Sumarólympíuleikarnir 2012 voru haldnir í London í Englandi dagana 27.
júlí til 12. ágúst 2012. Þetta voru þrítugustu sumarólympíuleikarnir sem haldnir hafa verið. London var kosin til að halda leikana þann 6. júlí 2005 og verður þar með fyrsta borgin til að halda þá þrisvar sinnum. Áður voru leikarnir haldnir þar árin 1908 og 1948. Leikarnir áttu sér stað aðallega í Stratford, svæði í Austur-London sem er nú í endurbyggingu. Einkennislag leikanna var lagið Survival, samið og flutt af ensku hljómsveitinni Muse. Leikarnir voru opnaðir opinberlega 27. júlí 2012 með setningarathöfn á Ólympíuleikvanginum.
Eftirfarandi borgir buðust til þess að halda leikana. Kosningin fór fram í Singapúr þann 6. júlí 2005. Hún fór þannig fram að sú borg sem fékk fæst atkvæði eftir hverja umferð féll úr leik, þangað til aðeins ein borg var eftir. Taflan hér fyrir neðan sýnir atkvæðafjölda borganna eftir hverja umferð kosninganna:
Sumarólympíuleikarnir 2012 | ||||||
---|---|---|---|---|---|---|
Borg | Land | 1. umferð | 2. umferð | 3. umferð | 4. umferð | |
London | 22 | 27 | 39 | 54 | ||
París | 21 | 25 | 33 | 50 | ||
Madrid | 20 | 32 | 31 | — | ||
New York | 19 | 16 | — | — | ||
Moskva | 15 | — | — | — |
Sumarólympíuleikarnir áttu sér stað víðs vegar um London. Að hluta voru notuð mannvirki sem voru til og að hluta ný og tímabundin mannvirki. Yfirlýst markmið er að skilja ekki eftir hvíta fíla (stór mannvirki sem enginn nýtir eftir leikana). Ólympíuleikvangurinn og ólympíuþorpið eru í Stratford í Austur-London þar sem eignarnám eldri bygginga sem voru rifnar niður, þetta vakti nokkurra deilu við fyrri eigendur og íbúa. Ólympíuleikvangurinn var hannaður þannig að hann rúmi 80.000 gesti fyrir opnunar- og lokahátíðir ólympíuleikanna en var breytt eftir leikana í 25.000 sæta íþróttaleikvang.
Í ákveðnum greinum (siglingum, kajak- og kanóróðri, kappróðrum og fjallahjólabruni) var keppt utan London. Leikir í undanriðlum í knattspyrnu voru leiknir á frægum knattspyrnuvöllum í Glasgow, Manchester, Cardiff og Newcastle.
Leikvangur | Íþróttir | Sæti | Tilv.December | |
---|---|---|---|---|
Ólympíuleikarnir | Ólympíuleikar fatlaðra | |||
Aquatics Centre | dýfingar, nútímafimmtarþraut (sund), sund, listsund | sund | 17.500 | |
Basketball Arena | körfuknattleikur, handbolti (lokaumferð) | hjólastólaruðningur, hjólastólakörfubolti | 12.000 (ÓL) 10.000 (ÓLF) | |
BMX-braut | hjólreiðar (BMX) | — | 6.000 (tímabundið) | |
Eton Manor | — | hjólastólatennis | 10.500 | |
Copper Box | skylmingar, handbolti, nútímafimmtarþraut (skylmingar) | markbolti | 7.000 | |
London Velodrome | hjólreiðar (brautarkeppni) | hjólreiðar (brautarkeppni) | 6.000 | |
Riverbank Arena | hokkí | knattspyrna (sjö í liði), knattspyrna (fimm í liði) | 16.000 | |
Ólympíuleikvangurinn | frjálsar íþróttir, hátíðir (opnunarhátíð/lokahátíð) | frjálsar íþróttir, hátíðir (opnunarhátíð/lokahátíð) | 80.000 | |
Water Polo Arena | sundknattleikur | — | 5.000 |
Á Ólympíusvæðinu eru líka:
Árbakkasvæðið eru fjórir íþróttavellir á Thames Gateway-svæðinu beggja vegna árinnar Thames:
Leikvangur | Íþróttir | Sæti | Tilv. | |
---|---|---|---|---|
Ólympíuleikarnir | Ólympíuleikar fatlaðra | |||
ExCeL | hnefaleikar, skylmingar, júdó, borðtennis, tækvondó, lyftingar, fjölbragðaglíma | boccia, júdó, kraftlyftingar, borðtennis, blak (sitjandi), hjólastólaskylmingar | frá 5.000 til 10.000 | |
