Miðjarðarhafið er innhaf sem tengist Atlantshafinu um Gíbraltarsund.
Hafið liggur að þremur heimsálfum; Evrópu í norðri, Asíu í austri og Afríku í suðri. Hafið er 2.5 milljón ferkílómetra að flatarmáli.
Nafnið Miðjarðarhaf kemur úr latínu mediterraneus (medius, miðja + terra, jörð). Rómverjar kölluðu það Mare Nostrum („okkar haf“).
Grikkir og Gyðingar til forna nefndu Miðjarðarhafið bara Hafið, þar sem það var eina heimshafið sem þeir þekktu á þeim tíma.
Saxar og Englar kölluðu það Wendelsæ („haf vandala“).
Miðjarðarhafið tengist Atlantshafi um Gíbraltarsund í vestri og Marmarahafi og Svartahafi um Bosporussund og Dardanellasund í austri. Súesskurðurinn, sem liggur gegnum Súeseiðið í Egyptalandi, tengir Miðjarðarhaf við Rauðahaf.
Í hafinu er gríðarlegur fjöldi eyja. Meðal þeirra stærstu eru:
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Miðjarðarhafið, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.