Malta: Eyríki í miðjarðarhafinu í Suður-Evrópu

Malta er lítið og þéttbýlt eyríki í Miðjarðarhafi á eyjaklasa milli Ítalíu í norðri og norðurstrandar Líbíu í suðri.

Malta er oft talin til Suður-Evrópu. Malta er um 80 km sunnan við Sikiley á Ítalíu og 333 km norðan við Líbíu. Opinber tungumál landsins eru maltneska og enska, en auk þess tala um 2/3 íbúa ítölsku. Malta hefur verið í Evrópusambandinu síðan 2004 og er minnsta Evrópusambandslandið, hvort sem horft er til mannfjölda eða stærðar.

Lýðveldið Malta
Repubblika ta' Malta
Fáni Möltu Skjaldarmerki Möltu
Fáni Skjaldarmerki
Kjörorð:
Virtute et constantia (latína)
Styrkur og þrautseigja
Þjóðsöngur:
L-Innu Malti
Staðsetning Möltu
Höfuðborg Valletta
Opinbert tungumál maltneska og enska
Stjórnarfar Lýðveldi

Forseti Myriam Spiteri Debono
Forsætisráðherra Robert Abela
Sjálfstæði frá Bretlandi
 • Yfirlýst 21. september 1964 
 • Lýðveldi 13. desember 1974 
Evrópusambandsaðild 1. maí 2004
Flatarmál
 • Samtals
 • Vatn (%)
186. sæti
316 km²
0,001
Mannfjöldi
 • Samtals (2021)
 • Þéttleiki byggðar
167. sæti
519.562
1.649/km²
VLF (KMJ) áætl. 2022
 • Samtals 28,486 millj. dala (148. sæti)
 • Á mann 54.647 dalir (24. sæti)
VÞL (2021) 0.918 (23. sæti)
Gjaldmiðill Evra (€)
Tímabelti UTC+1 (+2 á sumrin)
Þjóðarlén .mt
Landsnúmer +356

Á Möltu hefur verið mannabyggð að minnsta kosti frá 5900 f.o.t. Eyjarnar hafa verið á valdi ýmissa ríkja í gegnum tíðina þar sem þær hafa þótt eftirsóknarverðar vegna hernaðarlega mikilvægrar legu sinnar. Meðal þeirra sem ríkt hafa yfir Möltu eru Föníkumenn, Rómverjar, Grikkir, Arabar, Normannar, Aragónía, Jóhannesarriddarar, Frakkar og Bretar.

Íbúar Möltu eru rúmlega hálf milljón og búa á 316 km² landsvæði. Malta er 10. minnsta land heims og fjórða þéttbýlasta land heims. Höfuðborgin, Valletta, er með minnsta höfuðborgarsvæðið í Evrópusambandinu bæði miðað við stærð og mannfjölda. Samkvæmt gögnum frá Eurostat frá 2020 náði borgarsvæðið yfir alla eyjuna þar sem rúm 480 þúsund búa. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum, ESPON og Evrópuráðinu er Malta öll eitt samfellt þéttbýlissvæði. Malta er því æ oftar kölluð borgríki og höfð með á listum yfir borgir eða stórborgarsvæði.

Malta varð bresk krúnunýlenda árið 1813. Eyjan var áfangastaður breskra skipa og höfuðstöðvar breska Miðjarðarhafsflotans. Öxulveldin settust um eyjuna í síðari heimsstyrjöld og þar var mikilvæg flotastöð bandamanna fyrir hernaðaraðgerðir þeirra í Norður-Afríku og á Miðjarðarhafi. Breska þingið samþykkti Möltulögin árið 1964 sem veittu Möltu sjálfstæði frá Bretlandi, en með Elísabetu 2. sem drottningu. Landið varð lýðveldi árið 1974. Malta hefur verið aðili að Breska samveldinu og Sameinuðu þjóðunum frá því landið fékk sjálfstæði, og gerðist aðili að Evrópusambandinu árið 2004. Malta tók upp evruna árið 2008.

