Kýpur: Eyja austast í Miðjarðarhafi

Kýpur (gríska: Κύπρος Kypros; tyrkneska: Kıbrıs) er eyja austast í Miðjarðarhafi, sunnan Tyrklands og vestan Sýrlands og Líbanons.

Kýpur er þriðja stærsta og þriðja fjölmennasta eyja Miðjarðarhafsins. Kýpur er aðildarríki Evrópusambandsins. Kýpur fékk sjálfstæði frá Bretlandi árið 1960 fyrir utan herstöðvasvæðin Akrótírí og Dekelíu sem eru enn undir breskri stjórn.

Κυπριακή Δημοκρατία
Kıbrıs Cumhuriyeti
Fáni Kýpur Skjaldarmerki Kýpur
Fáni Skjaldarmerki
Þjóðsöngur:
Imnos pros tin Eleftherian
Staðsetning Kýpur
Höfuðborg Nikósía
Opinbert tungumál gríska og tyrkneska
Stjórnarfar Lýðveldi

Forseti Níkos Krístoðúlíðís
Sjálfstæði
 • frá Bretlandi 1. október 1960 
Flatarmál
 • Samtals
 • Vatn (%)
162. sæti
9.251 km²
~0
Mannfjöldi
 • Samtals (2018)
 • Þéttleiki byggðar
158. sæti
1.189.265
123,4/km²
VLF (KMJ) áætl. 2021
 • Samtals 38,561 millj. dala (128. sæti)
 • Á mann 29.486 dalir (49. sæti)
VÞL (2019) Kýpur: Heiti, Landfræði, Stjórnmál 0.887 (33. sæti)
Gjaldmiðill Evra
Tímabelti UTC+2 (+3 á sumrin)
Þjóðarlén .cy
Landsnúmer ++357

Elstu ummerki um mannabyggð á eyjunni eru frá 10. árþúsundi f.Kr. Meðal fornleifa frá þeim tíma er vel varðveitt nýsteinaldarþorp, Kirokitia. Á Kýpur eru einhverjir elstu brunnar heims. Mýkenugrikkir settust að á Kýpur í tveimur bylgjum á 2. árþúsundi f.Kr. Þar sem eyjan var á hernaðarlega mikilvægum stað í Austur-Miðjarðarhafi var hún hertekin af stórveldum fornaldar, eins og Assýríu, Egyptalandi og Persíu, þar til Alexander mikli lagði hana undir sig árið 333 f.Kr. Ptólemajar ríktu yfir eyjunni, en Rómverjar tóku við af þeim og síðan Austrómverska ríkið. Arabar náðu eyjunni á sitt vald um stutt skeið, síðan franska Lusignan-ættin og loks Feneyjar. Árið 1571 varð eyjan hluti af Tyrkjaveldi sem hélt henni næstu þrjár aldir, til 1878.

Árið 1878 var eyjan gerð að bresku verndarríki með Kýpursáttmálanum og Bretland innlimaði eyjuna formlega árið 1914. Framtíð eyjarinnar varð að þrætuepli tveggja þjóðernishópa sem bjuggu á eyjunni. Kýpur-Grikkja, sem voru 77% íbúa árið 1960, og Kýpur-Tyrkja, sem voru 18% íbúa. Frá 19. öld höfðu Kýpur-Grikkir stutt Enosisstefnuna sem miðaði að sameiningu við Grikkland. Enosis varð opinber stefna í Grikklandi á 6. áratugnum. Kýpur-Tyrkir vildu fyrst áframhaldandi yfirráð Breta, en kröfðust þess síðan að eyjan yrði hluti Tyrklands. Frá 6. áratugnum studdu Kýpur-Tyrkir stofnun aðskilins sjálfstjórnarfylkis í norðurhlutanum, með fulltingi Tyrklands. Eftir vopnaða uppreisn grískumælandi þjóðernissinna á 6. áratugnum fékk Kýpur sjálfstæði frá Bretlandi árið 1960. Blóðjólin 1963 leiddu til frekara ofbeldis milli Kýpur-Grikkja og Kýpur-Tyrkja og hröktu 25.000 Kýpur-Tyrki frá heimilum sínum og bundu enda á þátttöku þeirra í stjórn lýðveldisins. Þann 15. júlí 1974 frömdu grískir þjóðernissinnar valdarán með stuðningi frá herforingjastjórninni í Grikklandi til að ná fram enosis. Þetta leiddi til innrásar Tyrklands á Kýpur 20. júlí, og hernáms Norður-Kýpur. Um 150.000 Kýpur-Grikkir og 50.000 Kýpur-Tyrkir hröktust frá heimilum sínum í kjölfarið. Stofnun nýs ríkis í norðurhlutanum var einhliða lýst yfir árið 1983. Yfirlýsingin var fordæmd af alþjóðasamfélaginu og Tyrkland var eina landið sem viðurkenndi nýja ríkið. Kýpurdeilan er enn óleyst.