Greenwich Park | hestamennska, nútímafimmtarþraut (hestamennska, hlaup, skotfimi) | hestamennska | 23.000 (ÓL) 6.000 (ÓLF) | |
The O2 Arena | körfubolti (úrslitaleikir), fimleikar (áhaldafimleikar, trampólín) | hjólastólakörfubolti | 20.000 (ÓL) 18.000 (ÓLF) | |
Royal Artillery Barracks | skotfimi | bogfimi, skotfimi | 7.500 (ÓL) 5.000 (ÓLF) |
Miðsvæðið telur alla aðra íþróttaaðstöðu á Stór-Lundúnasvæðinu. Þessir staðir eru dreifðir víða um Mið-London og Vestur-London:
Leikvangur | Íþróttir | Sæti | Tilv. | |
---|---|---|---|---|
Ólympíuleikarnir | Ólympíuleikar fatlaðra | |||
All England Lawn Tennis and Croquet Club | tennis | — | 30.000 | |
Earls Court Exhibition Centre | blak (innanhúss) | — | 15.000 | |
Horse Guards Parade | blak (strandblak) | — | 15.000. | |
Hyde Park | sund (maraþon), þríþraut | — | 3.000. | |
Lord's Cricket Ground | bogfimi | — | 6.500 (tímabundið) | |
Maraþonbrautin | frjálsar íþróttir (maraþon) | — | Ótilgreint | |
Regent's Park | hjólreiðar (götuhjólreiðar) | – | Ótilgreint | |
Wembley Arena | badminton, fimleikar (hópfimleikar) | — | 6.000 | |
Wembley Stadium | knattspyrna (úrslitaleikir) | — | 90.000 |
Fjórir leikvangar verða utan við Stór-Lundúnasvæðið:
Leikvangur | Staðsetning | Íþróttir | Sæti | Tilv. | |
---|---|---|---|---|---|
Ólympíuleikarnir | Ólympíuleikar fatlaðra | ||||
Brands Hatch | Swanley, Kent | — | götuhjólreiðar | ||
Dorney Lake | Dorney, Buckinghamshire | kanóróður (sprettur), kappróður | kappróður | 30.000 hámark (ÓL) 6.000 (ÓLF) | |
Hadleigh Farm | Hadleigh, Essex | hjólreiðar (fjallahjólreiðar) | — | 20.000 (þ.á.m. 3.000 í sæti) | |
Lee Valley White Water Centre | Waltham Cross, Hertfordshire | kanóróður (svig) | — | 12.000 hámark | |
Weymouth and Portland National Sailing Academy | Isle of Portland, Dorset | siglingar | siglingar | 4.600 (ÓL) 17.400 (ÓLF) |
Leikvangur | Staðsetning | Sæti | Tilv. |
---|---|---|---|
City of Coventry Stadium | Coventry, Englandi | 32.500 | |
Hampden Park | Glasgow, Skotlandi | 52.000 | |
Millennium Stadium | Cardiff, Wales | 74.600 | |
Old Trafford | Manchester, Englandi | 76.000 | |
St James' Park | Newcastle upon Tyne, Englandi | 52.409 |
Íslendingar tryggðu sér keppnisrétt í handknattleikskeppni ÓL þriðja skiptið í röð með því að fara í gegnum umspilsleiki í apríl sama ár. Tólf lið kepptu í tveimur sex liða riðlum þar sem fjögur efstu lið úr hvorum komust í fjórðungsúrslit. Íslenska liðið sigraði tvo fyrstu leiki sína, gegn Argentínu og Túnis, eins og búist hafði verið við. Því næst tóku við tveir hnífjafnir sigrar í hörkuleikjum gegn Svíum og Frökkum áður en riðlinum lauk með auðveldum sigri gegn liði heimamanna. Ísland hreppti efsta sætið í riðlinum og mætti Ungverjum í fjórðungsúrsltunum. Þar varð liðið fyrir sárum vonbrigðum þegar Ungverjarnir unnu 34:33 í framlengdum leik. Íslenska liðinu var í kjölfarið úthlutað fimmta sætinu í keppninni.
Mótherjar Íslendinga í undanúrslitum hefðu orðið Svíar sem komu nokkuð á óvart og slógu Dani úr leik. Sænska liðið komst alla leið í úrslitaleikinn en tapaði þar 22:21 fyrir Frökkum í miklum varnarleik.
Auk handboltalandsliðsins sendu Íslendingar þrettán íþróttamenn til keppni á leikunum.
Þrír keppendur tóku þátt í frjálsum íþróttum, þar sem Ásdís Hjálmsdóttir náði 11. sæti í spjótkasti. Íslendingar áttu sitthvorn keppandann í júdó, badminton og skotfimi. Sjö sundmenn voru skráðir til leiks en ekkert þeirra komst upp úr fyrstu umferð.
