Steina And Woody Vasulka

Steina og Woody Vasulka eru brautryðjendur í vídeólist á heimsvísu.

Þau hafa verið búsett um árabil í Bandaríkjunum þótt bæði séu íslenskir ríkisborgarar. Steina [Steinunn Briem Bjarnadóttir (1940)] er fædd og uppalin í Reykjavík en sótti framhaldsnám í fiðluleik til Prag og dvaldist þar árin 1959 til 1965. Þar kynntist hún verðandi eiginmanni sínum, verkfræðingnum og kvikmyndagerðarmanninum Woody [Bohuslav] Vasulka (1937). Árið 1968 fékk Woody íslenskan ríkisborgararétt og ári síðar voru þau búin að koma sér fyrir í New York, þar sem þeirra beið að taka virkan þátt í þróun hinnar alþjóðlegu vídeóbyltingar sem þá var í burðarliðnum. Árið 1971 stofnuðu þau The Kitchen í Greenwich Village, á Manhattan, þekktustu og virtustu margmiðlunarmiðstöð veraldar. Vorið 1973 yfirgáfu Steina og Woody New York-borg og settust að í Buffalo, þar sem þau gegndu prófessorsstöðu við SUNY, fyrstu háskóladeild heims í praktískum margmiðlunarfræðum. Árið 1980 fluttu þau suður til Santa Fe í Nýju-Mexíkó, þar sem þau búa enn og starfa. Þann 16. október 2014 opnaði Vasulka stofa í Listasafni Íslands.

Steina And Woody Vasulka
Steina (til hægri) og Woody Vasulka

Vasulka-stofa er miðstöð fyrir margmiðlunarlist á Íslandi, með megináherslu á varðveislu, rannsóknir og kynningu á verka- og heimildasafni Steinu og Woodys Vasulka. Vasulka-stofa er sett á stofn í samstarfi Listasafns Íslands og Vasulka Inc. og er undirdeild Listasafns Íslands. Með stofnun Vasulka-stofu beinir Listasafn Íslands athygli að varðveislu vídeólistar sem hefur hingað til skort upp á að hugað sé vel að. Sem höfuðsafn á sviði myndlistar gegnir Listasafn Íslands lykilhlutverki í varðveislu íslenskrar myndlistar og á það ekki síður við um vídeóverk og margmiðlunarlist en þá list sem unnin er með hefðbundnari tækni.

Tenglar

  • www.vasulka.org

Tags:

New York-borgSanta Fe (Nýju Mexíkó)

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

TöluorðMorð á ÍslandiHeyr, himna smiðurJúanveldiðLoftbelgurHæstiréttur ÍslandsKapítalismiÍslenska stafrófiðMo-DoColossal Cave AdventureÞórshöfn (Langanesi)Svampur SveinssonSkuldabréfStefán MániFiðrildiJósef StalínFuglLokbráUpplýsinginLögreglan á ÍslandiGarðar SvavarssonTinSigmundur Davíð GunnlaugssonKrýsuvíkGylfi Þór SigurðssonPóstmódernismiÍrski lýðveldisherinnÍtalíaTölfræðiHollenskaIndónesíaÓlafur Darri ÓlafssonVafrakakaListi yfir morð á Íslandi frá 1874–1969Helga ÞórisdóttirAustur-ÞýskalandEinokunarversluninSiðblindaAtlantshafsbandalagiðFIFOPatreksfjörðurBríet BjarnhéðinsdóttirÞorsteinn GylfasonListi yfir íslensk póstnúmerEiríkur rauði ÞorvaldssonEvrópusambandiðÁstandiðIndianaSjálandSjálfbærniPíkaLondonKirkja sjöunda dags aðventistaDiskurHelsinkiTeboðið í BostonIngólfur ArnarsonForsetakosningar á Íslandi 1980KaupmannahöfnSteinn Ármann MagnússonBankahrunið á ÍslandiKnattspyrnufélagið ValurSaybiaStúdentaráð Háskóla ÍslandsGrétar Rafn SteinssonGuðni Th. JóhannessonFilippseyjarListi yfir þjóðvegi á ÍslandiOrkustofnunHamskiptinKváradagurIndlandshaf🡆 More