Innrás Rússa Í Úkraínu 2022–

Þann 24.

febrúar 2022 gerðu Rússar innrás í Úkraínu og hertóku hluta af. Innrásin er hluti af hernaðardeilum á milli ríkjanna, og er talin mikill stigmögnun í stríðinu, sem hafa staðið yfir frá árinu 2014. Stríðið skapaði hátt í 10 milljóna manna flóttamannastraum sem var sá mesti frá seinni heimsstyrjöld.

Innrás Rússa í Úkraínu 2022
Hluti af stríði Rússlands og Úkraínu
Innrás Rússa Í Úkraínu 2022–
Yfirráðasvæði stríðsaðila í Úkraínu
  Undir stjórn Úkraínumanna
  Undir hernámi Rússa
Dagsetning24. febrúar 2022
(2 ár, 1 mánuður og 24 dagar)
Staðsetning
Stríðsaðilar

Fáni Rússlands Rússland

Stutt af:
Hvíta-Rússlandi
Fáni Úkraínu Úkraína
Leiðtogar
Fáni Rússlands Vladímír Pútín
Sjá fleiri
Fáni Úkraínu Volodymyr Zelenskyj
Sjá fleiri
Fjöldi hermanna
Sjá lista
  • Fáni Rússlands Rússland:
    • 900.000 (fastaher)
    • 554.000 (hernaðarhreyfingar)
    • 2.000.000 (varalið)
    • Þ. á m. 175.000–190.000 við úkraínsku landamærin
Sjá lista
    • Fáni Úkraínu Úkraína:
    • 209.000 (fastaher)
    • 102.000 (hernaðarhreyfingar)
    • 900.000 (varalið)
Mannfall og tjón
Alls um 200.000+ drepnir og særðir (skv. BNA),
325.000 drepnir (skv. Úkraínumönnum)
Um 6.000 drepnir (skv. Rússum)
Alls um 100.000 drepnir og særðir (skv. BNA)
10.000 drepnir (skv. Úkraínumönnum)
61.000 skv. Rússum
Almennir borgarar drepnir: Um 9.000–41.000 (skv. Úkraínu), og 2 í Póllandi (talin mistök)

Árásinni hefur fylgt víðtæk alþjóðleg fordæming, og m.a. af Sameinuðu þjóðunum sem krefjast að rússneskar hersveitir yfirgefi Úkraínu að fullu. Mörg lönd settu viðskiptaþvinganir á Rússland, og á samherja þeirra Hvíta-Rússland.

Þann 17. mars 2023, gaf Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn út handtökutilskipun á Vladímír Pútín.

Aðdragandi

Átök Rússlands og Úkraínu má rekja aftur til ársins 2014, til Evrómajdan-mótmælanna og úkraínsku byltingarinnar þar sem forsetanum Víktor Janúkovytsj var steypt af stóli. Janúkovytsj hafði verið náinn bandamaður ríkisstjórnar Rússlands og Vladímírs Pútín Rússlandsforseta, og hafði í aðdraganda mótmælanna hætt við fyrirhugað samkomulag um nánara samband Úkraínu við Evrópusambandið.

Eftir að Janúkovytsj var steypt af stóli sendu Rússar herlið á Krímskaga og héldu þar atkvæðagreiðslu sem leiddi til þess að Krímskagi var formlega innlimaður inn í rússneska sambandsríkið. Árið 2014 hófust jafnframt uppreisnir í austurhluta Úkraínu, þar sem meirihluti íbúa er rússneskumælandi. Aðskilnaðarsinnarnir í austurhluta Úkraínu lýstu yfir stofnun sjálfstæðra „alþýðulýðvelda“ í Donetsk og Lúhansk. Rússar veittu aðskilnaðarsinnunum aðstoð en stjórnvöld í Rússlandi neituðu því jafnan að um væri að ræða rússneska stjórnarhermenn.

Undir lok ársins 2021 og í byrjun ársins 2022 söfnuðu Rússar tæplega 200.000 manna herliði við landamæri Úkraínu, sem vakti ótta í Úkraínu og á Vesturlöndum um að Pútín hygðist fyrirskipa innrás í landið. Rússnesk stjórnvöld þvertóku ítrekað fyrir að innrás væri yfirvofandi en ráðamenn þar lögðu jafnframt fram kröfur um að Úkraínu yrði meinaður aðgangur að Atlantshafsbandalaginu um alla framtíð og að bandalagið fjarlægði alla hermenn og öll vopn sín úr Austur-Evrópu.

