Fugl

Fuglar (fræðiheiti: Aves) eru tvífætt hryggdýr með heitt blóð sem verpa eggjum með harðri skurn, tannlausan gogg, framlimi sem hafa ummyndast í vængi, hreistur sem hefur ummyndast í fjaðrir, hröð efnaskipti og létta og sterka beinagrind með hol bein.

Fuglar lifa um allan heim. Stærð fugla nær frá örsmáum kólibrífuglum að risavöxnum strútum og emúum. Um 10.000 núlifandi tegundir fugla eru þekktar, auk um hundrað útdauðra tegunda. Um helmingur núlifandi fuglategunda eru spörfuglar. Vængir fugla eru mjög ólíkir eftir tegundum. Einu vænglausu fuglarnir sem þekktir eru eru útdauðu tegundirnar móafugl og fílafugl. Vængir hafa gert fuglum kleift að fljúga þótt sumar tegundir, eins og strútfuglar og mörgæsir, hafi síðar misst þennan hæfileika. Sumar tegundir fugla, eins og sjófuglar og vatnafuglar, hafa þróað hæfileika til að synda og kafa í vatni. Fuglar eru innbyrðis ólíkir og nærast ýmist á blómasafa, jurtum, fræjum, skordýrum, fiski, hræjum eða öðrum fuglum. Flestir fuglar eru dagdýr, en sumir, eins og uglan, eru næturdýr eða rökkurdýr. Margar tegundir fugla eru farfuglar og ferðast eftir árstíðum langan veg milli ólíkra heimkynna meðan aðrir eyða nær öllum tíma sínum á hafi úti. Sumir geta haldist á flugi dögum saman og jafnvel sofið á flugi.

Fuglar
Flotmeisa, Parus major
Flotmeisa, Parus major
Vísindaleg flokkun
Ríki: Dýraríki (Animalia)
Fylking: Seildýr (Chordata)
Undirfylking: Hryggdýr (Vertebrata)
Flokkur: Fuglar (Aves)
Linnaeus, 1758
Ættbálkar
Margir - sjá grein.

Fuglar eru næstu afkomendur risaeðla og eru tæknilega séð fiðraðar kjöteðlur. Samkvæmt upprunaflokkun teljast þeir því til eðla, og næstu núlifandi ættingjar þeirra eru krókódílar. Fuglar þróuðust út frá eðlufuglum eins og ögli (Archaeopteryx) sem komu fyrst fram í Kína fyrir 160 milljón árum. Samkvæmt erfðarannsóknum þróuðust nútímafuglar einhvern tíma á mið- eða síðkrítartímabilinu. Tegundasprenging fugla átti sér stað í kringum krítar-paleógen-fjöldaútdauðann fyrir 66 milljón árum þegar allar aðrar risaeðlur, þar á meðal flugeðlur, dóu út.

Margar tegundir fugla eru félagsdýr sem miðla þekkingu milli kynslóða. Fuglar eiga samskipti með merkjagjöf, köllum og fuglasöng. Sumar tegundir vinna saman að hreiðurgerð, útungun og uppeldi unganna, eiga samstarf um veiðar og hópast saman til að verjast rándýrum. Langflestar tegundir fugla eru einkvænisdýr á mökunartímabilinu, en sjaldnar í mörg tímabil eða ævilangt. Sumar tegundir eru fjölkvænisdýr og nokkrar eru fjölverisdýr. Fuglar eiga afkvæmi með því að verpa eggjum sem eru frjóvguð í líkama kvenfuglsins með kynæxlun. Oftast verpa fuglar í hreiður og unga eggjunum út með því að liggja á þeim. Flestar tegundir fugla sinna ungunum og mata þá í einhvern tíma eftir útungun.

Margar tegundir fugla eru nýttar sem fæða fyrir menn eða hráefni í ýmis konar framleiðslu, bæði sem húsdýr og villibráð, og gefa af sér egg, kjöt og fiður. Söngfuglar, páfagaukar og fleiri tegundir eru vinsæl gæludýr. Gúanó (úrgangur sjófugla) er nýtt sem áburður. Fuglar koma víða við í menningu, listum, trúarbrögðum og daglegu lífi fólks. Um 120 til 130 tegundir hafa dáið út vegna athafna mannsins síðan á 17. öld, og einhver hundruð þar á undan. Í dag er talið að um 1.200 fuglategundir séu í hættu á að deyja út, og eru því tilefni verndunaraðgerða. Fuglaskoðun er vinsæl afþreying og hluti af náttúruferðamennsku.

Ættbálkar fugla

Skyldleikatré fugla byggt á Braun & Kimball (2021).

