Froskdýr (fræðiheiti: Amphibia) eru flokkur seildýra sem inniheldur allar tegundir ferfætlinga sem ekki eru líknarbelgsdýr.
Þau skiptast í þrjá ættbálka, ormakörtur, salamöndrur og froska. Í þróunarstiganum eru þau mitt á milli fiska og skriðdýra og voru fyrstu hryggdýr á landi fyrir um það bil 370 miljónum ára.
Froskdýr | ||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Trjáfroskur (Hyla arborea) | ||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||
| ||||||||
Ættbálkar | ||||||||
|
Froskdýr lifa um allan heim nema á köldustu svæðum, eru með misheitt blóð og kirtlaríka húð sem hefur hvorki hár, hreistur né fjaðrir. Þau anda bæði með húð og lungum og lifa mest á skordýrum, sniglum og ormum. Þau gjóta eggjum sínum oftast í vatni og festa þau í klasa eða lengjur við vatnaplöntur. Lirfurnar nefnast halakörtur og anda með tálknum.
Fullorðin dýr lifa lengstum bæði á landi og í vatni, en hafa ekki aðlagast fullkomlega lífi á þurru landi eingöngu líkt og flestir aðrir ferfætlingar. Um 5.700 tegundir froskdýra eru til. Skriðdýrafræði er sú vísindagrein sem fæst við rannsóknir bæði á froskdýrum og skriðdýrum.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Froskdýr, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.