Vestur-Miðhéruð (e.
West Midlands) er einn af níu embættislegum landshlutum á Englandi og nær yfir vesturhelming svæðisins sem nefnist Miðhéruð. Önnur stærsta borgin á Bretlandi, Birmingham, er í þessum landshluta. Það er til stórt þéttbýli í vestur-Miðhéruðum sem inniheldur borgirnar Dudley, Solihull, Walsall og West Bromwich. Borgin Coventry er líka í landshlutanum en er aðskilin af öðrum þéttbýlunum.
Landslag svæðisins er fjölbreytt. Í austurhlutunum eru stór þéttbýli en það eru fleiri landsbyggðar í vestursýslunum Shropshire og Herefordshire sem liggja að Wales. Lengsta áin á Bretlandi sem heitir Severn rennur suðaustur inni í svæðinu, í gegnum Shrewsbury og Worcester, og Ironbridge Gorge sem er heimsminjaskrá UNESCO og var fæðingarstaður Iðnbyltingarinnar. Í Staffordshire sýslunni er staður nefnist Potteries, hópur borga sem inniheldur Stoke-on-Trent, og líka Staffordshire Moorlands svæðið sem liggur að Peak District-þjóðgarðinum. Það eru fimm náttúrufegurðarstaðir í landshlutanum. Stratford-upon-Avon er í Warwickshire sýslunni og var fæðingarstaður William Shakespeares.
Það er líka til sýsla sem heitir Vestur-Miðhéruð sem varð til árið 1974. Sýslan nær yfir hluta Staffordshire, Worcestershire og Warwickshire.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Vestur-Miðhéruð (landshluti), which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.