23. Október: Dagsetning

23.

SepOktóberNóv
SuÞrMiFiLa
12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031
2024
Allir dagar

október er 296. dagur ársins (297. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 69 dagar eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 42 f.Kr. - Önnur orrustan við Filippí: Her Brútusar var sigraður af Antóníusi og Octavíanusi og hann framdi sjálfsmorð skömmu síðar.
  • 1157 - Orrustan á Grathe-heiði: Sveinn Eiríksson konungur laut í lægra haldi fyrir Valdimar meðkonungi sínum og var höggvinn.
  • 1641 - Írska uppreisnin 1641 hófst þegar írskumælandi íbúar Ulster réðust gegn enskum landnemum og drápu þúsundir þeirra.
  • 1642 - Þrjátíu ára stríðið: Sænskur her undir stjórn Lennart Torstensons gjörsigraði keisaraherinn í orrustu við Breitenfeld.
  • 1642 - Enska borgarastyrjöldin: Orrustan við Edgehill var fyrsta skipulega orrusta borgarastyrjaldarinnar.
  • 1728 - Brunanum mikla í Kaupmannahöfn slotaði en þá voru brunnin um 30% borgarinnar.
  • 1938 - Samband íslenskra berklasjúklinga, SÍBS, var stofnað.
  • 1941 - Bandaríska teiknimyndin Dúmbó var frumsýnd.
  • 1955 - Við verkamannabústaðina við Hringbraut í Reykjavík var reist stytta af Héðni Valdimarssyni.
  • 1956 - Uppreisnin í Ungverjalandi hófst með mótmælum námsmanna í tækniháskólanum í Búdapest.
  • 1958 - Bandalag háskólamanna, BHM, var stofnað.
  • 1963 - Í Vestmannaeyjum mældist 10 mínútna meðalvindhraði 200 km/klst. Þetta var vindhraðamet á Íslandi og var ekki jafnað fyrr en 3. febrúar 1991, þá einnig í Vestmannaeyjum.
  • 1976 - Alexandersflugvöllur var tekinn í notkun á Sauðárkróki. Þar var þá lengsta flugbraut á Íslandi utan Keflavíkurflugvallar.
  • 1980 - Forsætisráðherra Sovétríkjanna, Aleksej Kosygin sagði af sér og Nikolaj Tikonov tók við.
  • 1983 - Herskálaárásirnar: 241 bandarískir hermenn, 58 franskir hermenn og 6 líbanskir borgarar létust í sjálfsmorðssprengjuárás í Beirút.
  • 1987 - Enski knapinn Lester Piggott var dæmdur í 2ja ára fangelsi fyrir skattsvik.
  • 1987 - Stórmynd Bernardo Bertolucci, Síðasti keisarinn, var frumsýnd.
  • 1988 - Íslendingar unnu 11 verðlaun á heimsleikum fatlaðra í Seúl í Suður-Kóreu 15. til 23. október. Þar af voru tvenn gullverðlaun, sem Haukur Gunnarsson og Lilja M. Snorradóttir hlutu.
  • 1989 - Mátyás Szűrös forseti Ungverjalands lýsti yfir stofnun lýðveldis.
  • 1990 - Giulio Andreotti lét ítalskri rannsóknarnefnd í té gögn um Gladio-áætlunina.
  • 1993 - Tíu létust, þar af tvö börn, í Shankill Road-sprengingunni sem IRA stóð fyrir í Belfast.
  • 1995 - Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta sinn.
  • 1996 - Réttarhöld yfir O. J. Simpson hófust í Santa Monica í Kaliforníu.
  • 1998 - Kvikmyndin Fucking Åmål var frumsýnd í kvikmyndahúsum í Svíþjóð.
  • 2001 - Tímabundni írski lýðveldisherinn hóf að afvopnast.
  • 2002 - Numið var úr gildi sérákvæði í stjórnarskrá Ítalíu sem kvað á um að afkomendum Úmbertós 2., síðasta konungs Ítalíu, í beinan karllegg væri bannað að stíga fæti á ítalska jörð.
  • 2002 - Téténskir skæruliðar hertóku Dúbrovka-leikhúsið í Moskvu og tóku um 850 manns í gíslingu. 133 gíslar og 40 skæruliðar voru drepnir í kjölfarið.
  • 2006 - Geimkönnunarfarið Messenger flaug í fyrsta sinn framhjá Venus.
  • 2011 - Yfir 600 fórust þegar jarðskjálfti reið yfir Van í Tyrklandi.
  • 2012 - WOW Air yfirtók rekstur flugfélagsins Iceland Express.
  • 2012 - Bandaríska kvikmyndin Skyfall var frumsýnd í London.
  • 2015 - Fellibylurinn Patricia varð öflugasti fellibylur sem mælst hafði á vesturhveli jarðar. 50 þúsund manns voru flutt frá heimilum sínum í Mexíkó.
  • 2015 - 43 farþegar létust þegar rúta lenti í árekstri við flutningabíl við Puisseguin í Frakklandi.
  • 2018 - Hong Kong–Zhuhai–Maká-brúin, lengsta brú heims yfir sjó, var opnuð í Kína.


Fædd

Dáin

Hátíðisdagar

  • Alþjóðlegi móldagurinn

Tags:

23. Október Atburðir23. Október Fædd23. Október Dáin23. Október Hátíðisdagar23. OktóberGregoríska tímataliðHlaupárSólarhringurÁr

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Geirmundur heljarskinn HjörssonSauryHera Björk ÞórhallsdóttirSveitarstjórnarkosningar á Íslandi 2022Kristnitakan á ÍslandiGrænlandVikivakiMíkhaíl GorbatsjovAlbert EinsteinReynir Örn LeóssonÚranus (reikistjarna)Þórarinn EldjárnKirsuberFiann PaulRússlandForsetakosningar á Íslandi 2012LeikurGrunnskólar á ÍslandiGervigreindLangspilMynsturSamsíðungurHeyr, himna smiðurStokkhólmurNafnháttarmerkiRáðherraráð EvrópusambandsinsBrúðkaupsafmæliSouth Downs-þjóðgarðurinnDónáMorð á ÍslandiSkákStöð 2SeltjarnarnesLandsbankinnJóhann SigurjónssonSnorri SturlusonFjalla-EyvindurHerðubreiðAlmennt brotEgill Skalla-GrímssonÍsisÓpersónuleg sögnHafnirGrundarfjörðurBob MarleyFyrsti vetrardagurNoregurInnréttingarnarBørsenNærætaLundiÞrælastríðiðUmhverfisáhrifPeter MolyneuxListi yfir markahæstu og leikjahæstu knattspyrnumennSigurður SigurjónssonÁsdís ÓladóttirPáskaeyjaDVSkátafélagið ÆgisbúarSjómílaLærdómsöldLýsingarorðListi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999LandselurSystem of a DownLönd eftir stjórnarfariBubbi MorthensHalla TómasdóttirKortisólAronÍsafjarðardjúpValdaránið í Brasilíu 1964Söngvakeppnin 2024SjónvarpiðLögbundnir frídagar á Íslandi🡆 More