Þann 21. febrúar viðurkenndi Pútín sjálfstæði Alþýðulýðveldanna Donetsk og Lúhansk, héraða rússneskumælandi aðskilnaðarsinna sem höfðu klofið sig frá Úkraínu árið 2014 með stuðningi Rússa. Pútín sendi í kjölfarið rússneska hermenn yfir úkraínsku landamærin til að gegna „friðargæslu“ í Donetsk og Lúhansk. Í ræðu sem Pútín hélt við viðurkenningu sína á sjálfstæði héraðanna efaðist hann um sögulegar forsendur fyrir Úkraínu sem sjálfstæðu ríki og sakaði stjórnvöld þar um að fremja þjóðarmorð.

Réttlætingar Rússa á innrásinni

Sjónvarpsávarp Pútíns til rússnesku þjóðarinnar þann 24. febrúar 2022. Innrás Rússa í Úkraínu hófst fáeinum mínútum eftir ávarpið.

Í yfirlýsingu sinni um innrásina sagði Pútín markmið hennar vera að brjóta niður hernaðarmátt Úkraínu og „afmá nasisma“ úr stjórn ríkisins. Hugmyndin um að Úkraínu sé stýrt af nýnasistum hefur verið áberandi í rússneskum áróðri til réttlætingar innrásinni. Hún styðst sumpart við starfsemi nýnasískra öfgaþjóðernishreyfinga á borð við Azovsveitina, sem hefur stöðu undirliðs í úkraínska þjóðvarðliðinu og hefur barist í stríðinu í austurhluta Úkraínu frá 2014. Hreyfingin situr hins vegar ekki í ríkisstjórn Úkraínu og framboð tengt henni fékk enga kjörna fulltrúa í síðustu þingkosningum landsins. Úkraínumenn hafa þvertekið fyrir ásakanir Pútíns um nasisma og hafa bent á að forseti landsins, Volodymyr Zelenskyj, sé sjálfur Gyðingur og hafi misst ættingja í Helförinni.

Í áróðri þar sem úkraínskri þjóðernishyggju er jafnað við nasisma vísa Rússar jafnframt gjarnan til Stepans Bandera, sem var úkraínskur öfgaþjóðernissinni sem vann með innrásarher nasista í seinni heimsstyrjöldinni.

Rússnesk stjórnvöld hafna því að um innrás sé að ræða og kalla átökin í Úkraínu ávallt „sérstaka hernaðaraðgerð.“ Umfjöllun um innrásina hefur verið stranglega ritskoðuð innan Rússlands og þungar refsingar hafa verið lagðar við því að nota hugtökin stríð eða innrás um atburðina.

Pútín hélt ræðu í Moskvu á sigurdeginum 9. maí 2022 þar sem minnst var sigurs á Nasistum í seinni heimsstyrjöld. Þar gagnrýndi hann Atlantshafsbandalagið og Bandaríkin fyrir að stofna Rússlandi í hættu og réttlæti árásina á Úkraínu. Líkti hann enn fremur átökunum við seinni heimsstyrjöldina.

Innrásin

Innrás Rússa Í Úkraínu 2022– 
Þann 26. febrúar hæfði rússnesk eldflaug blokk í Kænugarði.

Upphafskafli innrásarinnar (24. febrúar – 7. apríl)

Morguninn 24. febrúar 2022 hófu Rússar allsherjarinnrás í Úkraínu. Innrásin fór fram bæði frá héruðunum í austurhluta landsins, frá Krímskaga og frá Hvíta-Rússlandi með stuðningi stjórnar Alexanders Lúkasjenkó. Rússneski herinn gerði árás á olíubirgðastöð suður af Kænugarði.

Rússar sátu um Kharkív, aðra stærstu borg landsins en mættu harðri mótstöðu. Ráðist var m.a. á ráðhúsið, hersjúkrahús og skóla. Harðar árásir voru á borgir í suðri, Kherson og Maríúpol, með eldflaugum og stórskotaliði. Í Kænugarði var fjarskiptaturn sprengdur.

Kherson féll í hendur rússneskra hermanna þann 3. mars, á áttunda degi innrásarinnar, og var þá fyrsta úkraínska stórborgin sem var hernumin.

Innrás Rússa Í Úkraínu 2022– 
Sprengjum var varpað á útjaðra Kharkív þann 1. mars.

Flóttafólk streymdi til Evrópulanda frá Úkraínu, aðallega Póllands, voru þeir orðnir tæpar 2 milljónir 8. mars.

Þann 11. mars voru gerðar loftárásir í borgum í norðvestri; Lútsk og Ívano-Frankívsk. Einnig í Dnípro í miðhlutanum. Loftárás var gerð 13. mars á herflugvöll nærri Lvív við pólsku landamærin þar sem tugir létust. Úkraínumenn hófu gagnsókn á ýmsum stöðum t.d. vestur af Kænugarði og tóku landsvæði aftur. Loftárás var gerð á rússneskt herskip við Berdjansk við Azovhaf.

