Sjóræningjar á Karíbahafi er miðlunarsérleyfi í eigu Walt Disney Company.
Undir þessu merki eru skemmtigarðstæki, kvikmyndaröð og bækur, tölvuleikir og önnur útgáfa. Upphaflega voru sjóræningjarnir skemmtigarðsatriði í Disneylandi. Þetta var síðasta atriðið sem Walt Disney hannaði sjálfur. Það var opnað 18. mars 1967, þremur mánuðum eftir að hann lést. Sjóræningjaatriði með sama heiti hafa verið sett upp síðan í skemmtigarðinum Magic Kingdom og Disneylandi í Tókýó, París og Sjanghæ.
Eftir aldamótin 2000 hófu Walt Disney Pictures og Jerry Bruckheimer framleiðslu kvikmyndar sem byggðist á atriðinu í skemmtigörðunum. Sjóræningjar á Karíbahafi: Bölvun Svörtu perlunnar var frumsýnd árið 2003 og naut mikillar velgengni. Í kjölfarið fylgdu fjórar framhaldsmyndir; Sjóræningjar á Karíbahafi: Dauðs manns kista (2006), Sjóræningjar á Karíbahafi: Á heimsenda (2007), Pirates of the Caribbean: On Stranger Tides (2011) og Pirates of the Caribbean: Dead Men Tell No Tales (2017). Samhliða komu út tölvuleikir og bókaraðir ætlaðar ungum lesendum.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Sjóræningjar á Karíbahafi, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.