Marina Abramović

Marina Abramović (serbnesk kýrillíska: Марина Абрамовић, IPA: marǐːna abrǎːmoʋitɕ; fædd 30.

nóvember, 1946) er serbneskur konseptlistamaður, gjörningalistamaður, rithöfundur og kvikmyndagerðarkona. Hún fæst við líkamslist, þollist og feminíska list sem fjalla um tengsl flytjanda og áhorfenda, mörk líkamans og möguleika hugans. Abramović hefur talað um sjálfa sig sem „ömmu gjörningalistarinnar“ eftir yfir fjögurra áratuga feril. Hún var frumkvöðull í að gera áhorfendur að þátttakendum í verkum sínum, með áherslu á sársauka, blóð og mörk líkamans. Árið 2007 stofnaði hún gjörningalistastofnunina Marina Abramović Institute.

Marina Abramović
Marina Abramović árið 2012.

Meðal þekktustu verka hennar eru Rhythm 0 frá 1974 þar sem hún stóð hreyfingarlaus og áhorfendur máttu gera hvað sem þeir vildu við hana með 72 hlutum sem raðað var á borð og vísuðu ýmist í ánægju eða sársauka, Cleaning the Mirror frá 1995 þar sem hún sat og þreif blóðug bein (sem var vísun í borgarastyrjöldina í Júgóslavíu), og The Artist is Present frá 2010 þar sem hún sat hreyfingarlaus við borð og áhorfendum var boðið að skiptast á að setjast gegnt henni. Frá 1976 til 1988 átti hún í nánu sambandi og samstarfi við þýska listamanninn Uwe Laysiepen (Ulay) þar sem verk þeirra snerust oft um mörk sjálfsins og líkamans. Síðasta verk þeirra saman var þolverk þar sem þau gengu eftir Kínamúrnum frá sitt hvorum enda, mættust í miðjunni og sögðu „bless“. Þá var sambandi þeirra í raun lokið nokkru fyrr.

Tilvísanir

Marina Abramović   Þessi myndlistagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

GjörningalistIPASerbía

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

NafnhátturÞór/KAStonehengeListi yfir fangelsi á ÍslandiHinrik 2. EnglandskonungurMiðaldirAlþingiskosningarOkkarínaÁlftUpplýsingatækniRagnar JónassonFrakklandOrlando BloomMikligarður (aðgreining)AðjúnktÞjóðleikhúsiðBrjóskfiskarElbaSkammstöfunKúrdistanUppstigningardagurArnar Þór JónssonGrunnskólar á ÍslandiRagnarökBjarkey GunnarsdóttirOrsakarsögnKólumbíaManntjónFrumlagHvannadalshnjúkurBjörn Sv. BjörnssonEinar Þorsteinsson (f. 1978)HvalfjarðargöngAron PálmarssonAri fróði ÞorgilssonBaldur ÞórhallssonTækniskólinnSádi-ArabíaHallgrímskirkjaBreskt pundJean-Claude JunckerISO 4217Yrsa SigurðardóttirKjördæmi ÍslandsXXX RottweilerhundarDaði Freyr PéturssonVanúatúIstanbúlObláta1. maíSæmundur fróði SigfússonVeikar sagnirFriðrik DórColossal Cave AdventureWiki FoundationMads MikkelsenIngvar E. SigurðssonBjór á ÍslandiWikivitnunÓlafur Ragnar GrímssonRómaveldiUmhverfisáhrifSúrefniUndirskriftalistiRefirDemi LovatoListi yfir þjóðvegi á ÍslandiSönn íslensk sakamálVestmannaeyjarJakobsvegurinnFornafnListi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999Kelly ClarksonFyrsti vetrardagurSeljalandsfossPáskadagur🡆 More