Ted Danson (fæddur Edward Bridge Danson III, 29.
desember 1947) er bandarískur leikari sem er þekktastur fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Cheers og Becker, ásamt kvikmyndunum Three Men and a Baby og Three Men and a Little Lady.
Ted Danson | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | Edward Bridge Danson III 29. desember 1947 |
Ár virkur | 1975 - |
Helstu hlutverk | |
Sam Malone í Cheers Dr. John Becker í Becker Jack Holden í Three Men and a Baby og Three Men and a Little Lady D.B. Russell í CSI: Crime Scene Investigation |
Danson fæddist í San Diego, Kaliforníu en ólst upp í Flagstaff, Arizona. Stundaði nám við Stanford-háskólann áður en hann flutti sig yfir til Carnegie Mellon háskólann í Pittsburgh, Pennsylvaníu þaðan sem hann útskrifaðist með BA-gráðu í drama árið 1973.
Árið 1999 fékk Danson stjörnu á Hollywood Walk of Fame.
Þann 27. September 2007 þá upplýsti Danson í viðtali við Conan O'Brien að hann væri grænmetisæta.
Danson hefur verið giftur þrisvar sinnum:
Þegar Danson og Coates eignuðust sitt fyrsta barn þá varð hún fyrir slagi og sá Danson um hana í mörg ár á meðan hún jafnaði sig. Seinna meir þá ættleiddu þau stelpu. Danson hélt framhjá Coates með Whoppi Goldberg sem leiddi til skilnaðar þeirra, sem varð einn dýrasti skilnaður Hollywoods á sínum tíma en Danson þurfti að borga Coates 30 milljónir dollara.
Áhugi Danson á umhverfinu byrjaði þegar hann var 12 ára, þegar Bill Breed, minjavörður við Museum of Northern Arizona kynnti Danson og vin hans Marc Gaede fyrir leik sem hann kallar billboarding. Með öxi og sög í hönd, þá eyðilögðu Breed, Danson og Gaede yfir 500 skilti og ólögleg fuglahús. Áhugi hans jókst með árunum og byrjaði Danson að hafa áhyggjur af menguninni í sjónum. Um miðjan níunda áratuginn þá stofnaði hann American Oceans Campaigns, sem sameinaðist síðan Oceana árið 2001, þar sem Danson er stjórnarmeðlimur.
Í mars 2011, þá gaf Danson út fyrstu bók sína, Oceana: Our Endangered Oceans And What We Can Do To Save Them, sem er skrifuð með blaðamanninum Michael D'Orso.
Danson er vinur fyrrverandi forseta bandaríkjanna Bill Clinton en svo náinn er vinskapur Danson við Clinton hjónin að hann var viðstaddur brúðkaup dóttur þeirra Chelsea þann 31.júlí 2010. Danson hefur gefið í kringum 85,000 dollara til Demókrata frambjóðandanna Al Gore, John Edwards, Barbara Boxer, Bill Clinton, Al Franken, og John Kerry. Einnig hefur Danson gefið í Demókrataflokkinn í Arkansas og Demókrata öldungarþings herferðarnefndina. Danson og Steenburgen aðstoðuðu Hillary Clinton við forsetaframboð hennar árið 2008.
Danson byrjaði sjónvarpsferil sinn í sápu óperunni Somerset þar sem hann lék Tom Conway frá 1975-1976. Eftir það kom hann fram í þáttum á borð við: Mrs. Columbo, Trapper John, M.D., Magnum, P.I. og Taxi.
Árið 1982 þá var Danson boðið hlutverk í nýjum sjónvarpsþætti sem kallaðist Cheers, lék hann Sam Malone, fyrrverandi hafnarboltastjörnu og bareiganda. Lék hann Malone alveg til ársins 1993. Danson var tilnefndur ellefu sinnum til Emmy verðlaunanna sem hann vann tvisvar sinnum, ásamt því að vera tilnefndur níu sinnum til Golden Globe verðlaunanna sem hann vann tvisvar sinnum. Danson kom einnig fram sem Sam Malone í Frasier, The Jim Henson Hour og The Simpsons.