Yfir 10.000 keppendur frá 204 löndum tóku þátt í leikunum.
OH | Opnunarhátíð | ● | Keppnir | 1 | Úrslitakeppnir | LH | Lokahátíð |
Júlí / Ágúst | 25 Mið | 26 Fim | 27 Fös | 28 Lau | 29 Sun | 30 Mán | 31 Þri | 1 Mið | 2 Fim | 3 Fös | 4 Lau | 5 Sun | 6 Mán | 7 Þri | 8 Mið | 9 Fim | 10 Fös | 11 Lau | 12 Sun | Viðburðir |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Hátíðir | OH | LH | ||||||||||||||||||
Badminton | ● | ● | ● | ● | ● | ● | 1 | 2 | 2 | 5 | ||||||||||
Blak | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | 1 | 1 | ● | 1 | 1 | 4 | |||
Bogfimi | ● | 1 | 1 | ● | ● | ● | 1 | 1 | 4 | |||||||||||
Borðtennis | ● | ● | ● | ● | 1 | 1 | ● | ● | ● | ● | 1 | 1 | 4 | |||||||
Dýfingar | 1 | 1 | 1 | 1 | ● | ● | 1 | ● | 1 | ● | 1 | ● | 1 | 8 | ||||||
Fimleikar | ● | ● | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 3 | 3 | 4 | ● | ● | 1 | 1 | 18 | ||||
Frjálsar íþróttir | 2 | 5 | 7 | 5 | 4 | 4 | 5 | 6 | 8 | 1 | 47 | |||||||||
Glíma | 2 | 3 | 2 | 2 | 2 | 2 | 3 | 2 | 18 | |||||||||||
Handbolti | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | 1 | 1 | 2 | |||
Hestamennska | ● | ● | ● | 2 | ● | ● | ● | ● | 1 | 1 | 2 | 6 | ||||||||
Hjólreiðar | 1 | 1 | 2 | 2 | 2 | 1 | 1 | 1 | 3 | ● | ● | 2 | 1 | 1 | 18 | |||||
Hnefaleikar | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | 3 | ● | 5 | 5 | 13 | |||
Hokkí | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | 1 | 1 | 2 | |||||
Júdó | 2 | 2 | 2 | 2 | 2 | 2 | 2 | 14 | ||||||||||||
Kajak- og kanóróður | ● | ● | 1 | 1 | 2 | ● | ● | 4 | 4 | ● | 4 | 16 | ||||||||
Kappróður | ● | ● | ● | ● | 3 | 3 | 4 | 4 | 14 | |||||||||||
Knattspyrna | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | 1 | ● | 1 | 2 | ||||||
Ólympískar Lyftingar | 1 | 2 | 2 | 2 | 2 | 2 | 1 | 1 | 1 | 1 | 15 | |||||||||
Körfubolti | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | 1 | 1 | 2 | |||
Listsund | ● | ● | 1 | ● | 1 | 2 | ||||||||||||||
Nútímafimmtarþraut | 1 | 1 | 2 | |||||||||||||||||
Siglingar | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | 2 | 2 | 2 | 1 | 1 | 1 | 1 | 10 | |||||
Skotfimi | 2 | 2 | 1 | 1 | 1 | 1 | 2 | 2 | 1 | 2 | 15 | |||||||||
Skylmingar | 1 | 1 | 1 | 1 | 2 | 1 | 1 | 1 | 1 | 10 | ||||||||||
Sund | 4 | 4 | 4 | 4 | 4 | 4 | 4 | 4 | 1 | 1 | 34 | |||||||||
Sundknattleikur | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | 1 | ● | 1 | 2 | |||||
Taekwondo | 2 | 2 | 2 | 2 | 8 | |||||||||||||||
Tennis | ● | ● | ● | ● | ● | ● | ● | 2 | 3 | 5 | ||||||||||
Þríþraut | 1 | 1 | 2 | |||||||||||||||||
Heildarfjöldi | 12 | 14 | 12 | 15 | 20 | 18 | 22 | 25 | 23 | 18 | 21 | 17 | 22 | 16 | 32 | 15 | 302 | |||
Uppsafnaður fjöldi | 12 | 26 | 38 | 53 | 73 | 91 | 113 | 138 | 161 | 179 | 200 | 217 | 239 | 255 | 287 | 302 | ||||
Júlí / Ágúst | 25 Mið | 26 Fim | 27 Fös | 28 Lau | 29 Sun | 30 Mán | 31 Þri | 1 Mið | 2 Fim | 3 Fös | 4 Lau | 5 Sun | 6 Mán | 7 Þri | 8 Mið | 9 Fim | 10 Fös | 11 Lau | 12 Sun | Viðburðir |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Sumarólympíuleikarnir 2012, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.