The Perseus Project (sem er enska fyrir Perseifs verkefið) er verkefni, sem unnið er að í Tufts University og felst í því að gera aðgengilegar á stafrænu formi mikilvægar heimildir í húmanískum fræðum.
Verkefninu er stýrt af fornfræðideildinni.
Verkefnið var sett á laggirnar árið 1987 en þá var hafist handa við að safna efni er varðaði rannsóknir á Grikklandi hinu forna. Tveir geisladiskar hafa verið gefnir út og árið 1995 var sett upp vefsíða, sem hýsir nú Perseus Digital Library. Frá því að verkefnið hófst er það búið að vinda upp á sig; nú er safnað textum á grísku og latínu, enskum textum frá endurreisnartímanum, ritgerðum Edwins Bolles og efni er varðar sögu Tufts University.
Yfirritstjóri verkefnisins er Gregory Crane.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article The Perseus Project, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.