Aves
Palaeognathae

Strútar (Struthioniformes) Fugl 

Nandúar (Rheiformes)Fugl 

Snípustrútar (Apterygiformes)Fugl 

Tínamúar (Tinamiformes) Fugl 

Kasúar (Casuariiformes)Fugl 

Neognathae
Galloanserae

Hænsnfuglar (Galliformes) Fugl 

Gásfuglar (Anseriformes) Fugl 

Neoaves
Mirandornithes

Flæmingjar (Phoenicopteriformes)Fugl 

Goðar (Podicipediformes)Fugl 

Columbimorphae

Dúfnafuglar (Columbiformes) Fugl 

Mesitornithiformes Fugl 

Pterocliformes Fugl 

Passerea

Otidiformes Fugl 

Gaukfuglar (Cuculiformes)Fugl 

Dofrar (Musophagiformes) Fugl 

Tranfuglar (Gruiformes)Fugl 

Strandfuglar (Charadriiformes)Fugl 

Opisthocomiformes Fugl 

Strisores

Húmgapar (Caprimulgiformes) Fugl 

Vanescaves

Nyctibiiformes Fugl 

Steatornithiformes Fugl 

Podargiformes Fugl 

Daedalornithes

Aegotheliformes Fugl 

Þytfuglar (Apodiformes) Fugl 

Phaethoquornithes
Eurypygimorphae

Phaethontiformes Fugl 

Eurypygiformes Fugl 

Aequornithes

Brúsar (Gaviiformes) Fugl 

Austrodyptornithes

Pípunefir (Procellariiformes) Fugl 

Bægsliskafarar (Sphenisciformes) Fugl 

Storkfuglar (Ciconiiformes) Fugl 

Árfetar (Suliformes) Fugl 

Pelíkanfuglar (Pelecaniformes) Fugl 

(Ardeae)
Telluraves
Accipitrimorphae

Hrævar (Cathartiformes)Fugl 

Haukungar (Accipitriformes)Fugl 

Uglur (Strigiformes)Fugl 

Coraciimorphae

Músfuglar (Coliiformes) Fugl 

Cavitaves

Doðafuglar (Leptosomiformes) Fugl 

Þrúgfuglar (Trogoniformes)Fugl 

Picocoraciae

Bucerotiformes Fugl 

Picodynastornithes

Meitilfuglar (Coraciiformes)Fugl 

Spætufuglar (Piciformes) Fugl 

Australaves

Snáktrönur (Cariamiformes)Fugl 

Eufalconimorphae

Fálkungar (Falconiformes)Fugl 

Psittacopasserae

Páfagaukar (Psittaciformes)Fugl 

Spörfuglar (Passeriformes)Fugl 

Tilvísanir

Sjá einnig

Tenglar

Fugl 
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu

Tags:

Fugl Ættbálkar fuglaFugl TilvísanirFugl Sjá einnigFugl TenglarFuglBeinBeinagrindBlómasafiDagdýrEfnaskiptiEgg (líffræði)EmúiFiskurFjöðurFlugFræFræðiheitiGoggurHafHeitt blóðHryggdýrJurtKólibrífuglMörgæsirNæturdýrRökkurdýrSjófuglarSkordýrSpörfuglStrúturTegund (líffræði)UglurVatnafuglarVængurÁrstíð

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

SelfossÁbrystirNáttúruvalErpur EyvindarsonHöfuðborgarsvæðiðAtviksorðMúmínálfarnirAtlantshafÁratugurLotukerfiðSíminnSkátafélagið ÆgisbúarAðildarviðræður Íslands við EvrópusambandiðThe BoxSlow FoodGreniSteinn SteinarrJúanveldiðBelgíaGrænlandÍslenska kvótakerfiðPatreksfjörðurKonungur ljónannaEyjafjallajökullKóreustríðiðMálsgreinKristrún FrostadóttirAlþingiskosningarStari (fugl)FrosinnGeirfuglPrins PólóForsetakosningar á Íslandi 1996Leikfangasaga 2TaekwondoStefán MániNorræna tímataliðHernám ÍslandsOculisHamskiptinForsetningarliðurGylfi Þór SigurðssonBesta deild karlaUngverjalandDátarOMX Helsinki 25ParísGunnar ThoroddsenUmhverfisáhrifKjósarhreppurKvennafrídagurinnTöluorðSódóma ReykjavíkFrakklandVery Bad ThingsÍslenskir stjórnmálaflokkarHlíðarfjallWikiDavíð Þór JónssonSauðféMinkurFuglPóstmódernismiHafnarstræti (Reykjavík)Listi yfir tinda á Íslandi eftir hæðAlþýðuflokkurinnMúlaþingBreska samveldiðHandknattleiksfélag KópavogsJón Sigurðsson (forseti)SandeyriSigmund FreudVeröld Andrésar andarAlþingiskosningar 2021KynfrumaTáknStöð 2Ríkisútvarpið🡆 More