Verstöð er staður þar sem stunduð var sjósókn og afli verkaður.
Flestar hinar elstu verstöðvar eru frá árabátaöld og hafa að líkindum myndast á síðmiðöldum. Vermenn komu í verið á ákveðnum tímum og bjuggu þar í verbúðum sem kallaðar voru sjóbúðir. Sjóbúðir voru þannig að byggt var útihús, stundum eitt sér, eða fleiri saman og veggir hlaðnir að innan úr grjóti og torfi eða grjóti eingöngu en að utan úr grjóti og torfi eða sniddu.
Það sem verstöð myndaðist þurfti að vera góð lending, skammt að róa á fiskimið og nógu mikið landrými til að reisa mætti verbúðir og verka fisk. Einnig þurfti að vera auðvelt að sækja rennandi vatn eða vatn í brunna.
Fjórar tegundir fiskivera voru algengust á fyrri tíð.
Verstöðvar voru fjölmargar, um 320 verstöðvar eru þekktar frá árabátaöld, flestar í Vestfirðingafjórðungi. Meðal verstöðva voru Vestmannaeyjar, Dritvík, Oddbjarnarsker og Bolungarvík.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Verstöð, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.