Einir: Trjátegund í flokki barrtrjáa

Einir (einitré eða einirunni) (fræðiheiti: Juniperus communis) er runni af ættkvísl Juniperus og einisætt.

Einir er útbreiddastur allra trjáplantna heims og finnst um allt norðurhvel jarðar, í Norður-Ameríku, Asíu og Evrópu á kaldtempruðum norðlægum breiddargráðum.

Einir
Þroskuð og óþroskuð einiber á Saaremaa í Eistlandi.
Þroskuð og óþroskuð einiber á Saaremaa í Eistlandi.
Ástand stofns
Vísindaleg flokkun
Ríki: Jurtaríki (Plantae)
Fylking: Berfrævingar (Pinophyta)
Flokkur: Barrtré (Pinopsida)
Ættbálkur: Barrviðarbálkur (Pinales)
Ætt: Einisætt (Cupressaceae)
Ættkvísl: Juniperus
Tegund:
J. communis

Tvínefni
Juniperus communis
L.
Útbreiðsla á heimsvísu
Útbreiðsla á heimsvísu

Einirinn er með nálarlaga blöð, u.þ.b. 10 mm löng. Hér á landi vex einirinn í hrauni, kjarri og mólendi. Einirunnar eru oftast jarðlægir, en sumir runnar reisa upp greinarnar og geta þá orðið allt að 120 cm háir. Utan Íslands getur hann verið beinvaxinn og allt að 10 metrar.

Fyrst þegar einiberið myndast er það grænt, en verður dökkblátt þegar það er orðið fullþroskað. Úr einiberjum er víða unnið Genever (=Sjenever eða gin).

Undirtegundir

Eins og búast má við af tegund með jafn mikla útbreiðslu er J. communis mjög breytilegur með nokkrum undirtegundum ("infraspecific taxa"); afmörkun undirtegunda er enn óvís, þar sem genagreining samsvarar ekki formgerð vel.

  • subsp. communis – Yfirleitt uppréttur runni eða lítið tré; nálar langar, 8–20(–27) mm; könglar smáir, 5–8 mm, yfirleitt styttri en nálarnar; á láglendi til lágt til fjalla á tempruðum svæðum.
    • subsp. communis var. communis – Evrópa, megnið af Norður Asíu
    • subsp. communis var. depressa Pursh – Norður Ameríka, Sierra Nevada í Kaliforníu
    • subsp. communis var. hemisphaerica (J.Presl & C.Presl) Parl. – fjöll við Miðjarðarhafið
    • subsp. communis var. nipponica (Maxim.) E.H.Wilson – Japan (staða óvís, oft skráð sem J. rigida var. nipponica)
  • subsp. alpina (Suter) Čelak. – (syn. J. c. subsp. nana, J. c. var. saxatilis Pallas, J. sibirica Burgsd.). Yfirleitt jarðlægur runni; nálarnar stuttar, 3–8 mm; könglarnir yfirleitt stærri, 7–12 mm; vex í subarctic svæðum og háfjöllum á tempruðum svæðum.
    • subsp. alpina var. alpina – Grænland, Ísland, Evrópa og Asía
    • subsp. alpina var. megistocarpa Fernald & H.St.John – Austur Kanada (vafasamt hvort sé aðgreind frá var. alpina)
    • subsp. alpina var. jackii Rehder – vestari Norður Ameríka (vafasamt hvort sé aðgreind frá var. alpina)

Sumir grasafræðingar telja subsp. alpina frekar sem afbrigði, sem væri þá rétt skráð sem Juniperus communis var. saxatilis Pallas, þó nafnið Juniperus communis var. montana sé stundum notað; aðrir, yfirleitt í austur Evrópu og Rússlandi, telji hann sem sérstaka tegund J. sibirica Burgsd. (syn. J. nana Willd., J. alpina S.F.Gray).

Notkun á Íslandi

Einir: Undirtegundir, Notkun á Íslandi, Samlífi 
Einibreiða á Þingvöllum.

Forn trú á Íslandi var að til að afstýra húsbruna væri ráð að hafa eini í húsinu. Einirinn var hér áður fyrr einnig notaður til að búa til jólatré (en einnig til að skreyta það), til að búa til te, bragðbæta brennivín og til að reykja lax. Í bók sinni Grasnytjum segir Björn Halldórsson í Sauðlauksdal samtímamenn sína (á 18. öld) hafa mikla trú á heilsubætandi áhrifum einiberja og telji þau gagnast við fjölda kvilla, allt frá niðurgangi til holdsveiki.

Samlífi

Einir er hýsill fyrir sérkennilega sveppinn hornryð. Að minnsta kosti 13 aðrar tegundir smásveppa hafa fundist í samlífi við eini á Íslandi.

Tenglar

  • Einir - floraislands.is
  • Einir - Morgunblaðið, 18. september 2001, bls. 39

Gallerí

Tilvísanir

Einir: Undirtegundir, Notkun á Íslandi, Samlífi   Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Einir: Undirtegundir, Notkun á Íslandi, Samlífi 
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu

Tags:

Einir UndirtegundirEinir Notkun á ÍslandiEinir SamlífiEinir TenglarEinir GalleríEinir TilvísanirEinirAsíaEinisættEvrópaFræðiheitiJuniperusNorður-AmeríkaNorðurhvel jarðarRunniTré

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Lögreglan á ÍslandiWikiOblátaKörfuknattleikurKommúnismiSundhnúksgígarPharrell Williams2002SamyrkjubúskapurSöngvar SatansDagur jarðarForsetakosningar á Íslandi 2012Kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og NagasakiAfturbeygt fornafnAlþingishúsiðGolfstraumurinnÖndVeikar sagnirVerg landsframleiðslaStefán MániSelfossÞjóðernishyggjaEvrópusambandiðOrkustofnunCSSBreskt pundApavatnValgeir GuðjónssonSteypireyðurÓlafur Darri ÓlafssonSvartidauðiHvannadalshnjúkurHalldóra BjarnadóttirTinValdaránið í Brasilíu 1964BorgJárnSævar Þór JónssonÞingvellir1957HlutlægniHellarnir við HelluSnæfellsjökullÓlafur ThorsBelgíaTaubleyjaLeifur heppniRudyard KiplingJökulsárlónErpur EyvindarsonHin íslenska fálkaorðaKnattspyrnufélagið ÞrótturTaylor SwiftListi yfir íslensk mannanöfnFreyrEigindlegar rannsóknirVestmannaeyjarStjörnustríðAlþingiskosningar 2016Eiríkur Ingi JóhannssonKortisólHaraldur 5. NoregskonungurOrsakarsögnJ. K. RowlingUpplýsingatækniBeinþynningSagnmyndirEndurreisninEgó (hljómsveit)Colossal Cave AdventureVery Bad ThingsArnaldur IndriðasonSauryYrsa SigurðardóttirGuðmundur ÁrnasonAskur YggdrasilsListi yfir forseta Bandaríkjanna🡆 More