Maríúpol var eyðilögð að mestu og flestir íbúanna flúðu. Rússar gerðu m.a. árás á leikhús þar sem borgarar höfðu flúið. Um 300 létust. Flestir íbúanna höfðu flúið í lok mars og um 5.000 látist. 29. mars var gerð loftárás á stjórnarbyggingu í borginni Mykolajív í suðri. Daginn eftir voru gerðar árásir á Tsjerníhív í norðri.

Undir lok marsmánaðar hófu rússneskar hersveitir undir stjórn hershöfðingjans Aleksandrs Tsjajko að hörfa frá Kænugarði, sem hafði verið umsetinn frá því stuttu eftir að innrásin hófst. Þrátt fyrir að hafa ekki náð að hertaka höfuðborgina sögðust Rússar hafa náð upphaflegum markmiðum sínum og að þeir myndu nú einbeita sér að frelsun Donbas-héraðanna í austurhluta Úkraínu. Vegna undanhalds Rússa endurheimtu Úkraínumenn mikið landsvæði í kringum Kænugarð, allt að 35 kílómetra austan við borgina. Meðal annars endurheimtu úkraínskir hermenn bæinn Írpín þann 28. mars.

Eftir að Rússar hörfuðu frá úthverfum Kænugarðs tilkynnti úkraínski ríkissaksóknarinn Íryna Venedíktova að lík 410 almennra borgara hefðu fundist á svæðunum sem Rússar höfðu haft umráð yfir. Einnig tilkynntu Úkraínumenn að 280 lík hefðu fundist í fjöldagröfum í borginni Bútsja, sem Rússar höfðu hernumið en svo hörfað frá. Úkraínumenn sökuðu Rússa um að standa fyrir úthugsuðum fjöldamorðum á almennum borgurum á meðan þeir réðu yfir borginni en Rússar höfnuðu ásökununum.

Sókn Rússa í suðaustri (8. apríl – 5. september)

Rússar hófu sókn í austurhéruðunum eða Donbas og gerðu þar loftárásir eftir að hafa hörfað úr svæðum í norðri. Fólksflótti varð úr austurhéruðunum. Loftárás var gerð á almenna borgara á lestarstöð í borginni Kramatorsk. Tugir létust. Rússar hófu nýja stórsókn í austurhéruðum Úkraínu þann 19. apríl.

Innrás Rússa Í Úkraínu 2022– 
Rússneska beitiskipinu Moskvu var sökkt á Svartahafi af úkraínskum loftskeytum þann 14. apríl.

Þann 14. apríl gerði Úkraínuher loftárás á þriðja stærsta skip rússneska flotans, beitiskipið Moskvu, á Svartahafi. Staðfest var síðar sama dag að skipinu hefði verið sökkt. Rússar sögðu að kviknað hafi í vopnageymslu skipsins og minntust ekki á loftárás.[heimild vantar]

Bardagar héldu áfram í Donbas og var skóli þar sem 90 héldu til sprengdur í bænum Bílohorívka með þeim afleiðingum að 60 létust. Einnig voru gerðar loftárásir á Odesa meðal annars á íbúðablokkir og hótel.

26. apríl bárust fregnir af sprengingum í héraðinu Transnistríu sem er innan Moldóvu. Leiðtogi rússneska þjóðarbrotsins þar sagði að Úkraínumenn hefðu staðið fyrir þeim en Úkraínumenn sögðu þetta vera átyllu fyrir árás í héraðið.

Úkraínumenn sögðust hafa hrakið Rússa frá Kharkív, annarri stærstu borginni, 11. maí.

Innrás Rússa Í Úkraínu 2022– 
Eftirmálar loftskeytaárásar Rússa á verslunarmiðstöðina í Krementsjúk þann 27. júní 2022

Þann 27. júní gerðu Rússar loftskeytaárás á verslunarmiðstöð í borginni Krementsjúk í miðhluta landsins þar sem nálægt 1000 manns voru. 20 manns létust og tugir særðust. Rússar sögðust hafa gert árás á vopnageymslu við hliðina á verslunarmiðstöðinni.

30. júní lýstu Úkraínumenn yfir að þeir hefðu náð Snákaeyju í Svartahafi af Rússum.

Þann 1. júlí var gerð loftárás á íbúðabyggð og tómstundasvæði í Odesa þar sem um 20 manns létust. Rússar hófu að flytja korn sem þeir sölsuðu undir sig frá herteknum svæðum, þ.e. höfninni í Berdjansk.