Kristnir menn hafa búið á Möltu frá því í frumkristni, en kristni var umborin á eyjunni þegar Arabar náðu henni á sitt vald á 9. öld. Árið 1091 hertóku svo Normannar eyjuna undir stjórn Hróðgeirs 1. Í dag er rómversk-kaþólsk trú ríkistrú í landinu, en samkvæmt stjórnarskrá Möltu er öllum tryggt trúfrelsi. Efnahagslíf Möltu reiðir sig að miklu leyti á ferðaþjónustu. Veðurfar á eyjunni er hlýrra en á flestum stöðum í Evrópu og þar er mikið um afþreyingu og sögulegar minjar, þar á meðal þrjár sem eru á Heimsminjaskrá UNESCO: Ħal Saflieni-grafhvelfingin, Valletta, og sjö steinhof sem eru með elstu byggingum heims sem enn standa.

Heiti

Uppruni heitisins „Malta“ er óviss og sá ritháttur sem er algengastur í dag er fenginn úr maltnesku. Algengasta skýringin er að orðið sé dregið af gríska orðinu μέλι meli „hunang“. Forn-Grikkir nefndu eyjuna Μελίτη Melite sem merkir „hunangssæt“, hugsanlega með vísun í einstakt hunang sem þar fékkst af einlendum býflugnastofni sem þar býr. Rómverjar nefndu eyjuna Melita sem er ýmist talið latnesk útgáfa af gríska heitinu eða af dóríska framburðinum Μελίτα. Nafnið kemur fyrir í fyrstu setningu Postulasögunnar í Nýja testamentinu (sem er skrifað á grísku), þannig að í fyrstu Biblíuþýðingum á íslensku til dæmis kemur það fyrir sem Melite. Í nútímaþýðingum er það yfirleitt skrifað „Malta“.

Önnur tilgáta um uppruna nafnsins er að það sé dregið af föníska orðinu Maleth „höfn“ sem vísar þá til hinna mörgu skipalægja sem þar finnast. Orðmyndin Malta kemur fyrst fyrir í Leiðalýsingu Antoníusar sem gæti verið frá 3. öld.

Saga

Malta: Heiti, Saga, Landfræði 
Hofið Mnajdra.

Menn hafa búið á Möltu frá því um 5900 f.o.t., eða síðan landnemar komu þangað á nýsteinöld og hófu þar landbúnað. Jötunsteinar eru ein merki um nýsteinaldarmenningu sem stóð á eyjunum í kringum 3600 f.o.t., eins og í steinhofunum Bugibba, Mnajdra, Ggantija og fleirum. Föníkumenn lögðu Möltu undir sig milli 800 og 700 f.o.t. og komu með nýtt tungumál og menningu. Þeir notuðu eyjarnar sem miðstöð fyrir landkönnun og verslun á Miðjarðarhafi þar til eftirmenn þeirra, Karþagómenn, biðu ósigur fyrir Rómaveldi árið 216 f.o.t. Malta varð þá municipium innan Rómaveldis.

Malta: Heiti, Saga, Landfræði 
Umsátrið mikla um Möltu árið 1565.

Eftir líklegar gripdeildir Vandala varð Malta hluti af Austrómverska keisaradæminu sem ríkti yfir eyjunum frá 4. öld til 9. aldar. Árið 870 réðust Aglabídar inn í Möltu. Óljóst er hvað varð um íbúa eyjanna eftir það, en í upphafi 2. árþúsundsins virðist Malta hafa verið numin af landnemum frá Sikiley sem þá var arabískt emírsdæmi. Þessir landnemar töluðu sikúlóarabísku.

Normannar bundu enda á yfirráð múslima og lögðu eyjuna undir sig árið 1091. Um 1249 hafði kristni aftur tekið yfir sem ríkjandi trúarbrögð. Eyjarnar voru hluti af Konungsríkinu Sikiley til ársins 1530 og voru um stutt skeið undir stjórn Angevína. Árið 1530 gaf Karl 5. keisari Jóhannesarriddurum eyjarnar með ótímabundnum leigusamningi.

Frakkar, undir Napoleon Bonaparte, hertóku eyjarnar árið 1798 og nokkrum árum síðar lögðu Bretar þær undir sig. Íbúar báðu þá Breta um að taka við stjórn eyjanna samkvæmt réttindaskrá sem kvað á um rétt íbúanna til að kjósa sér eigin konung ef breski konungurinn kysi að draga sig frá eyjunum. Samkvæmt Parísarsáttmálanum 1814 varð Malta bresk nýlenda. Íbúar höfnuðu sameiningu við Bretland árið 1956.

