Steinunn Finnsdóttir

Steinunn Finnsdóttir (f.

1640 eða 1641, d. eftir 1710) var íslenskt skáld. Hún er fyrsta nafngreinda íslenska konan sem rímnaflokkar eru til eftir; Hyndlu rímur og Snækóngs rímur. Einnig eru varðveitt eftir hana vikivakakvæði, lausavísur og kvæði um íslenska fornkappa.

Efniviðurinn bæði í Hyndlu rímum og Snækóngs rímum er fenginn úr þjóðsögum. Í báðum tilfellum eru varðveitt sagnakvæði undir ljúflingslagi um sama efni og talið er að Steinunn hafi þekkt þau og ort út af þeim. Báðir rímnaflokkarnir fjalla um konur sem eru hnepptar í álög; önnur verður að hundi en hin að karlmanni.

Í formála að útgáfu rímnanna 1950 taldi Bjarni Vilhjálmsson að þær væru "sviplítill og tilþrifalaus skáldskapur, stórlýtalítill eða smáhnyttilegur, þegar bezt lætur, en á köflum lítt smekklegur leirburður." Sumir seinni fræðimenn hafa metið Steinunni meira og telur Bergljót Kristjánsdóttir að verk hennar marki þáttaskil í íslenskum rímnakveðskap - sérstaklega séu mansöngvar hennar frumlegir og gæti þar samfélagsgagnrýni.

Heimildir

  • Bergljót Kristjánsdóttir (1996). „Gunnlöð ekki gaf mér neitt / af geimsludrykknum forðum ...“ í Guðamjöður og Arnarleir, Sverrir Tómasson ritstýrði, bls. 165-219. Reykjavík: Háskólaútgáfan.
  • Steinunn Finnsdóttir (Bjarni Vilhjálmsson bjó til prentunar) (1950). Rit Rímnafélagsins III: Hyndlu rímur og Snækóngs rímur. Reykjavík: Rímnafélagið.

Tags:

164016411710VikivakiÍsland

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

VesturfararVinstrihreyfingin – grænt framboðPersónufornafnSniglarJórdaníaListi yfir risaeðlurGuðni Th. JóhannessonListi yfir íslensk skáld og rithöfundaGagga JónsdóttirJarðskjálftar á ÍslandiLandvætturFjalla-EyvindurJóhannes Páll 1.Handknattleikur á sumarólympíuleikunum 2012 - keppni í karlaflokkiMarðarættBergþór PálssonHarmleikurinn á HillsboroughListi yfir íslensk póstnúmerBríet BjarnhéðinsdóttirElisabeth HarnoisFlateyriRadioheadRússneska rétttrúnaðarkirkjanSumarólympíuleikarnir 1920Sigurður Ingi JóhannssonKirk DouglasShunsuke NakamuraEngeyjarættSteinbíturÞörungarKennimyndHernám ÍslandsEignarfornafnHalla TómasdóttirBubbi MorthensEvrópaÁsta SigurðardóttirHjaltlandseyjarFiann PaulElfar AðalsteinsSiðmenningHávamálÁRíkisútvarpiðSuðurkóreskt vonnStefán MániRétt röksemdafærslaHáhyrningurÞeófrastosListi yfir markahæstu og leikjahæstu knattspyrnumennLokiDaniilViktoría BretadrottningBrennu-Njáls sagaÝmirSuðvesturkjördæmiSkátahreyfinginAston VillaÁrnessýslaListi yfir fugla ÍslandsOktóberbyltinginXabi AlonsoGaflkænaKörfuknattleikurAndrés Önd14. aprílÐFæreyjarÁstríkur og víðfræg afrek hansÞröstur Leó GunnarssonJón Þór BirgissonKanaríeyjarFlóðbylgjan í Indlandshafi 2004Jón Páll SigmarssonBreiðafjörðurUllurAnnað ráðuneyti Bjarna Benediktssonar🡆 More