Þrír létust í sprengingum í rússnesku borginni Belgorod nálægt landamærum Úkraínu þann 3. júlí. Rússar sögðu Úkraínumenn hafa gert árásina.

Árás var gerð í byrjun ágúst við kjarnorkuver nálægt borginni Zaporízjzja. Rússar réðu yfir verinu en héldu úkraínskum starfsmönnum þar. Báðir aðilar kenndu hvor öðrum um árásina og sögðu Úkraínumenn Rússa nýta sér verið sem herstöð.

Árás var gerð á herflugvöll á Krímskaga þar sem Rússar geymdu orrustuþotur. Rússar sögðu ekkert hafa skemmst þrátt fyrir að gervihnattamyndir sýndu annað. Úkraínumenn lýstu ekki yfir ábyrgð á árásinni.

Í lok ágúst gerðu Rússar árás á lestarstöð nálægt Dnípró þar sem 25 létust. Sögðust þeir hafa gert hana á hernaðarflutninga og fellt 200 hermenn.

Borgirnar Slovjansk og Kramatorsk voru þær einu af stærri borgum í Donetsk sem voru í höndum Úkraínumanna eftir 3. júlí. Rússar gerðu árásir á smærri þéttbýlisstaði, 35 létust í loftárás á fjölbýlishúsi í Tsjasív Jar 9. júlí. Íryna Veresjtsjúk, aðstoðarráðherra, hvatti íbúa vestur af Donbas í borgunum Kherson og Zaporízjzja til forða sér. Úkraínumenn gerðu loftárás 12. júlí á vöruhús austur af Kherson, í borginni Nova Kakhovka, þar sem þeir sögðu Rússa geyma skotfæri.

Loftskeytaárásir á borgina Vínnytsja í vesturhluta landsins voru gerðar um miðjan júlí þar sem tugir létust.

Þrátt fyrir að hafa gert samning um kornútflutning við Úkraínu í lok júlí gerðu Rússar árásir á höfnina í Odesa þar sem útflutningur fór fram.

Rússar og Úkraínumenn kenndu hvor öðrum um þegar árás var gerð á fangelsi í vestur-Donetsk þar sem um 50 úkraínskir stríðsfangar féllu.

Orrustan um Maríúpol

Innrás Rússa Í Úkraínu 2022– 
Azovstal-járnverið í Maríúpol í apríl 2022. Járnverið varð síðasta vígi úkraínskra varnarsveita í Maríúpol þegar Rússar sátu um borgina.

Maríúpol var umkringd af Rússum fyrir utan Azovstal-járnvinnsluverið þar sem úkraínskir hermenn og borgarar héldu til. Árásir á lestarstöðvar 25. apríl í vestur-Úkraínu var liður í því að stöðva vopnaflutninga til landsins að sögn Rússa.

Byrjað var að hleypa borgurum frá Azovstal-verksmiðjunni en samningar um björgun hafa reynst erfiðir. Þann 7. maí bárust fregnir um að öllum almennum borgurum verið bjargað úr verksmiðjunni.

Rússar lýstu yfir sigri í Maríúpol þegar síðustu úkraínsku hermennirnir voru handsamaðir í Azovstal-járnverinu.

Orrustan um Sjevjerodonetsk og Lysytsjansk

Hinn 25. maí voru Rússar komnir nálægt borginni Sjevjerodonetsk í Vestur-Lúhansk og gerðu harðar árásir á hana.

Miðpunktur bardaga var í kringum Sjevjerodonetsk í byrjun júní og sögðust Úkraínumenn hafa hrakið Rússa frá borginni. Rússar voru með sókn í átt að annarri borg í Donbas, Slovjansk. Loftárásir voru gerðar á austur-Kænugarð, í fyrsta sinn síðan í apríl, og sögðust Rússar hafa gert árás á skriðdrekasendingu frá Vesturlöndum.

Um miðjan júní höfðu Rússar náð yfirráðum yfir 80% af Sjevjerodonetsk og eyðilagt brýr sem voru flóttaleiðir úr borginni. Í lok mánaðarins var úkraínskum hermönnum skipað að yfirgefa borgina.

Íbúum í nálægri borg, Lysytsjansk, var gert að flýja hana. Síðustu dagana í júní voru gerðar miklar loftárásir á borgina.

Rússar sögðust hafa náð Lysytsjansk 3. júlí en Úkraínumenn neituðu því fyrst. Síðar sagði talsmaður úkraínska hersins að herinn hefði hörfað.