Árið 1964 varð Malta sjálfstætt ríki þann 21. september, sem síðan er haldinn hátíðlegur sem sjálfstæðisdagur Möltu. Samkvæmt stjórnaskrá frá 1964 var Elísabet 2. enn þjóðhöfðingi og landstjóri skipaður fulltrúi hennar. Þann 13. desember 1974 varð Malta að lýðveldi innan Breska samveldisins, þar sem forseti Möltu er þjóðhöfðingi. Síðustu bresku hermennirnir hurfu frá Möltu 31. mars árið 1979. Eftir það lýsti Malta því yfir að landið væri hlutlaust ríki. Malta gerðist aðili að Evrópusambandinu 1. maí 2004 og tók upp evru 1. janúar 2008.

Landfræði

Malta: Heiti, Saga, Landfræði 
Hæðakort af Möltu.
Malta: Heiti, Saga, Landfræði 
Landslag í kringum Mgarr.

Malta er eyjaklasi í miðju Miðjarðarhafi, austur af Túnis og norður af Líbíu, 80 km suður af ítölsku eyjunni Sikiley, en Möltusund er á milli þeirra. Aðeins þrjár stærstu eyjar Möltu eru byggðar: Malta, Gozo (Għawdex) og Comino (Kemmuna). Minni eyjarnar, eins og Filfla, Cominotto og St. Paul-eyja eru óbyggðar. Eyjarnar liggja á Möltugrunni og eru hæstu punktar á landbrú milli Sikileyjar og Norður-Afríku sem sökk þegar sjávarborð hækkaði í lok síðustu ísaldar. Eyjaklasinn er hluti af Afríkuflekanum og Malta var talin hluti af Norður-Afríku öldum saman.

Strendur eyjanna eru vogskornar og þar eru fjölmargar góðar hafnir. Landslagið einkennist af lágum hæðum með ræktarlönd á stöllum. Hæsti punkturinn er á fjallinu Ta' Dmejrek á eyjunni Möltu og er 253 metra hár, nálægt Dingli. Á Möltu eru engar ár eða lækir nema tímabundið þegar mikið rignir. Þó er ferskt vatn finnanlegt á stöku stað á eyjunni allt árið. Vatnsból er að finna við Baħrija, Imtaħleb og San Martin. Á Gozo er rennandi vatn að finna í Lunzjata-dalnum.

Stjórnmál

Stjórnsýslueiningar

Malta: Heiti, Saga, Landfræði 
  Miðhérað   Gozo-hérað   Norðurhérað   Suðausturhérað   Suðurhérað.

Frá 1993 hafa verið sveitarfélög á Möltu, sem byggist á Evrópusáttmála um sjálfstjórn sveitarfélaga. Landið skiptist í fimm héruð (þar sem Gozo er eitt hérað) og hvert hérað hefur sína eigin héraðsnefnd sem er milliliður milli sveitarfélaga og ríkisins. Héruðin skiptast í sveitarfélög sem eru núna 68 talsins (54 á Möltu og 14 á Gozo). Möltu er líka skipt í sex umdæmi (fimm á Möltu og eitt á Gozo) fyrir tölfræðiútreikninga.

Í hverju sveitarfélagi eru sveitarstjórnir með milli 5 og 13 sveitarstjórnarmenn, eftir því hversu fjölmennt það er. Sveitarstjórnin kýs sér bæjarstjóra og varabæjarstjóra og skipar bæjarritara sem fer með framkvæmdavaldið. Sveitarstjórnarmenn eru kosnir til 4 ára í senn. Kosningarétt hafa allir þeir sem hafa kosningarétt í þingkosningum auk allra borgara Evrópusambandsins sem búa á Möltu. Engar kosningar voru haldnar til 2012 vegna umbóta, en síðan þá hafa þær verið haldnar á tveggja ára fresti fyrir helming sveitarfélaga í senn.

Sveitarfélögin bera ábyrgð á viðhaldi og þrifum í sveitarfélaginu (þar á meðal viðgerðum á aukavegum), framfærslu fólks á ábyrgð sveitarfélagsins og söfnun rusls. Þau sjá líka um innheimtu fyrir ríkið og svara fyrir opinberar fyrirspurnir. Margir bæir og þorp á Möltu eiga sér systurborgir.

