Skaftáreldar: Stórt eldgos á Suðurlandi (1783-1784)

Skaftáreldar er heiti eldgoss sem hófst á hvítasunnudag, 8.

júní árið 1783, í Lakagígum í Vestur-Skaftafellssýslu, og stóð fram í febrúar 1784. Í Skaftáreldum varð mesta hraunrennsli í einu gosi á jörðinni á síðasta árþúsundi og er heildarrúmál hraunsins um 12-14 km³ og flatarmál þess 580 km².

Skaftáreldar: Stórt eldgos á Suðurlandi (1783-1784)
Lakagígar
Skaftáreldar: Stórt eldgos á Suðurlandi (1783-1784)
Holuhraun 2014, sambærilegt, en mikið minna gos

Gosinu fylgdu aska og eiturefni sem barst um landið. Mikil gosmóða, rík af brennisteinssamböndum, barst út í gufuhvolfið og varð hennar vart um allt norðurhvel jarðar. Veturinn á eftir var harður um alla Evrópu en einkum þó á Íslandi, búfé féll og hungursneyð ríkti. Hörmungarnar sem fylgdu Skaftáreldum eru kallaðar Móðuharðindin eftir gosmóðunni. Þær stóðu yfir til ársins 1785. Talið að sauðfé hafi fækkað um allt að 80%, hrossum um 60% og nautgripum um 50%. Þessar hörmungar kostuðu meira en 10.000 manns (rúmlega 20% þjóðarinnar) lífið.

Í Eldriti sínu lýsir Jón Steingrímsson (kallaður eldklerkur) eldgosinu og eftirmálum þess á landinu.

Skaftáreldar höfðu áhrif annars staðar en á Íslandi. Þeir ollu kólnun um hálft stig á norðurhveli í eitt ár eða svo.

Heimildir

  • Skaftáreldar 1783
  • „Hvort voru Skaftáreldar flæðigos eða blandað gos?“. Vísindavefurinn.
  • „Hvenær geisuðu Skaftáreldarnir?“. Vísindavefurinn.
  • „Hvað gerist hér á landi og annars staðar ef eldgos hefjast á Yellowstone-svæðinu?“. Vísindavefurinn.
  • „Hvernig nákvæmlega voru Skaftáreldarnir? Hvernig var aðdragandinn og hvernig fór þetta allt fram?“. Vísindavefurinn.
  • Þjóðskjalasafn: Skaftáreldar
Skaftáreldar: Stórt eldgos á Suðurlandi (1783-1784)   Þessi jarðfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

178317848. júníEldgosHraunHvítasunnaLakagígarVestur-Skaftafellssýsla

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Listi yfir íslenskar stafsetningar- og málfræðivillurÚígúrarJean-Claude JunckerFilippseyjarÍGamelanXXX RottweilerhundarFullvalda ríkiQingdaoJúlíana Sara GunnarsdóttirÞorsteinn BachmannMagnús SchevingListi yfir íslensk millinöfnIngólfur ArnarsonAlþingiÁhættusækniGrundarfjörðurRaunsæiðHandknattleikssamband ÍslandsFornkirkjuslavneskaSalvörKelly ClarksonForsetakosningar á Íslandi 1996Jón GnarrE-efniEldfellJim HanksForsetakosningar á Íslandi 2016Maracanã (leikvangur)Ólafur Ragnar GrímssonÖxulveldinSiglufjörðurBjór á ÍslandiHalldóra BjarnadóttirListi yfir færeyskar kvikmyndirBubbi MorthensJökull JakobssonJón Sigurðsson (forseti)HvannadalshnjúkurSvalbarðsættRafsegulsviðRómantíkinEvrópukeppnin í knattspyrnu 2024Ágústa Eva ErlendsdóttirISBNÁsgarðurNærætaKópavogurLomberSteinunn Sigurðardóttir (rithöfundur)ÞorlákshöfnSuðurnesjabærKnattspyrnufélagið ÞrótturListi yfir íslenskar kvikmyndirJörundur hundadagakonungurOpið efniMóðuharðindinSystem of a DownOrkustofnunRómverskir tölustafirListi yfir markahæstu og leikjahæstu knattspyrnumennLeifur heppniRíkisstjórn ÍslandsFullveldiHáskóli ÍslandsÞriðja ríkiðTrapisaCarles PuigdemontGuðni ÁgústssonJosh RadnorOrkumálastjóriNafnorðSiðblindaSmáorðBúrkína FasóJóhann SvarfdælingurAndlagForsetakosningar á Íslandi 2024🡆 More