Gagnsóknir Úkraínumanna og innlimanir Rússa (6. september –)

Innrás Rússa Í Úkraínu 2022– 
Áróðursfrímerki frá Úkraínu sem sýnir sprenginguna á Krímskagabrúnni

Endurheimt Úkraínumanna á Kharkív og Kherson

Úkraínumenn hófu gagnsókn að borginni Kherson í suðri í júlí. Barist var um borgina og samnefnt hérað undir lok ágúst. Gerðu Úkraínumenn flugskeytaárásir á vopnabúr Rússa og birgðalínur í borginni.

Þann 8. september hófu Úkraínumenn gagnsókn suðaustur af Kharkív og varð ágengt að endurheimta landsvæði.

Þann 10. september lýstu Úkraínumenn yfir að þeir hefðu náð borginni Ízjúm suðaustur af Kharkív. Þar fundust síðar fjöldagrafir með hundruðum manna. Þeir náðu jafnframt borginni Kúpjansk, sem var ásamt Ízjúm mikilvægur hluti í birgðakeðju Rússa. Í gagnsókn sinni á næstu dögum tókst Úkraínumönnum að endurheimta mikið landsvæði í Kharkív-héraði og náðu allt til landamæra Rússlands í norðanverðu héraðinu. Rússar brugðust við gagnsókninni með árásum á innviði, meðal annars með því að slá út rafmagns- og vatnsflutninga og stöðva lestarsamgöngur.

Þann 8. október sprakk bílasprengja á brú Rússa yfir Kertsj-sund sem tengir austurhluta Krímskaga við Rússland. Sprengingin olli því að hluti brúarinnar hrundi í sjóinn og olli að minnsta kosti þremur dauðsföllum samkvæmt Rússum. Brúin hafði verið byggð eftir innlimun Rússa á Krímskaga árið 2014 og gegndi mikilvægu hlutverki í rússneskum samgöngum til Krímskaga. Meðal annars hafði brúin verið notuð til að flytja hergögn, olíu og aðrar vistir til rússneskra hermanna í Úkraínu. Rússar svöruðu árásinni á Kertsj-brúna tveimur dögum síðar með sprengjuárásum á úkraínska samskipta-, orku- og hernaðarinnviði, meðal annars árásum á miðbæ Kænugarðs.

Sama dag og brúin var sprengd upp skipaði Vladímír Pútín hershöfðingjann Sergej Súrovíkin nýjan yfirmann alls rússneska heraflans í Úkraínu. Súrovíkín hefur áður stýrt hernaðarinngripi Rússa í sýrlensku borgarastyrjöldina, þar sem honum tókst að snúa vörn í sókn í þágu stjórnarhersins með því að beina sprengjuárásum að óbreyttum borgurum. Aukning í árásum Rússa á borgaraleg skotmörk á næstu dögum þótti til marks um að Súrovíkín hygðist beita svipuðum aðferðum í Úkraínu.

Í byrjun nóvember lýsti Súrovíkín yfir að rússneski herinn myndi hörfa frá Kherson-borg. Eftir afturhald Rússa frá borginni endurheimtu úkraínskar hersveitir Kherson þann 11. nóvember.

Úkraínumenn gerðu árás í byrjun janúar á bækistöð rússneska hersins í Makíjívka í Donetsk þar sem yfir 400 létust. Rússar héldu áfram loftárásum, sér í lagi með írönskum drónum, á Kænugarð og fleiri borgir. Harðir bardagar voru við borgina Bakhmút norður af Donetsk-borg og mikið mannfall á báða bóga.

Þann 5. desember sögðust Rússar hafa skotið niður flygildi við rússneska herflugvelli í Saratov og Rjazan. Sprengingarnar ullu mannfalli. Úkraínumenn gerðu árásir á höfuðstöðvar Wagner-hópsins sem dvaldi á hóteli í borginni Kadívka í Lúhansk. Árásir voru einnig gerðar á hersetuliðið í borginni Melítopol í Zaporízjzja-fylki.

Herkvaðning og innlimanir Rússa í Donbas

Þann 21. september tilkynnti Pútín að gripið yrði til takmarkaðrar herkvaðningar í Rússlandi til þess að halda hernaðinum í Úkraínu áfram. Á sama tíma hafði verið tilkynnt að leppstjórnir Rússa í Donetsk, Lúhansk, Kherson og Zaporízjzja myndu halda atkvæðagreiðslur um það að gerast hluti af Rússneska sambandsríkinu líkt og hafði verið gert á Krímskaga árið 2014.

