Wikipedía er frjálst alfræðirit skrifað í samvinnu fjölmargra notenda um allan heim.
Allar breytingar eru skráðar í breytingaskrá einstakra síðna. Aðrir notendur fylgjast með því hvaða breytingar eru gerðar og fjarlægja skemmdarverk og bull yfirleitt fljótt.
Þú getur skrifað um næstum því hvað sem er ef það er markvert og ef viðfangsefnið hefur fengið mikla umfjöllun í bókum eða fréttum. Ef þú ætlar að skrifa um manneskju getur verið gott að kíkja á viðmiðin um hvenær fólk sé nógu markvert fyrir grein, og þú skalt vera sérlega passasamur ef viðkomandi er enn á lífi og bera virðingu fyrir einkahögum fólks.
Til eru nokkrir listar sem þú getur litið yfir og fundið greinar sem þarfnast bóta:
Vinsamlegast ekki skrifa:
Það er auðvelt að búa til nýja grein á Wikipedíu. Ef þú ert búinn að nota leitarvélina og sérð að greinin þín er ekki til nú þegar skaltu stimpla titil hennar inn hérna og búa hana til:
Það getur verið gott að búa til aðgang fyrst, en það er ekki nauðsynlegt.
Það er alltaf hægt að bæta grein. Ef þú sérð eitthvað á grein sem að mætti bæta hvetjum við þig til að taka af skarið og bæta það. Vertu óhræddur við að gera breytingar! Það er alltaf hægt að laga mistök eftir á. Kíktu á leiðbeiningarnar hérna fyrir ofan um hvernig maður skrifar texta á Wikipedíu.
Ef þú kannt ekki að breyta einhverju ákveðnu, ert í vafa með hvort það ætti að breyta, eða heldur að breytingarnar þínar gætu verið umdeildar geturðu sett inn skilaboð á spjallsíðu greinarinnar. Aðrir notendur sem fylgjast með öllum breytingum á greinum munu þá líta við og svara.
Þegar þú ert búinn að breyta ýtirðu á bláa hnappinn Gefa út breytingar og lýsir því hverju þú breyttir.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Wiki:Kynning, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.