Skjaldarmerki Hérað Höfuðstaður Stærsta borg Stærð Íbúar (2014) Þéttleiki byggðar Stofnár
Malta: Heiti, Saga, Landfræði 
Miðhérað Möltu San Ġwann Birkirkara 23,6 km2 111.994 4700/km2 2009
Malta: Heiti, Saga, Landfræði 
Gozo-hérað Victoria Victoria 68,7 km2 37.342 540/km2 1993
Malta: Heiti, Saga, Landfræði 
Norðurhérað Möltu St. Paul's Bay St. Paul's Bay 112,9 km2 102.892 910/km2 2009
Malta: Heiti, Saga, Landfræði 
Suðausturhérað Möltu Valletta Żabbar 36,2 km2 99.301 2700/km2 2009
Malta: Heiti, Saga, Landfræði 
Suðurhérað Möltu Qormi Qormi 78,9 km2 93.897 1200/km2 2009

Efnahagslíf

Malta: Heiti, Saga, Landfræði 
Hlutfallsleg skipting útflutningsafurða Möltu árið 2019.

Hagkerfi Möltu er, ásamt hagkerfum 32 annarra landa, flokkað sem þróað hagkerfi af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Til ársins 1800 byggðist efnahagur Möltu á framleiðslu á bómull og tóbaks, og skipasmíðastöðvum. Þegar eyjarnar komust undir stjórn Breta varð Skipasmíðastöðin á Möltu að einni aðalundirstöðu efnahagslífsins vegna þjónustu við konunglega sjóherinn, sérstaklega í Krímstríðinu árið 1854. Herstöðin skapaði vinnu fyrir iðnaðarmenn og starfsfólk hersins.

Þegar Súesskurðurinn var opnaður árið 1869 varð mikill vöxtur í skipaumferð um hafnir Möltu, sem varð mikilvæg eldsneytis- og umskipunarhöfn. Undir lok 19. aldar tók efnahagslífinu hins vegar að hnigna og á 5. áratug 20. aldar var komin kreppa. Ein ástæða þess var að skip urðu stærri og þurftu síður að stoppa í höfnum á skipaleiðum til að taka eldsneyti.

Malta: Heiti, Saga, Landfræði 
Höfrungasýningin í sjávardýragarðinum á Möltu stendur undir stórum hluta af vergri landsframleiðslu eyjarinnar.

Árið 2019 eru helstu náttúruauðlindir Möltu sandsteinn, hagstæð staðsetning og há framleiðni mannaflans. Malta framleiðir aðeins um 20% af matvælaþörf sinni, býr yfir takmörkuðum vatnsbólum vegna þurrka á sumrin, og hefur engar innlendar orkuauðlindir, fyrir utan möguleika á sólarorkuverum. Hagkerfið reiðir sig því á alþjóðaverslun (aðallega umskipun), framleiðsluiðnað (aðallega rafeindatæki og textíl) og ferðaþjónustu.

Aðgengi að lífgetu á Möltu er undir meðaltali heimsins. Árið 2016 var 0,6 hektara lífgeta á íbúa á Möltu, miðað við 1,6 hektara á heimsvísu. Að auki hefur vistspor íbúa Möltu verið áætlað samsvara 5,8 hektara lífgetu, þannig að hallinn er mjög mikill.

Kvikmyndaframleiðsla hefur lagt mikið til hagvaxtar á Möltu. Fyrsta kvikmyndin sem tekin var á Möltu var breska myndin Sons of the Sea árið 1925. Árið 2016 höfðu yfir 100 myndir verið teknar að hluta eða heild á Möltu. Malta er oft notuð sem staðgengill fyrir sögustaði frá Grikklandi hinu forna, Rómaveldi og Mið-Austurlöndum til dæmis. Ríkisstjórn Möltu hóf að endurgreiða kvikmyndaframleiðendum hluta kostnaðar árið 2005. Núverandi endurgreiðsluhlutfall er 25% og 2% aukalega ef sögusviðið er á Möltu.

Malta: Heiti, Saga, Landfræði 
Malta er hluti af evrusvæðinu (dökkblátt).

