinni skipulagðri plötu. Seinna meir varð „Never Really Over“ hluti af væntanlegri plötu en „365“ varð það ekki. Í júní 2019 kom Perry fram í tónlistarmyndbandi Taylor Swift við lagið „You Need to Calm Down“. Voru þetta mikil tíðindi þar sem söngkonurnar tvær höfðu átt í deilum undanfarin ár. Þann 9. ágúst 2019 kom lagið „Small Talk“ út en náði það ekki miklum vinsældum meðal almennings og komst einungis í 83. sæti á vinsældalistanum í Bandaríkjunum. Í október gaf söngkonan síðan út lagið „Harleys in Hawaii“ en lagið náði ekki að komast inn á Billboard Hot 100 listann en sat í 10. sæti á Bubbling Under Hot 100 listanum.

Þann 5. mars 2020 gaf Perry út tónlistarmyndband við lagið „Never Worn White“. Í myndbandinu tilkynnir söngkonan að hún eigi von á sínu fyrsta barni með unnusta sínum Orlando Bloom. Perry og Bloom ætluðu að gifta sig í Japan um sumarið en af sökum COVID-19 heimsfaraldursins varð ekkert úr því. Þann 15. maí 2020 kom fyrsta eiginlega smáskífan af komandi plötu, lagið „Daisies“. Samkvæmt Perry hefði tónlistarmyndbandið átt að vera stærra en það var, en af sökum aðstæðna í heiminum var bara unnið með það sem var hægt að vinna með. Önnur smáskífa af komandi plötu kom út tveim mánuðum seinna og hét lagið „Smile“.

Í ágúst 2020 kom síðan platan út, einnig nefnd Smile. Platan fékk misgóða gagnrýni og komst hæst í 5. sæti á Billboard 200 listanum. Þetta var hennar fyrsta plata sem náði ekki fyrsta sæti síðan One Of The Boys, sem náði 9. sæti. Tveim dögum áður en platan kom út eignaðist Perry sitt fyrsta barn. Dóttir hennar fékk nafnið Daisy Dove Bloom. Í desember 2020 kom smáskífan „Not the End of the World“ út. Leikkonan Zooey Deschanel lék Perry í tónlistarmyndbandinu.

Síðan 2021: Play

Í janúar 2021 söng Perry lagið sitt „Firework“ á innsetningarathöfn Joe Biden. Í maí 2021 tilkynnti Perry að hún myndi halda átta tónleika frá desember 2021 til janúar 2022 í Las Vegas. Myndi þessi tónleikaröð kallast Play. Þann 13. maí 2021 gaf Perry út lagið „Electric“ en lagið er gefið út í tilefni 25 ára afmæli Pokémon.

Í september 2023 seldi Perry réttinn að tónlistinni hennar til Litmus Music fyrir 225 milljónir Bandaríkjadala.

Útgefið efni

Breiðskífur

  • Katy Hudson (2001)
  • One of the Boys (2008)
  • Teenage Dream (2010)
  • Prism (2013)
  • Witness (2017)
  • Smile (2020)

Endurútgáfur

  • Teenage Dream: The Complete Confection (2012)

Stuttskífur

  • Ur So Gay (2007)
  • The Hello Katy Australian Tour EP (2009)
  • MTV Unplugged (2009)
  • Camp Katy (2020)
  • Scorpio SZN (2020)
  • Empowered (2020)
  • Cosmic Energy (2020)

Tilvísanir

Tenglar

Tags:

Katy Perry ÆskaKaty Perry FerillKaty Perry Útgefið efniKaty Perry TilvísanirKaty Perry TenglarKaty PerryBandaríkinGospeltónlistKaliforníaSanta Barbara

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Knattspyrnufélagið ValurGrábrókKarríHTMLHöfuðborgarsvæðiðÍslenski fáninnKosningarétturValdimarReyðarfjörðurTaívanKnattspyrnudeild KRHafnirKnattspyrnufélag AkureyrarGrænnHelliseyjarslysiðJosh RadnorVestmannaeyjarGuðrún Sóley GunnarsdóttirÁgústa Eva ErlendsdóttirSam WorthingtonMartin ScorseseReykjavíkurhöfnForsíðaMenntaskólinn í ReykjavíkArnar Þór JónssonHand-, fót- og munnsjúkdómurListi yfir morð á Íslandi frá 1874–1969VökvaskorturLangspilEyþór ArnaldsFritillaria przewalskiiListi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999ÞrándheimurÞjóðveldiðSöngkeppni framhaldsskólannaÍslenskir stjórnmálaflokkarSkálholtÁsgeir ÁsgeirssonFjarðabyggðNafnorðHávamálMaría 1. EnglandsdrottningEinar Þorsteinsson (f. 1978)Margrét GuðnadóttirRíkisstjórn ÍslandsDVRagnarökAkranesLöggjafarvaldXboxHelförinÁlverið í StraumsvíkGuðrún ÓsvífursdóttirEvrópaGylfi Þór SigurðssonIvar Lo-JohanssonLandbrotKanaríeyjarRómantíkinPalestínaMynsturBúdapestHandknattleikur á sumarólympíuleikunum 2012 - keppni í karlaflokkiHannes Hlífar StefánssonLakagígarSkagaströndJón Þorláksson (stjórnmálamaður)Vigdís FinnbogadóttirÍslensk krónaSeglskútaSkákHvítasunnudagurSteinunn Sigurðardóttir (rithöfundur)Kjölur (fjallvegur)ÍÞórsmörk🡆 More