Lýðveldið Kýpur ræður de jure yfir allri eyjunni, þar á meðal landhelgi hennar og efnahagslögsögu, fyrir utan herstöðina Akrótírí og Dekelíu sem er undir stjórn Breta samkvæmt London-Zürich-samningunum. Lýðveldið Kýpur skiptist samt de facto í tvo hluta: suður- og vesturhluta sem lýðveldið ræður yfir og nær yfir 59% af eyjunni, og norðurhluta sem er undir stjórn Tyrkneska lýðveldisins á Norður-Kýpur og nær yfir 36% af eyjunni. Önnur 4% heyra til hlutlauss beltis undir stjórn Sameinuðu þjóðanna. Alþjóðasamfélagið lítur svo á að norðurhluti eyjunnar sé hernuminn af Tyrklandsher. Hernámið er álitið ólöglegt samkvæmt alþjóðalögum og ólöglegt hernám Evrópusambandslands eftir að Kýpur gerðist aðili að Evrópusambandinu.

Kýpur er vinsælt ferðamannaland í Miðjarðarhafi. Landið býr við þróað hagkerfi, háar tekjur og mjög háa vísitölu um þróun lífsgæða. Kýpur hefur átt aðild að Breska samveldinu frá 1961 og var stofnaðili að Samtökum hlutlausra ríkja þar til það gekk í Evrópusambandið 1. maí 2004. Kýpur varð hluti af evrusvæðinu 1. janúar 2008.

Heiti

Kýpur: Heiti, Landfræði, Stjórnmál 
Koparnáma á Kýpur. Í fornöld var Kýpur mikilvæg uppspretta kopars.

Elsta áletrunin þar sem vísað er til Kýpur er frá 15. öld f.o.t. og rituð með línulegu B atkvæðaletri. Þar stendur 𐀓𐀠𐀪𐀍 ku-pi-ri-jo sem merkir „Kýpverji“ (gríska: Κύπριος Kyprios). Í klassískri grísku er heiti eyjarinnar ritað Κύπρος Kypros.

Uppruni heitisins er óþekktur, en stungið hefur verið upp á því að það kunni að vera dregið af heiti sýprusviðarins (Cupressus sempervirens) κυπάρισσος kyparissos eða heiti hennarunnans (Lawsonia alba) sem er κύπρος kypros. Heitið gæti hugsanlega verið dregið af súmerska orðinu yfir kopar (zubar) eða brons (kubar), út af stórum koparnámum á eyjunni.

Vegna koparverslunarinnar var latneska heitið yfir kopar dregið af nafni eyjarinnar sem aes Cyprium („Kýpurmálmur“) sem seinna var stytt í Cuprum.

Íbúar eyjarinnar nefnast Kýpverjar á Íslensku. Opinbert heiti eyjarinnar á grísku er Κυπριακή Δημοκρατία Kypriake Demokratia sem þýðir bókstaflega „Lýðveldi Kýpverja“.

Landfræði

Kýpur: Heiti, Landfræði, Stjórnmál 
Hellar við Grekóhöfða.

Kýpur er þriðja stærsta eyjan í Miðjarðarhafinu, á eftir Sikiley og Sardiníu bæði hvað varðar stærð og íbúafjölda. Hún er jafnframt 80. stærsta eyja heims og í 51. sæti yfir eyjar eftir fólksfjölda. Kýpur er 240 km löng enda á milli og 100 km breið þar sem hún er breiðust. Hún liggur milli 34. og 36. breiddargráðu norður og 32. og 35. lengdargráðu austur.

Tyrkland liggur 75 km norðan við eyjuna. Önnur nágrannaríki eru Sýrland og Líbanon í austri og suðaustri (105 og 108 km frá), Ísrael 200 km í suðaustri, Gasaströndin 427 km í suðaustri, Egyptaland 380 km í suðri og grísku eyjarnar Dodecanese 280 km í norðvestri. Frá Kýpur eru 400 km til grísku eyjunnar Ródos og 800 km til gríska meginlandsins. Kýpur er bæði skilgreint sem Evrópuland eða Vestur-Asíuland, hluti Mið-Austurlanda.

Tveir fjallgarðar rísa upp af eyjunni: Troódosfjöll og Kýreníufjöll. Þau liggja umhverfis miðhálendi, Mesaoríu. Niður frá Mesaoríusléttunni rennur Pedieosfljót, lengsta á eyjunnar. Troódosfjöll þekja mest af suður- og vesturhluta eyjunnar og ná yfir um það bil helming hennar. Hæsti tindur Kýpur er Ólympsfjall, 1.952 metrar á hæð, í miðjum Troódosfjöllum. Kýreníufjöllin sem liggja meðfram norðurströndinni þekja umtalsvert minna svæði og eru lægri. Hæsti tindur þeirra er 1.024 metrar á hæð. Eyjan situr á Anatólíuflekanum.

Kýpur: Heiti, Landfræði, Stjórnmál 
Petra tú Rómíú („Grikkjaklettur“).

