Lárus Welding: íslenskur viðskiptafræðingur og bankastjóri

Lárus Welding (f.

1976) er íslenskur viðskiptafræðingur og fyrrverandi forstjóri Glitnis. Hann tók við starfi sem forstjóri Glitnis vorið 2007 en hafði verið framkvæmdastjóri Landsbanka Íslands í London frá 2003. Lárus tók við af Bjarna Ármannssyni. Lárus Welding er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands, löggiltur verðbréfamiðlari og með próf í fjármálum frá UK Securities Institute í Bretlandi. Lárus starfaði hjá JHR endurskoðunarskrifstofu 1997-1999, hjá Seðlabanka Íslands 1998 og Fjárfestingabanka atvinnulífsins, FBA, síðar Íslandsbanka-FBA, árin 1999-2003.

Málsókn Glitnis banka

Þann 11. maí 2010 var málsókn Glitnis banka á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Þorsteini Jónssyni, Jóni Sigurðssyni, Lárusi Welding, Pálma Haraldssyni, Hannesi Smárasyni og Ingibjörgu Stefaníu Pálmadóttur þingfest fyrir rétti í New York-fylki, þar sem þau eru ákærð fyrir það að „...hafa með sviksamlegum og ólöglegum hætti haft fé af bankanum sem nemur meira en tveimur milljörðum dala...“. Endurskoðendafyrirtækið PricewaterhouseCoopers er einnig ákært fyrir að „...greiða fyrir og taka þátt í að dylja þau sviksamlegu viðskipti sem Jón Ásgeir og félagar komu í kring og sem að endingu leiddu til falls bankans í október 2008.“ Dómnum var vísað frá með því skilyrði að stefndu myndu ekki mótmæla lögsögu íslenskra dómstóla, eða aðfarahæfi þeirra erlendis.

Fangelsisdómar

Þann 21. desember 2015 dæmdi héraðsdómur Reykjavíkur Lárus í fimm ára fangelsi fyrir umboðssvik vegna þáttar hans í Stím-málinu svokallaða. Lárus hafði verið ákærður vegna lána sem eignarhaldsfélagið Stím hlaut til að kaupa hlutafé í Glitni og FL Group. Þessi hlutabréfakaup voru fjármögnuð með láni frá Glitni og hlutabréfin sjálf voru eina veðið.

Hæstiréttur Íslands ógilti síðar dóm héraðsdóms vegna vanhæfni eins dómaranna sem fóru með málið. Málinu var því vísað aftur til héraðs en þegar dæmt var í málinu á ný tveimur árum eftir upphaflega dóminn var Lárus aftur dæmdur í fimm ára fangelsi.

Þann 26. júní 2020 dæmdi Landsréttur Lárus í fimm ára skilorðsbundið fangelsi vegna Stím-málsins eftir áfrýjun.

Tilvísanir

Tenglar

Lárus Welding: Málsókn Glitnis banka, Fangelsisdómar, Tilvísanir 
Wikivitnun er með safn tilvitnana á síðunni
Lárus Welding: Málsókn Glitnis banka, Fangelsisdómar, Tilvísanir   Þetta æviágrip sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

Lárus Welding Málsókn Glitnis bankaLárus Welding FangelsisdómarLárus Welding TilvísanirLárus Welding TenglarLárus Welding1976Bjarni ÁrmannssonBretlandGlitnirHáskóli ÍslandsLandsbanki ÍslandsLondonSeðlabanki ÍslandsVerðbréfViðskiptafræðiÍsland

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

KarinIvar Lo-JohanssonRússlandAkureyriSkaftáreldarFornafnGrænmetiHvalveiðarTodmobileHeiðrún (norræn goðafræði)UngverjalandCristiano RonaldoHernám ÍslandsStórsveppirGuðni Th. JóhannessonHefðarkettirnirFelix BergssonLíbanonBasaltSameinuðu þjóðirnarKarl 16. GústafKasmírHera Björk ÞórhallsdóttirHafþór Júlíus BjörnssonLitáenHobroEnskaJakobsvegurinnLandspítaliGlímaSýrlandWikipediaEnska úrvalsdeildinUmmálListi yfir íslensk mannanöfnÞórdís Kolbrún Reykfjörð GylfadóttirSólmyrkvinn 12. ágúst 2026Harry PotterHelluhraunIngvar E. SigurðssonSvartidauðiListi yfir borgarstjóra ReykjavíkurAlþingiskosningar 2017OrsakarsögnRobert JoyPöddulífHækaViðreisnTálknSandgerðiSystem of a DownSnæfellsjökullGolfÞýskalandKálfshamarsvíkKeflavíkLína langsokkurKópavogurMarilyn MansonSvandís SvavarsdóttirAmy WinehouseKaupstaðurTinna HrafnsdóttirSigurður SigurjónssonSamfylkinginForsetakosningar á Íslandi 1988Listi yfir ráðuneyti ÍslandsNjarðvíkViðskiptablaðiðÞingvellirHadsjíFlóðbylgjan í Indlandshafi 2004🡆 More