Húðkeipur

Húðkeipur er bátur úr skinni sem er (oftast) róinn af einum manni.

Húðkeipur er til dæmis haft um grænlenska kajakinn og er að mestu haft um báta karlmanna á Grænlandi. Húðskútan (umiak) (líka stundum nefnd konubátur eða kvennabátur á íslensku) er stærri en húðkeipurinn og er selskinn þanið á öllu opnari trégrind. Húðkeipur er þó einnig haft um báta skrælingja á Vínlandi í Eiríks sögu rauða og stundum um kajaka almennt.

Húðkeipur
Inúíti á húðkeip

Húðskútan var hér áður fyrr mikið notuð til að bera vörur og til flutninga á veiði. Hún er gerð úr skinni og flýtur vel á öldunum. Í fylgd með hverri húðskútu voru oft veiðimenn á húðkeipum. „Húðkeiparnir voru sem tundurbátar, kvennabáturinn hið mikla orustuskip“, þannig lýsir Peter Freuchen þessum bátum. Veiðimenn eru fljótir í förum á húðkeipunum og af þeim er auðvelt að skutla seli ef færi gefst. Komi mikil kvika, er húðkeipunum róið á vindborða við húðskúturnar og þær notaðar sem bárufleygar.

Í Eiriks sögu rauða er þessi lýsing á skrælingjum á húðkeipum:

Og einn morgunn snemma er þeir lituðust um sáu þeir níu húðkeipa og var veift trjánum af skipunum og lét því líkast í sem í hálmþústum og fer sólarsinnis.

Í seinna Íþróttabindi Alfræði Menningarsjóðs er húðkeipur haft almennt um kajak: „Kænuróðraíþróttir (e. canoeing; þ. Kanusport) er heildarheiti á róðri á þremur mismunandi kænutegundum: húðkeip (kajak), kanadískri eikju (canadian) og sambrotseikju“.

Tilvísanir

Tags:

Eiríks saga rauðaGrænlandSkinnSkrælingjarVínland

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Rúnar Alex RúnarssonMiklagljúfurKatlaEiffelturninnTaubleyjaSendiráð ÍslandsJakob Frímann MagnússonÞjóðernishyggjaSöngvar SatansListi yfir lönd eftir mannfjöldaListi yfir forsætisráðherra ÍslandsHesturMiklihvellurHinrik 2. EnglandskonungurPýramídinn mikli í GísaForsetakosningar á Íslandi 2016Listi yfir morð á Íslandi frá 1874–1969SkyrÞjóðMenntaskólinn í ReykjavíkHættir sagna í íslenskuJarðgasKoltvísýringurUngmennafélagið TindastóllBloggBaldurUnuhúsUngmennafélag GrindavíkurÍsland í seinni heimsstyrjöldinniSnæfellsbærListi yfir skammstafanir í íslenskuTungliðLakagígarLundiHrafna-Flóki VilgerðarsonEignarfornafnKrav MagaDaði Freyr PéturssonFóstbræður (sjónvarpsþættir)BrisÁsatrúarfélagiðStofn (málfræði)TrúarbrögðImmanuel KantRíkharður DaðasonEvrópska efnahagssvæðiðJónas HallgrímssonÁstandiðÞóra ArnórsdóttirLoftslagFyrsta krossferðinSetningafræðiSnjóflóðið í SúðavíkSagnmyndirJárnbrautarlestListi yfir morð á Íslandi frá 2000KortisólPompeiiJólasveinarnirHrynjandiAdolf HitlerSamfylkinginEyjafjallajökullListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaArgentínaSérhljóðÁbrystirKalda stríðiðJósef StalínGuðjón SamúelssonDemi LovatoSterk sögnRafeindStafræn borgaravitund20. öldinKatrín JakobsdóttirPortúgalMagnús Scheving🡆 More