Eyjunni er skipt í fjóra meginhluta. Lýðveldið Kýpur ræður yfir syðri 2/3 hluta eyjarinnar (59,7%). Tyrkneska lýðveldið á Norður-Kýpur þekur nyrðri þriðjung hennar (34,85%), og Græna beltið sem Sameinuðu þjóðirnar stjórna og skilur milli hlutanna þekur 2,67% eyjunnar. Loks eru tvær breskar herstöðvar á eyjunni: Akrótírí og Dekelía, sem ná yfir þau 2,74% sem eftir eru.

Stjórnmál

Stjórnsýslueiningar

Kýpur skiptist í sex umdæmi: Nikósíu, Famagústa, Kýreníu, Larnaka, Lemesos (Límasól) og Pafos. Þessi skipting nær yfir Norður-Kýpur en er ekki viðurkennd þar.

Kýpur: Heiti, Landfræði, Stjórnmál 

Á Kýpur eru fjórar útlendur Bretlands við Dekelíu; þorpin Ormedeia og Xylotymvou, Dekelíurafstöðin og Paralimni (de facto útlenda), sem tengir Dekelíu við hlutlaust belti Sameinuðu þjóðanna milli gríska og tyrkneska hlutans. Akrótírí og Dekelía eru ekki formlegar útlendur heldur herstöðvar undir stjórn breska hersins.

Íbúar

Trúarbrögð

Kykkos-klaustur í Pedúlas (til vinstri) og Hala Sultan Tekke við Larnakavatn (til hægri).

Meirihluti Kýpur-Grikkja telur sig kristna og eru í grísku rétttrúnaðarkirkjunni á Kýpur, meðan flestir Kýpur-Tyrkir aðhyllast súnní íslam. Samkvæmt Eurobarometer árið 2005, var Kýpur annað trúaðasta land Evrópusambandsins á eftir Möltu (þá var Rúmenía ekki gengin í sambandið, en Rúmenía er nú trúaðasta land Evrópusambandsins). Fyrsti forseti Kýpur var erkibiskupinn Makaríos 3.. Núverandi leiðtogi grísku rétttrúnaðarkirkjunnar á Kýpur er erkibiskupinn Krysostómos 2. af Kýpur.

Moskan Hala Sultan Tekke, við saltvatnið Larnakavatn, er áfangastaður múslimskra pílagríma.

Samkvæmt manntali sem gert var á svæðum sem lýðveldið Kýpur ræður yfir árið 2001 voru 94,8% íbúa í rétttrúnaðarkirkjunni, 0,9% tilheyrðu armensku kirkjunni eða voru maronítar, 1,5% voru rómversk-kaþólskir, 1% voru í ensku biskupakirkjunni og 0,6% voru múslimar. Það er líka samfélag gyðinga á Kýpur. Önnur 1,3% gáfu ekki upp eða tilheyrðu öðrum trúfélögum.

Tilvísanir

Tenglar

Kýpur: Heiti, Landfræði, Stjórnmál   Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

Kýpur HeitiKýpur LandfræðiKýpur StjórnmálKýpur ÍbúarKýpur TilvísanirKýpur TenglarKýpur1960BretlandEvrópusambandiðEyjaGrískaLíbanonMiðjarðarhafiðSýrlandTyrklandTyrkneska

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

StokkhólmurFálkiAlþingiskosningarGuðlaugur Þór ÞórðarsonEgill Skalla-GrímssonMilljarðurRagna RóbertsdóttirSvandís SvavarsdóttirGuðmundar- og GeirfinnsmáliðKrít (eyja)Glacier-þjóðgarðurinn (Bandaríkin)VesturfararÁsdís ÓladóttirListi yfir íslenskar kvikmyndirSteinunn Ólína ÞorsteinsdóttirSambaRagnarNafnorðHjörvar HafliðasonAndri Lucas GuðjohnsenSkítamórallBaldur ÞórhallssonSkógafossSameinuðu þjóðirnarLandsbankinnÞingkosningar í Bretlandi 1997TékklandBeinagrind mannsinsUnuhúsSeglskútaWikiKarl DönitzKópavogurUngverjalandReykjavíkGildishlaðinn textiLilja SigurðardóttirKnattspyrnufélagið ValurFriedrich NietzscheRáðherraráð EvrópusambandsinsListi yfir firði ÍslandsSystem of a DownÆgishjálmurGrænlandFaðir vorKatrín OddsdóttirOkkarínaÚtvarpsþátturRúrik GíslasonKristín SteinsdóttirSkákFullveldiKosningarétturStella í orlofiÞorlákshöfnÍslenska karlalandsliðið í handknattleikVíkingsvöllurBúðardalurÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaÁbyrg framtíðGeirmundur heljarskinn HjörssonÞrándheimurAðalsöngvariComcastVatnsdeigListi yfir fullvalda ríkiVestfirðirHallgrímur Hallgrímsson (f. 1910)Handknattleikur á sumarólympíuleikunum 2012 - keppni í karlaflokkiPalestínaJakob Frímann MagnússonSigurður Ingi JóhannssonVesturbakkinnHalldór LaxnessFramsöguhátturBørsen🡆 More