Jóhann Sigurjónsson (19.
júní 1880 – 31. ágúst 1919) var íslenskt leikskáld, skáld og rithöfundur. Hann er þekktastur fyrir kvæði sín og leikritin Dr. Rung eða Rung læknir, Bóndinn á Hrauni, Fjalla-Eyvind (1911), sem Victor Sjöström gerði kvikmynd eftir 1918, Galdra-Loft (1915) og Mörður Valgarðsson eða Lyga-Mörður. Meðal þekktustu kvæða Jóhanns eru Sofðu unga ástin mín, Bikarinn og Sorg, sem talið er fyrsta óbundna ljóðið á íslensku.
Hann bjó lengst af í Danmörku og skrifaði jöfnum höndum á íslensku og dönsku.
Síðasta árið sem hann lifði átti hann við mikinn heilsubrest að stríða og í ágústlok 1919 lést hann aðeins þrjátíu og níu ára gamall. Dánarorsök hans mun hafa verið meinsemd við hjarta sem stafaði af gamalli sárasóttarsýkingu.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Jóhann Sigurjónsson, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.