Silfurþinur: Trjátegund í flokki barrtrjáa

Silfurþinur, fræðiheiti Abies amabilis, er tegund af þini frá Kyrrahafsströnd norðvestur Norður-Ameríka, þar er hann á Pacific Coast Ranges og Fossafjöllum frá suðaustasta hluta Alaska, gegn um vestur Bresku Kólumbíu, Washington og Oregon, til lengst norðvestur í Kaliforníu.

Hann vex frá sjávarmáli til 1500metra hæð á norðurhluta svæðisins, og í 1000 til 2300 metra hæð á suðurhluta svæðisins, alltaf í tempruðum regnskógum með tiltölulega mikilli úrkomu og svölum, rökum sumrum. Vex oft með Degli og syðst á útbreiðslusvæðinu, Aesculus californica.

Pacific silver fir
Barr silfurþins séð að ofan
Barr silfurþins séð að ofan
Ástand stofns
Vísindaleg flokkun
Ríki: Jurtaríki (Plantae)
Fylking: Berfrævingar (Pinophyta)
Flokkur: Barrtré (Pinopsida)
Ættbálkur: Pinales
Ætt: Þallarætt (Pinaceae)
Ættkvísl: Þinur (Abies)
Tegund:
A. amabilis

Tvínefni
Abies amabilis
Douglas ex J.Forbes
Útbreiðslusvæði silfurþins
Útbreiðslusvæði silfurþins

Lýsing

Silfurþinur: Lýsing, Nytjar, Tilvísanir 
Börkur silfurþins
Silfurþinur: Lýsing, Nytjar, Tilvísanir 
Nærmynd af sprota að neðan, hæring sést og hvítar loftaugarákir

Þetta er stórt sígrænt tré sem verður 30 til 45 metra hátt, einstöku sinnum 72 metrar, með stofnþvermál að 1.2 metruma, einstöku sinnum 2.3 metrar. Börkurinn á yngri trjám er ljósgrár, þunnur og þakinn kvoðublöðrum. Á eldri trjám dökknar hann og myndar hreistur og sprungur. Barrið er nálarlaga, flatt, 2 til 4.5 sm langt og 2 mm breitt og 0.5 mm þykkt, matt dökk-grænt að ofan, og með tvær hvítar loftaugarákir að neðan, og lítið eitt sýlt í endann. Barrið er í spíral eftir sprotanum, en það er breytilega undið neðst svo þau liggja flöt til hvorrar hliðar og ofan á sprotanum, með engin undir. Sprotarnir eru rauðgulir með þétta flauelskennda hæringu. Könglarnir eru 9 til 17 sm langir og 4 til 6 sm breiðir, dökk purpurabláir fyrir þroska; hreisturblöðkurnar eru stuttar, og faldar í lokuðum könglinum. Vængjuð fræin losna er köngullinn sundrast við þroska um 6 til 7 mánuðum eftir frjóvgun. Silfurþinur er náskyldur gljáþini A. mariesii frá Kyrrahafsströnd Norður Ameríku, sem greinist frá silfurþin með aðeins styttra barri 1.5 til 2.5 sm og minni könglum: 5 til 11 sm langir.


Nytjar

Viðurinn er mjúkur og ekki sterkur; hann er notaður í pappírsmassa, flutnigskassa og annað ódýrt. Barrið hefur þægilegan ilm og er stundum notað í Jóla skreytingar, þar á meðal jólatré.

Honum er líka plantað sem yndistré í stórum görðum, þó að kröfur hans um svöl, rök sumur takmarki svæðin sem hann vex vel; velheppnaðar útplantanir utan útbreiðslusvæðisins eru helst í vestur Skotlandi og suður Nýja Sjálandi.

Tilvísanir

Ytri tenglar


Silfurþinur: Lýsing, Nytjar, Tilvísanir 
Wikilífverur eru með efni sem tengist
Silfurþinur: Lýsing, Nytjar, Tilvísanir   Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

Silfurþinur LýsingSilfurþinur NytjarSilfurþinur TilvísanirSilfurþinur Ytri tenglarSilfurþinurAlaskaBreska KólumbíaDegliFossafjöllFræðiheitiKaliforníaNorður-AmeríkaOregonWashington (fylki)

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Sigurður Ingi JóhannssonAdam SmithBrennu-Njáls sagaBrúðkaupsafmæliVottar JehóvaÍsafjörðurEyjafjallajökullUmsátrið um Kinsale26. marsGuðmundur Felix GrétarssonAzumanga DaiohDavíð StefánssonHerðubreiðIan HunterMargrét ÞórhildurHvannadalshnjúkurMeðalhæð manna eftir löndumPragGeðklofiTýrLoftþrýstingurÚrkomaBaldurSjálfstæðisflokkurinnFacebookSíldAlþingiskosningar 2016Lögbundnir frídagar á ÍslandiListi yfir morð á Íslandi frá 2000Steingrímur J. SigfússonMynsturForsetakosningar á Íslandi 1996Verg landsframleiðslaVísindavefurinnAlbert EinsteinSóley (mannsnafn)ÞýskalandKötturVestmannaeyjarKyn (líffræði)JerúsalemKnattspyrnufélagið Þróttur18. aprílVersalasamningurinnAlþingiskosningar 2021SameindKróatíaHvalirGrunnskólar á ÍslandiHrafntinnaForsetningArnar Þór JónssonFleirtalaKrímskagiKristján Þór JúlíussonFrosinnSíminnListi yfir íslensk póstnúmerLaddiAron CanBurknarÞjóðhátíð í VestmannaeyjumSundlaugar og laugar á ÍslandiBerkjubólgaEldgosin við Sundhnúksgíga 2023–2024Íþrótta- og Ólympíusamband ÍslandsAriel HenryÖrlygsstaðabardagiListi yfir íslensk skáld og rithöfundaHættir sagna í íslenskuUmmálKambhveljurHTML🡆 More