Eftir Cheers þá kom Danson fram sem gestaleikari í þáttum á borð við: Pearl, Ink og Grosse Pointe. Árið 1998 þá var honum boðið hlutverk í Becker sem læknirinn Dr. John Becker sem hann lék til ársins 2004. Síðan þá hefur hann komið fram sem gestaleikari í Heist, King of the Hill, Curb Your Enthusiasm sem hann sjálfur og Damages.
Í júlí 2010 tilkynnti CBS sjónvarpsstöðin að Ted Danson hafði verið ráðinn sem D.B. Russell hinn nýji yfirmaður næturvaktarinnar í CSI: Crime Scene Investigation. Höfðu Tony Shaloub, Robin Williams og John Lithgow einnig verið skoðaðir fyrir hlutverkið.
Fyrsta kvikmyndahlutverk Danson er í The Onion Field frá 1979. Kom síðan fram í kvikmyndum á borð við : Creepshow, Little Treasure og A Fine Mess. Árið 1987 þá lék hann á móti Tom Selleck og Steve Guttenberg í Three Men and a Baby og framhaldsmyndinni Three Men and a Little Lady frá 1990. Síðan þá hefur hann komið fram í Loch Ness, Saving Private Ryan, Mad Money og The Open Road.
Kvikmyndir | |||
---|---|---|---|
Ár | Kvikmynd | Hlutverk | Athugasemd |
1979 | The Onion Field | Rannsóknarfulltrúinn Ian James Campbell | |
1981 | Body Heat | Peter Lowenstein | |
1982 | Creepshow | Harry Wentworth | Hluti: Something To Tide You Over |
1985 | Little Treasure | Eugene Wilson | |
1896 | Just Between Friends | Chip Davis | |
1986 | A Fine Mess | Spence Holden | |
1987 | Three Men and a Baby | Jack Holden | |
1989 | Cousins | Larry | |
1989 | Dad | John Tremont | |
1990 | Three Men and a Little Lady | Jack Holden | |
1993 | Made in America | Halbert ´Hal´ Jackson | |
1994 | Getting Even with Dad | Raymond ´Ray´ Gleason | |
1994 | Pontiac Moon | Washington Bellamy | |
1996 | Loch Ness | Dempsey | |
1998 | Jerry and Tom | Maðurinn sem elskaði Vicki | |
1998 | Homegrown | Gianni Saletzzo | |
1998 | Saving Private Ryan | Capteinn Fred Hamill | |
1999 | Mumford | Jeremy Brockett | |
2004 | Fronterz | ónefnt hlutverk | |
2005 | The Moguls | Moose | |
2006 | Bye Bye Benjamin | Bill | |
2007 | Nobel Son | Harvey Parrish | |
2008 | Mad Money | Don Cardigan | |
2008 | The Human Contract | E.J. Winters | |
2009 | The Open Road | Þjálfari | |
2011 | Fight for Your Right Revisited | Maitre D´ | |
2011 | Jock | Pezulu | Talaði inn á Kvikmyndatökum lokið |
2012 | Big Miracle | ónefnt hlutverk | Kvikmyndatökum lokið |
Sjónvarp | |||
Ár | Titill | Hlutverk | Athugasemd |
1975-1976 | Somerset | Tom Conway | ónefndir þættir |
1977 | The Doctors | Mitch Pierson | 2 þættir |
1979 | The Amazing Spider-Man | Major Collings | 2 þættir |
1979 | Mrs. Columbo | Richard Dellinger | Þáttur: Ladies of the Afternoon |
1979 | Trapper John, M.D. | Særður maður á sjúkrabörum | Þáttur: Love Is a Three-Way Street óskráður á lista |
1979 | The French Atlantic Affair | Aðstoðarmaður Dr. Clemens | Sjónvarpsmínisería óskráður á lista |
1979 | B.J. and the Bear | Tom Spencer | Þáttur: Silent Night, Unholy Night |
1980 | Laverne & Shirley | Randy Carpenter | Þáttur: Why Did the Fireman |