Leppstjórnir Rússa á hernámssvæðum þeirra í Donetsk, Lúhansk, Kherson og Zaporízjzja hófu atkvæðagreiðslur um að gerast hluti af Rússlandi þann 23. september. Fjórum dögum síðar tilkynntu héraðsstjórnir á hernumdu svæðunum í Lúhansk og suðurhlutum Kherson og Zaporízjzja að yfirgnæfandi meirihlutar kjósenda hefðu samþykkt að héruðin skyldu sameinast Rússlandi. Ýmsir erlendir þjóðarleiðtogar fordæmdu atkvæðagreiðslurnar og sögðu niðurstöður þeirra hafa verið ákveðnar fyrirfram. Volodymyr Zelenskyj Úkraínuforseti sagði þær markleysu og að þær myndu engu breyta um þær fyrirætlanir Úkraínumanna að endurheimta héruðin.

Úkraínumenn kenndu Rússum um þegar í lok mánaðarins sprakk gasleiðsla Nordstream á fjórum stöðum á hafsvæði Danmerkur og Svíþjóðar.[heimild vantar]

Rússar héldu áfram að gera árásir á bílalestir óbreyttra borgara í Zaporízjzja og Kharkív-héruðum, þar sem tugir létust.[heimild vantar]

Árásir á orku- og vatnsinnviðir voru víða í Úkraínu í lok mánaðar. Um 40% landsins var án rafmagns um tíma.

Orrustan um Bakhmút

Innrás Rússa Í Úkraínu 2022– 
Bakhmút í rústum í mars 2023

Harðir bardagar voru á austurvígstöðvunum, aðallega við Bakhmút, í byrjun ársins 2023. Úkraínsk yfirvöld töldu að Rússar væru að safna 200.000 manna aukaliði til að hefja nýja sókn.

Jevgeníj Prígozhín, leiðtogi Wagner-hópsins sagði að Bakhmút væri umkringd í byrjun mars. Hann sakaði stuttu síðar rússnesk stjórnvöld um svik með því að senda of fá vopn í orrustuna um borgina. 9. mars gerðu Rússar mestu loftárásir á landið síðan í janúar.

Friðarumleitanir

Sendinefndir Rússa og Úkraínumanna ræddu mögulegt vopnahlé eða friðarsamninga með hléum frá 27. febrúar. Fyrsti fundur sendinefndanna fór fram nærri landamærum Úkraínu og Hvíta-Rússlands við Prypjat. Í mars funduðu sendinefndir ríkjanna í Istanbúl í Tyrklandi. Úkraínumenn hafa sagst viljugir til að ganga að sumum kröfum Rússa eins og að gerast ekki aðilar að Atlantshafsbandalaginu og að Úkraína verði hlutlaust ríki með tilliti til öryggissjónarmiða. Úkraínumenn hafa hins vegar hafnað því að gefa eftir landsvæði innan alþjóðlega viðurkenndra landamæra sinna sem Rússar eða alþýðulýðveldin í Donbas gera tilkall til.

António Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, fór til fundar í Moskvu og Kænugarði til friðarumleitanna og ræddi við Pútín og Zelenskyj. Á meðan Guterres var í Kænugarði voru loftárásir gerðar á borgina.

Þann 30. september lýsti Volodymyr Zelenskyj því yfir að frekari friðarviðræður við Rússa kæmu ekki til greina svo lengi sem Vladímír Pútín væri áfram við völd í Rússlandi. Þessi yfirlýsing kom í kjölfar þess að Pútín lýsti yfir innlimun á fjórum úkraínskum héruðum í Rússland.

Stríðsglæpir

Frá því að innrásin hófst hafa borist fréttir og ásakanir um fjölda stríðsglæpa og mannréttindabrota af hálfu stríðsaðila. Í júní 2022 sagði Íryna Venedíktova, ríkissaksóknari Úkraínu, að úkraínskum stjórnvöldum hefðu borist um fimmtán þúsund tilkynningar um meinta stríðsglæpi Rússa.

Þann 23. september 2022 greindi Erik Mose, yfirmaður rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um stríðsglæpi í Úkraínu, mannréttindaráði SÞ frá því að nefndin hefði aflað vísbendinga um fjölda stríðsglæpa á hernámssvæðum Rússa í landinu. Meðal annars hefði nefndin séð merki um fjöldaaftökur og hugsanleg merki um kerfisbundið kynferðisofbeldi rússneskra hermanna.

Úkraínski mannréttindahópurinn Miðstöð borgaralegra réttinda (úkraínska: Центр Громадянських Свобод; umritað Tsjentr Hromadjanskykh Svobod) hefur fengist við það að kortlegga stríðsglæpi rússneska innrásarhersins síðan innrásin hófst. Samtökin hlutu friðarverðlaun Nóbels árið 2022 og Nóbelsnefndin sagði starf þeirra ómetanlegt svo hægt yrði að draga hinu seku til ábyrgðar.

