Skosku hálöndin eru fjöllótt svæði í Skotlandi.
Svæðið nær yfir norðvestur helming landsins, en mörkin eru ekki skýr í suðri og austri. Hálöndin eru strjálbýl sökum fjölmargra fjallgarða sem gnæfa yfir svæðinu. Hæstu fjöll Bretlands eru í skosku hálöndunum, eins og Ben Nevis sem er hæst. Náttúrufegurð er þar víða mikil.
Á 18. öld fór fólki að fækka mikið í hálöndunum. Hefðbundnir lifnaðarhættir voru bannaðir eftir jakobísku uppreisnina 1745, og olli það fyrstu bylgju mannfækkunar. Nauðungarflutningar fólks af svæðinu (Highland Clearances) og flutningur í þéttbýli með iðnbyltingunni leiddu líka til mannfækkunar. Þéttleiki byggðar í hálöndunum er minni en í Svíþjóð, Noregi, Papúa Nýju-Gíneu og Argentínu.
Á fyrri öldum voru Hálöndin nær algelískt svæði, en markvisst var unnið að því að berja gelískuna niður. Hún lifir þó enn norðvestan til á svæðinu og á Suðureyjum, og hefur fengið ákveðna viðurkenningu á síðari árum.
Höfuðborg svæðisins er Inverness.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Skosku hálöndin, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.