Sólveig Anspach: íslensk-frönsk kvikmyndagerðarkona (1960-2015)

Sólveig Anspach (8.

desember 1960 – 7. ágúst 2015) var íslensk-franskur kvikmyndaleikstjóri og handritshöfundur. Foreldrar hennar voru íslenski arkitektinn Högna Sigurðardóttir og hinn þýsk-rúmenski Gerald Anspach. Sólveig bjó og starfaði mestalla ævi sína í Frakklandi. Hún nam heimspeki og klíníska sálfræði í París, gekk síðan í kvikmyndaskólann La Fémis og útskrifaðist þaðan með gráðu í leikstjórn árið 1989. Kvikmynd hennar, Stormviðri, var sýnd á Kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2003. Sólveig lést úr brjóstakrabbameini þann 7. ágúst árið 2015, þá 54 ára.

Sólveig Anspach
Sólveig Anspach: íslensk-frönsk kvikmyndagerðarkona (1960-2015)
Mynd af Sólveigu Anspach eftir Önnu Rouker.
Fædd8. desember 1960
Dáin7. ágúst 2015 (54 ára)
Drôme, Frakklandi
ÞjóðerniÍslensk og frönsk
MenntunFÉMIS

Æviágrip

Faðir Sólveigar, Gerald Anspach, var flóttamaður frá Þýskalandi nasismans sem flutti ásamt fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna. Þegar hann var 18 ára skráði hann sig í bandaríska herinn og tók þátt í innrásinni í Normandí árið 1944. Gerald hlaut bandarískan ríkisborgararétt og hlaut styrk til náms sem hann ákvað að nýta sér til að ganga í Beaux-Arts-skólann í París. Í París kynntist hann Högnu Sigurðardóttir, nemanda í arkitektúr sem varð síðar ein af þekktari íslenskum arkitektum. Gerald og Högna áttu eftir að eignast tvær dætur: Sólveigu og Þórunni.

Sólveig Anspach fæddist á Íslandi en nam sálfræði í París. Hún hlaut inngöngu í kvikmyndaháskólann FÉMIS eftir þrjár umsóknir. Hún útskrifaðist þaðan með gráðu í kvikmyndaleikstjórn árið 1989.

Á tíunda áratugnum settist Sólveig að í Seine-Saint-Denis á mörkum Montreuil og Bagnolet. Hún hreifst mjög að þessum slóðum vegna fjölbreytninnar sem þar var að finna.

Árið 1994, á meðan Sólveig var ófrísk af fyrsta barni sínu, greindist hún með brjóstakrabbamein. Hún átti í erfiðri baráttu við sjúkdóminn en lifði af og fæddi dótturina Clöru. Fyrsta kvikmynd Sólveigar í fullri lengd, Haut les cœurs!, var gerð með sjálfsævisögulegu ívafi og fjallaði um konu sem greinist með brjóstakrabbamein á meðan hún er ólétt.

Árið 2001 hlaut Sólveig François-Chalais-verðlaunin í keppninni Quinzaine des Réalisateurs í Cannes fyrir heimildamyndina Made in the USA, sem fjallaði um dauðarefsingar í Bandaríkjunum.

Kvikmyndin Stormviðri var sýnd meðal mynda í verðlaunaflokkinum Un certain regard á Cannes-kvikmyndahátíðinni árið 2003. Í myndinni stillti Sólveig upp tveimur „yfirþyrmandi persónum“ sem leiknar voru af Élodie Bouchez og Diddu Jónsdóttur. Þær Didda áttu eftir að vinna saman að þremur kvikmyndum sem mynda saman þríleik; Skrapp út (2007), Queen of Montreuil (2012) og Sundáhrifin (2015).

Árið 2008 leikstýrði Sólveig franskri sjónvarpsmynd fyrir France 2 um byltingarkonuna Louise Michel þar sem Sylvie Testud lék aðalhlutverkið. Í myndinni Lulu femme nue starfaði Sólveig í annað sinn með Karin Viard, sem hafði verið aðalleikonan í fyrstu mynd Sólveigar, Haut les cœurs !.

Sólveig lést þann 7. ágúst árið 2015 í Drôme eftir að krabbamein hennar tók sig upp að nýju. Tveimur árum eftir dauða sinn vann Sólveig Cesar-verðlaunin fyrir besta frumsamda handritið með kvikmyndinni Sundáhrifunum.

Tilvísanir

Sólveig Anspach: íslensk-frönsk kvikmyndagerðarkona (1960-2015)   Þetta æviágrip sem tengist kvikmyndum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

Högna SigurðardóttirKvikmyndahátíðin í Cannes

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Vín (Austurríki)Forseti AlþingisStandpínaÁrmann JakobssonIPadReykjavíkurdæturStuðmennLönd eftir stjórnarfariForsetakosningar á Íslandi 1996Listi yfir íslenska málshættiListi yfir landsnúmerHalla Hrund LogadóttirÓmar RagnarssonSamræði gegn náttúrulegu eðliMarxismiTrjónupeðlaFyrsti vetrardagurMorfísÍslendingasögurKóreskaGísli á UppsölumRíkisstjórnir Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs 2009-2013Listi yfir þjóðvegi á ÍslandiÁstralíaRjúpaTómas GuðmundssonBrynjólfur SveinssonGDRNLandsbankinnBlýanturFyrsti maíRéttindi hinsegin fólks eftir löndumSöngvakeppnin 2024PáskarWayback MachineSpeltAkurgæsJón GunnarssonReykjavíkHvítasunnudagurÆvintýri TinnaSvampur SveinssonHaugsnesbardagiHöfuðborgarsvæðiðBundesligaNýja-SjálandProppéArnarsetur (skáli)JesúsAlþingiskosningar 2013Sýslur á ÍslandiViðar Örn KjartanssonSjávarföllÍslenska kvennalandsliðið í knattspyrnuEnsími (hljómsveit)TenerífeVíkingarPergamonEdinborgAfstæðiskenninginMoldóva1. deild karla í knattspyrnu 1967LokiÓlafur Darri ÓlafssonSigurjón KjartanssonÍslensk krónaDíonýsosLaufey (mannsnafn)Listi yfir risaeðlurListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaHernám ÍslandsMorð á ÍslandiAlþjóðlegur baráttudagur kvennaLondon🡆 More