Rishi Sunak (fæddur 12.
maí">12. maí 1980 í Southampton) er breskur stjórnmálamaður og núverandi forsætisráðherra Bretlands. Hann hefur verið leiðtogi Breska íhaldsflokksins frá október 2022.
Rishi Sunak | |
---|---|
Forsætisráðherra Bretlands | |
Núverandi | |
Tók við embætti 25. október 2022 | |
Þjóðhöfðingi | Karl 3. |
Forveri | Liz Truss |
Fjármálaráðherra Bretlands | |
Í embætti 13. febrúar 2020 – 5. júlí 2022 | |
Forsætisráðherra | Boris Johnson |
Forveri | Sajid Javid |
Eftirmaður | Nadhim Zahawi |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 12. maí 1980 Southampton, Hampshire, Englandi |
Þjóðerni | Breskur |
Stjórnmálaflokkur | Íhaldsflokkurinn |
Maki | Akshata Murty (g. 2009) |
Börn | 2 |
Bústaður | Downingstræti 10 |
Háskóli | Oxford-háskóli (BA) Stanford-háskóli (MBA) |
Sunak lærði heimspeki, stjórnmálafræði og hagfræði við Oxford-háskóla og síðar MBA-viðskiptagráðu frá Stanford-háskóla í Kaliforníu. Hann starfaði meðal annars hjá Goldman-Sachs fjárfestingarbankanum eftir námsferilinn. Sunak hefur verið þingmaður frá 2015 og gegndi embætti fjármálaráðherra frá 2019 til 2020. Í júlí 2022 bauð hann sig fram til forsætisráðherra eftir að Boris Johnson sagði af sér en tapaði fyrir Liz Truss. Truss var ekki lengi í embætti og eftir stjórnarkreppu í október sama ár sagði hún af sér. Sunak hafði betur í leiðtogavali Íhaldsflokksins og varð fyrsti forsætisráðherra landsins af asískum ættum og sá yngsti síðan 1812.
Sunak er af indverskum ættum og er hindúi. Hann er giftur Akshata Murty, dóttur indversks milljarðamærings. Hjónin eru 222. ríkasta par Bretlands. Murty hefur verið gagnrýnd fyrir að telja erlendar tekjur af fyrirtækjum sínum ekki til skatts Í Bretlandi.
Fyrirrennari: Liz Truss |
| Eftirmaður: Enn í embætti |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Rishi Sunak, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.