Þann 17. mars 2023 gáfu dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins í Haag út handtökuskipun á hendur Vladímír Pútín (og Maríu Lvova-Belova, umboðsmanni barna í Rússlandi) vegna tilkynninga um að fjölda úkraínskra barna hefði verið rænt í innrásinni og þau flutt til Rússlands. Rússar hafa numið mörg úkraínsk börn burt frá landinu í innrásinni og sett þau í ættleiðingu til rússneskra foreldra. Í sumum tilfellum hefur börnunum verið sagt að foreldrar þeirra vilji þau ekki lengur. Það að þvinga börn til að alast upp í annarri menningu en þeirra eigin í því skyni að þurrka út menningu og einkenni óvinaþjóðar er möguleg verknaðaraðferð við þjóðarmorð.

Í skýrslu rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna frá 16. mars 2023 var fjallað um aðgerðir rússneskra stjórnvalda við að nema á brott úkraínsk börn og um fleiri aðgerðir sem var jafnað við stríðsglæpi og mögulega glæpi gegn mannúð. Meðal annars var vísað til þess að Rússar hefðu beitt pyntingum kerfisbundið á hernámssvæðum sínum.

Bæði Úkraínumenn og Rússar hafa verið sakaðir um að taka af lífi stríðsfanga án dóms og laga.

Viðbrögð

Innrás Rússa Í Úkraínu 2022– 
Mótmæli gegn innrásinni í Helsinki
Innrás Rússa Í Úkraínu 2022– 
Meðlimir í ungliðahreyfingu Sameinaðs Rússlands í Kabarovsk stilla sér upp í Z til að lýsa yfir stuðningi við innrásina.

Fordæmingar og efnahagsrefsingar

Evrópusambandið tilkynnti að það myndi setja á hörðustu efnahagslegu refsingar í sögu sambandsins. Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu var færður frá Sankti Pétursborg, Formúla 1 frá Sotsjí og Rússum meinuð þátttaka í íþróttakeppnum og í söngvakeppninni Eurovision. Flugfélaginu Aeroflot var bannað að fljúga til Bretlands og önnur Evrópulönd fylgdu í kjölfarið og bönnuðu Rússum að fljúga um evrópska lofthelgi. Eignir og bankareikningar rússneskra auðkýfinga voru fryst. Rússneskum bönkum var meinað af ESB, Kanada, Bretlandi og Bandaríkjunum að notast við SWIFT-millifærslukerfið. Visa og Mastercard hættu starfsemi í Rússlandi og mörg fjölþjóðafyrirtæki eins og IKEA og Samsung.

Rússlandi var vikið úr Evrópuráðinu vegna innrásarinnar þann 25. febrúar 2022. Þann 2. mars samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna á sérstökum neyðarfundi ályktun þar sem innrás Rússa í Úkraínu var „hörmuð“ og stríðsaðilar hvattir til að leggja niður vopnin. Kína og Indland sátu hjá og Rússland, Hvíta-Rússland, Eritrea, Norður-Kórea og Sýrland greiddu atkvæði á móti. António Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, lýsti því yfir að innrásin væri brot á stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þann 7. apríl var Rússland jafnframt rekið úr mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna.

Fjöldi sendiráðsstarfsmanna var rekinn úr Evrópulöndum. Sendiráð Rússlands á Íslandi var lokað sumarið 2023.

Mótmæli

Mótmæli voru víða um heim og við sendiráðsbústað Rússlands við Túngötu þann 24. febrúar, næstu daga og reglulega eftir það.

Í ágúst var Kænugarðstorg nálægt rússneska sendiráðinu formlega nefnt af borgarstjóra Reykjavíkur.

Flóttamenn og mannúðaraðstoð

Nálægt 13 milljónir hafa farið yfir landamærin frá Úkraínu frá því að innrásin hófst, flestir til Póllands. Um 7,3 milljónir flóttamanna hafa verið skráðir í Evrópu þar af hafa um 4 milljónir fengið verndarstöðu. Einnig hafa yfir 8 milljónir flúið innan Úkraínu. Flóttafólkið var mestmegnis konur og börn en 18–60 ára karlmenn voru skyldugir til að vera eftir í landinu því til varnar.

Við landamæri Pólland, Rúmeníu, Ungverjalands, Slóvakíu og Moldóvu var flóttamannastraumur. Evrópusambandið sagðist ætla að taka á móti flóttamönnum næstu 3 ár án þess að þeir þyrftu að sækja um vernd.

Á Íslandi höfðu 3.230 sótt um vernd í júlí 2023.

