Litur (farfi eða farvi) er huglæg upplifun, sem verður til af því að mannsaugað greinir endurkast ljóss með bylgjulengdir, sem spanna hið sýnilega litróf .
Í eðlisfræðilegum skilningi eru hvítur og svartur ekki litir, því að hvítt felur í sér endurkast allra bylgjulenda í jöfnum mæli, en svartur þýðir fjarvera sýnilegs ljóss. Í daglegu tali er þó talað um hvítan og svartan lit.
Litur getur einnig átt við eiginleika tiltekinna hluta eða efna, sem ræðst af því hvaða bylgjulengdir yfirborð hlutarins drekkur í sig og hvaða bylgjulengdum hann endurvarpar. Til dæmis er hlutur grænn ef hann drekkur í sig flestar bylgjulengdir sýnilegs ljóss en endurvarpar ljósi af þeirri samsetningu sem mannsaugað greinir sem grænt.
Litblinda er augngalli, sem lýsir sér í því að litblindir eiga örðugt með að greina að suma liti, til dæmis rauðan og brúnan.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Litur, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.