1980 | Family | David Bartels | Þáttur: Daylight Serenade |
1980 | The Women´s Room | Norman | Sjónvarpsmynd |
1980 | Once Upon a Spy | Jack Chenault | Sjónvarpsmynd |
1981 | Benson | Dan | 2 þættir |
1981 | Magnum P.I. | Stewart Crane | Þáttur: Don´t Say Goodbye |
1981 | Dear Teacher | Steve Goodwin | Sjónvarpsmynd |
1981 | Our Family Business | Gep | Sjónvarpsmynd |
1982 | Taxi | Vincenzo Senaca | Þáttur: The Unkindest Cut |
1982 | Tucker´s Witch | Danny Kirkwood | Þáttur: The Good Witch of Laurel Canyon |
1983 | Allison Sydney Harrison | David Harrison | Sjónvarpsmynd |
1983 | Super Bowl XVII Pre-Game Show | Sam Malone | óskráður á lista |
1983 | Cowboy | Dale Weeks | Sjónvarpsmynd |
1984 | Something About Amelia | Steven Bennett | Sjónvarpsmynd |
1986 | When the Bough Breaks | Alex | Sjónvarpsmynd |
1987 | We Are the Children | ónefnt hlutverk | Sjónvarpsmynd |
1988 | Mickey´s 60th Birthday | Sam Malone | Mickey´s 60th Birthday Anniversary Shorts Programme |
1982-1993 | Cheers | Sam Malone | 270 þættir |
1994 | The Simpsons | Sam Malone | Þáttur: Fear of Flying |
1995 | Frasier | Sam Malone | Þáttur: The Show Where Sam Shows Up |
1996 | Gulliver´s Travels | Lemuel Gulliver | Sjónvarpsmynd |
1997 | Pearl | Sal | Þáttur: The Write Stuff: Part 2 |
1996-1997 | Ink | Mike Logan | 22 þættir |
1998 | Veronica´s Closet | Nick Vanover | Þáttur: Veronica´s $600,000 Pop |
1998 | Thanks of a Grateful Nation | Jim Tuite | Sjónvarpsmynd |
2000 | Grosse Pointe | Jack the Dog | Þáttur: Sleeping with the Enemy |
2002 | Living with the Dead | James Van Praagh | Sjónvarpsmynd |
2002 | Electric Playground | ónefnt hlutverk | Þáttur nr. 8.4 |
2003 | Gary the Rat | Terry McMillian | Þáttur: Megers and Acquisions Talaði inn á |
1998-2004 | Becker | Dr. John Becker | 129 þættir |
2004 | It Must Be Love | George Gazelle | Sjónvarpsmynd |
2005 | Our Fathers | Mitchell Garabedian | Sjónvarpsmynd |
2005 | Knights of the South Bronx | Richard | Sjónvarpsmynd |
2006 | Guy Walks Into a Bar | ónefnt hlutverk | Sjónvarpsmynd |
2006 | Heist | Tom | Þáttur: Hot Diggity |
2006-2007 | Help Me Help You | Dr. Bill Hoffman | 14 þættir |
2008 | King of the Hill | Tom Hammond | Þáttur: The Accidental Terrorist |
2009 | The Magic 7 | Pabbi Seans | Sjónvarpsmynd Talaði inn á |
2000-2009 | Curb Your Ethusiasm | Sem hann sjálfur | 12 þættir |
2007-2010 | Damages | Arthur Frobisher | 23 þættir |
2010 | Tim and Eric Awesome Show, Great Job! | Litli Danson maðurinn | Þáttur: Greene Machine |
2009-2011 | Bored to Death | George Christopher | 21 þættir |
2011- | CSI: Crime Scene Investigation | D.B. Russell | 12 þættir til þessa |
American Comedy verðlaunin
Emmy verðlaunin
Golden Globes verðlaunin
Satellite verðlaunin
Screen Actors Guild verðlaunin
TV Guide verðlaunin
TV Land verðlaunin
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Ted Danson, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.