Hernaðarstuðningur

Evrópusambandið fjármagnar kaup á vopnum og flutning þeirra til Úkraínu. Bandaríkin hafa einnig séð Úkraínu fyrir vopnum, jafnvel tveimur mánuðum fyrir stríðið. NATÓ ákvað að auka viðbúnað sinn í Austur-Evrópu og senda þangað 40.000 hermenn.

Í byrjun apríl sendi Tékkland skriðdreka til Úkraínu.

Í janúar 2023 var ákalli Úkraínu um skriðdreka og hernaðarfarartæki svarað og Evrópulönd og Bandaríkin sendu fjölda þeirra. Um miðjan mars sama ár ákváðu Pólverjar og Slóvakar að senda herþotur til Úkraínu. Rússar sögðust ætla að granda þeim í andsvari sínu.

Í leka hjá bandaríska varnarmálaráðuneytinu í apríl 2023 kom fram að erlendar sérsveitir störfuðu í Úkraínu. Fjölmennastar voru þær bresku, lettnesku og frönsku.

Heimsóknir erlendra leiðtoga til Úkraínu

Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins kom til fundar við Zelenskyj í Kænugarði þann 9. apríl 2022. Hún lofaði skjótri afgreiðslu ef Úkraína sækti um aðild að Evrópusambandinu og aukinni fjárhagsaðstoð við landið.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra heimsóttu Kænugarð og nágrenni og ráðamenn þar í mars 2023.

Stuðningur við innrásina

Á vikunum eftir að innrásin hófst varð bókstafurinn Z stuðningstákn við innrásina og við Vladímír Pútín. Ástæðan er sú að stafurinn var ritaður á marga af skriðdrekum og herbílum Rússa í Úkraínu sem myndir náðust af í aðdraganda innrásarinnar. Uppruni þessarar notkunar Z, sem ekki er til í kyrillíska stafrófinu, er óljós, en stafurinn hefur verið notaður til að merkja rússnesk herfarartæki ásamt öðrum bókstöfum eins og O, X, A og V. Herbílar og skriðdrekar sem merktir eru með Z tilheyra eystri herdeild rússneska hersins. Rússneska varnarmálaráðuneytið segir bókstafinn standa fyrir „za pobedu“ (til sigurs), „za mir“ (fyrir frið), „za nashikh“ (fyrir þjóð okkar) og fleira.

Tilvísanir

Tags:

Innrás Rússa Í Úkraínu 2022– AðdragandiInnrás Rússa Í Úkraínu 2022– Réttlætingar Rússa á innrásinniInnrás Rússa Í Úkraínu 2022– InnrásinInnrás Rússa Í Úkraínu 2022– FriðarumleitanirInnrás Rússa Í Úkraínu 2022– StríðsglæpirInnrás Rússa Í Úkraínu 2022– ViðbrögðInnrás Rússa Í Úkraínu 2022– TilvísanirInnrás Rússa Í Úkraínu 2022–RússlandSeinni heimsstyrjöldStríð Rússlands og ÚkraínuÚkraína

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

HljóðvarpGrísk goðafræðiLenínskólinnHallgrímskirkjaHollenskaNorræna tímataliðBaltasar KormákurEfnasambandForsetakosningar á Íslandi 1996VísindavefurinnTýrSigurður Anton FriðþjófssonHamskiptiBarbieÓlafsvíkEvrópska efnahagssvæðiðJarðskjálftar á ÍslandiAlþingiskosningar 2021LangreyðurListi yfir úrslit MORFÍSSteingrímur J. SigfússonKnattspyrnufélagið FramHákarlLjótu hálfvitarnirKyn (líffræði)Seinni heimsstyrjöldinDigimonNoregurArgentínaPóllandSkotlandLaugardalshöllÁrni Pétur ReynissonJóhann SvarfdælingurRíkisútvarpiðBergþórshvollÓlafur Ragnar GrímssonHeimdallurStorkubergSamtengingÞórdís Kolbrún Reykfjörð GylfadóttirÚtlendingastofnunEgill Skalla-GrímssonFrosinnSnjóflóðið í SúðavíkSameinuðu arabísku furstadæminDaði Freyr PéturssonNáhvalurBúðardalurHalldór LaxnessGunnlaugur BlöndalAlbert Guðmundsson (fæddur 1997)Gerður KristnýKjördæmi ÍslandsBjór á ÍslandiFreyjaÖlfusárbrúBesti flokkurinnListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaSvartidauðiBrennu-Njáls sagaOttawaRúmmálHeiðlóaFálkiTaekwondoMorð á ÍslandiKoltvísýringurÍslenskaEldkeilaHelförinGuðjón SamúelssonÍslendingabók🡆 More