Digimon (jap.
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. |
Titill á frummáli | デジモン (dejimon) |
---|---|
Enskur titill | Digimon |
Gerð | Sjónvarpsþættir |
Efnistök | Ævintýri |
Fjöldi þátta | 332 (25 mín.) |
Útgáfuár | 1999 til 2012 |
Lykilmenn | Akiyoshi Hongo |
Myndver | Toei Animation |
デジモン dejimon) er japönsk sería sem inniheldur anime þáttaraðir, tölvuleiki, leikföng, TCG spil, manga bækur og fleira. Ekkert þeirra hefur hingað til komið út á íslensku. Digimonar eru verur sem lifa í heimi sem hefur þróast í gagnaflutningakerfum jarðarinnar. Þegar þessi stafræni heimur er í hættu þurfa aðalpersónurnar að bjarga honum. Digimon er að stórum hluta byggt á goðsögnum og slíku. Meðal annars er tekið úr austurlenskum trúarbrögðum, kristinni trú og smávegis úr norrænu goðafræðinni.
Upprunalega var Digimon stafrænt gæludýr. Það var gefið út af Bandai, og var fyrirrennari þess Tamagotchi af sama framleiðanda.
Virtual Pet er handtölvuleikur, sem leifir manni að að sjá um og ala upp stafrænt gæludýr. Það þarf að gefa því mat, hreinsa upp eftir þeim og fl. Jafnvel hægt að láta gæludýrið sitt berjast við gæludýr annara. Eftir því hvernig gæludýrið var alið upp gæti það tekið á sig mismunandi útlit og eiginleika þegar það ólst upp og ef því var vanræktað dó það.
Frá fyrstu útgáfunni 1997 komu út margar ólíkar útgáfur af leiknum. Sumar þeirra hafa verið gerðar fyrir sjónvarpsseríuna. Nefna má meðal annars Digital Monster, Pendulum og Pendulum X, Progress, Digivice, Accel, Mini, iC, Twin og fleiri.
Digital Monster
Pendulum
Pendulum X
Mini
Digivice
V-Tamer
Chronicle
Next
D-Cyber
Xros Wars
Re:Digitize og Decode
Kínverskar Útgáfur
Vesturinn
Doujinshi
Margar myndir um Digimon komu út í Japan, en birtust nokkrar þeirra ekki í vestræna heiminum. Einnig birtist í Bandaríkjunum mynd, sem er samansett af fyrstu þremur japönskum myndunum.
Sjö seríur (Digimon Adventure, Digimon Adventure 02, Digimon Tamers, Digimon Frontier, Digimon Savers, Digimon Xros Wars og Digimon Xros Wars: The Boy Hunters Who Leapt Through Time) komu út milli 1999 og 2012.
Fyrir hvern digimona, sem birtist í þáttunum, myndunum, leikjunum og myndasögunum, er til að minnsta kosti eitt spil. Langflestir eru þó með mörg spil. Margir digimonar birtast sem spil, sem hafa ekki birst annars staðar.
Til eru fleiri reglur en ein, þó eru þær dæmigerðar TCG reglur. Tilgangurinn er að láta hinn/hina leikmanninn/leikmennina fá ákveðinn fjölda af mínus stigum. Hver leikmaður byrjar með ákveðinn fjölda af spilum, sem hann dregur af stokknum sínum. Spilin, sem til eru, eru skepnuspil, sem notaðar eru til að ráðast á andstæðingana og framkvæmdarspil, sem geta til dæmis stykt árás digimonanna eða látið þá þróast. Á borðinu eru tvær raðir. Sú nærri hjá leikmanninum er til að láta digimonana þróast og hin til að láta digimonana berjast. Hver umferð hefur fleiri lotur, ein til að senda út digimona og ein til að ráðast á og svo framvegis. Ef allir andstæðingar hafa fengið ákveðið magn af mínus stigum er leiknum lokið.
Höfundar Digimon notast mikið við táknfræði og goðsagnir til að byggja upp sögurnar. Tákn eins og litir, frumefni eða dyggðir eru notuð í öllum seríunum og myndum.
Til dæmis eru skjaldamerkin í fyrstu seríunni upprunalega sjö, sem er heilög tala í Kristninni.
Goðsagnir margra trúarbragða eru notuð í Digimon. Til dæmis úr kaþólsku trúnni eru teknar dauðasyndirnar sjö og er hver tengd við illan digimona.
Heilagar skepnur úr kínversku stjörnufræðinni eru notaðar sem vættir stafræna heimsins. Þjónar þeirra digimona kallast Deva, sem eru byggðir á guðum hindúisma og jaínisma og eru þeir líka til í búddisma, þó að þar séu þeir ekki guðir. Þeir eru góðir fyrir nokkra, en illir fyrir aðra.
Í norrænum sögnum er Yggdrasil kjarni jarðar og lífsins tré. Í Digimon ber aðaltölvan það nafn því að hún var kjarni stafræna heimsins og gaf digimonunum líf. Einnig hefur Blitzmon árás, sem heitir Mjölnir Thunder.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Digimon, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.