Í aðdraganda aðildar að Evrópusambandinu 1. maí 2004, voru ríkisfyrirtæki einkavædd og frelsi markaða aukið. Ríkisstjórnin tilkynnti árið 2007 að hún hygðist selja 40% hlut sinn í MaltaPost til að binda endahnút á fimm ára einkavæðingarferli. Frá 2000 til 2010 var símaþjónusta, póstþjónusta, skipasmíðar og Alþjóðaflugvöllurinn á Möltu einkavædd.

Möltu hefur gengið vel að laða að sér fyrirtæki á sviði leikjaþróunar, skráningar skipa og loftfara, kortaviðskipta og sjóðstýringa. Kjarninn í hagvaxtarþróun eyjanna er þjónusta við þennan iðnað þar á meðal fjárvarsla og skiptastjórn. Malta hefur innleitt fjármálatilskipanir Evrópusambandsins, þar á meðal UCIT-tilskipunina IV um verðbréfasjóði og AIFMD-tilskipunina um sérhæfða sjóði. Þannig hefur Malta laðað til landsins sérhæfða sjóði sem þurfa að uppfylla kröfur Evrópusambandsins, eins og IDS, Iconic Funds, Apex Group og TMF/Customs.

Árið 2006 ræddu Malta og Túnis um nýtingu auðlinda á sameiginlegu landgrunni ríkjanna, sérstaklega olíuvinnslu. Sams konar viðræður hafa farið fram við Líbíu.

Árið 2015 var Malta ekki með eignaskatt. Fasteignamarkaðurinn, sérstaklega í kringum höfnina, hefur blómstrað og íbúðaverð í sumum bæjum, eins og St Julian's, Sliema og Gzira, hefur hækkað mikið.

Samkvæmt gögnum Eurostat var verg landsframleiðsla á mann á Möltu 88% af meðaltali Evrópusambandsins árið 2015, eða 21.000 evrur á ári.

Sala á ríkisborgararétti fyrir fjárfestingu var mikilvæg tekjulind fyrir ríkisstjórn Möltu. Tekjur af áætluninni voru 432 milljón evrur árið 2018. Áætlunin byggðist á litlu eftirliti og veitti vegabréf til Rússa, Kínverja og fólks frá Mið-Austurlöndum, sem gildir í Evrópusambandinu. Í júlí 2020 játaði stjórn verkamannaflokksins galla áætlunarinnar og stöðvaði hana frá september 2020.

Tilvísanir

Tenglar

Malta: Heiti, Saga, Landfræði   Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

Malta HeitiMalta SagaMalta LandfræðiMalta StjórnmálMalta EfnahagslífMalta TilvísanirMalta TenglarMaltaEnskaEyríkiLíbíaMaltneskaMiðjarðarhafSikileySuður-EvrópaÍtalskaÍtalía

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

KapítalismiKnattspyrnufélagið ValurSteypireyðurSjómílaBarbieHaustNúþáleg sögnÁfengiHjartaAntonio RüdigerÁrni Pétur ReynissonLjónDaniilLandvætturNoregurLoðnaSveitarfélagið ÁrborgIP-talaSagan af DimmalimmGunnar ThoroddsenForsíðaGrindavíkDóri DNAGuðrún BjörnsdóttirBenedikt Kristján MewesGoogleHeiðniEigið féDúna (skáldsaga)Grísk goðafræðiBerlínarmúrinnBjörn MalmquistKatlaMyndhverfingUmmálFrosinnEnskaFrímúrarareglanKolkrabbarArgentínaSkilnaður að borði og sængVátryggingÞingvellirSnjóflóð á ÍslandiÍslendingasögurSiglunesHallgrímskirkjaSíminnTaekwondoViðtengingarhátturHrognkelsiHerðubreiðÍvan PavlovUpphrópunXXX RottweilerhundarDyngjaVefstóllJósef StalínSýslur ÍslandsKnattspyrnufélagið VíkingurÓsæðFriðrik ErlingssonSvampdýrNorðurlöndinElísabet 2. BretadrottningKenía2024Lína langsokkurLandselurÓsonEgyptalandKópaskerSelaættKatrín JakobsdóttirÓðinn🡆 More