Ragnheiður Jónsdóttir

Ragnheiður „yngri“ Jónsdóttir (f.

1646, d. 1715) var prófastsdóttir úr Vatnsfirði, dóttir séra Jóns Arasonar (f. 1606, d. 1673) og Hólmfríðar Sigurðardóttur konu hans.

Ragnheiður Jónsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir og Gísli Þorláksson Hólabiskup (1657-1684) ásamt tveimur fyrri konum Gísla, Gróu Þorleifsdóttur og Ingibjörgu Benediktsdóttur. Myndin máluð í Kaupmannahöfn 1684. Þessi mynd er fyrirmynd að myndinni á íslenska 5000 kr. seðlinum. Búnaður kvennanna er svartar hempur, hvítir faldar og barðahattar ofan á földunum.

Ragnheiður var ein tólf systkina og varð eiginkona tveggja biskupa á Hólum. Hún var þriðja kona (1674) Gísla Þorlákssonar og seinni kona Einars Þorsteinssonar (1696) en hann varð bráðkvaddur eftir aðeins eins mánaðar hjónaband. Ragnheiður þótti einn besti kvenkostur á Íslandi á sinni tíð og var mikilvirk hannyrðakona. Eftir að Ragnheiður varð ekkja, og fluttist frá Hólum, bjó hún langa hríð á Gröf á Höfðaströnd með Odd digra bróðir sinn sem ráðsmann. Ragnheiður tók nemendur í hannyrðanám, bæði meðan hún var biskupsfrú á Hólum 1674 til 1684, og einnig meðan hún bjó á Gröf.

Myndir af Ragnheiði prýða íslenska 5000 króna seðilinn. Reynt var að finna myndefni sem tengdist íslenskum konum og framlagi þeirra þegar kvennafrídagurinn var nýafstaðinn og kona, Vigdís Finnbogadóttir, orðin forseti Íslands og var Ragnheiður ein af þeim konum í Íslandssögunni sem heimildir eru um. Á framhlið seðilsins er Ragnheiður og fyrri maður hennar Gísli Þorláksson biskup ásamt tveimur fyrri konum Gísla. Á bakhlið seðilsins er Ragnheiður ásamt tveimur stúlkum við hannyrðir og til hliðar er fangamark úr sjónabók Ragnheiðar.

Stórt barokkmálverk sem Ragnheiður lét gera og sem varðveitt er á Þjóðminjasafninu er grunnurinn að mannamyndunum. Á seðlinum sést hún sitja í stól með kistusæti sem hún átti og nú er varðveittur í Þjóðminjasafninu, einnig heldur hún á sjónabók sem er til á safninu. Einnig er stuðst við og altarisklæði úr Laufáskirkju sem talið er hennar verk og með hennar fangamarki. Sjónabók, stóll, tvær fatakistur, trafaöskjur, að minstakosti tvö bréf og handskrifuð sálmabók merkt Ragnheiði hafa varðveist.

Heimildir

  • „Viðtal við Kristínu í tilefni sýningarinnar Tveir heimar“. Sótt 10. júlí 2006.
  • „Mynd af framhlið 5000 kr. seðils“. Sótt 10. júlí 2006.
  • „Mynd af bakhlið 5000 kr. seðils“. Sótt 10. júlí 2006.

Tags:

Hólmfríður SigurðardóttirJón Arason í VatnsfirðiVatnsfjörður (Ísafjarðardjúpi)

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

KristniOfurpaurVafrakakaRafmagnFiskurMagnús SchevingHollandKyn (málfræði)Flæmskt rauðölFilippseyjarFornaldarsögurRafmótstaðaGunnar ThoroddsenKleppsspítaliSumarMæðradagurinnEnglandJökulsá á FjöllumMeðalhæð manna eftir löndumWright-bræðurJúgóslavíaIndónesíaForsíðaForsetakosningar á Íslandi 2020SegulómunSjálfbærniFáni ÞýskalandsSkandinavíaKnattspyrnaSvínhvalirÍslensk sveitarfélög eftir sveitarfélagsnúmerumListi yfir fangelsi á ÍslandiKristján Þór JúlíussonDrangajökullAnn-Louise HansonAkranesLandselurÞorgerður Katrín GunnarsdóttirBrúttó, nettó og taraGaldrastafurSkriðdýrLýðræðiSívaliturnSjávarföllMiðflokkurinn (Ísland)Hefðarfrúin og umrenningurinnNjáll ÞorgeirssonSvala BjörgvinsdóttirEygló Harðardóttir (stjórnmálamaður)VerðbæturLaufey Lín JónsdóttirEldkeilaSeljalandsfossÚtvarp SagaKrímskagiHemúllinnJónas HallgrímssonBríet (söngkona)XXX RottweilerhundarHeyK-vítamínFornafnÍrlandÞjórsáBandaríkinÍslenski hesturinnHandknattleikur á sumarólympíuleikunum 2012 - keppni í karlaflokkiHallgrímur PéturssonListi yfir tinda á Íslandi eftir hæðVorListi yfir vötn á ÍslandiSakharov-verðlauninPíratarÞór (norræn goðafræði)🡆 More