Hlébarði

Hlébarði (fræðiheiti: Panthera pardus) er ein af fimm tegundum innan ættkvíslar stórkatta (Panthera).

Hinar fjórar tegundirnar eru tígrisdýr, ljón, jagúar og snjóhlébarði. Hlébarðinn er sá stórköttur sem er í minnstri útrýmingarhættu. Hlébarðategundinni hefur verið skipt í meira en 30 deilitegundir, sem eru misstórar, þær stærstu eru flestar afrískar.

Hlébarði
Tímabil steingervinga: Seint á plíósen eða snemma á pleistón fram á okkar daga
Hlébarði
Ástand stofns
Vísindaleg flokkun
Ríki: Dýraríki (Animalia)
Fylking: Seildýr (Chordata)
Flokkur: Spendýr (Mammalia)
Ættbálkur: Rándýr (Carnivora)
Ætt: Kattardýr (Felidae)
Ættkvísl: Stórkettir (Panthera)
Tegund:
Hlébarði (P. pardus)

Tvínefni
Panthera pardus
Linnaeus, 1758
Hlébarði

Heimkynni

Hlébarði er útbreiddasta tegund stórra kattardýra. Þeir eru um alla Afríku, á Arabíuskaganum, í Íran, Mið-Asíu, Kína, á Indlandi, Sri Lanka og syðst í Síberíu. Þeir halda sig við laufskóga og kjarrlendi, eiga auðvelt með að klifra í trjám og geta dregið bráð sína upp í tré til þess að hindra að önnur dýr steli bráðinni.

Útlit

Hlébarðar eru með langan og mjóan skrokk sem er sterkur og vöðvastæltur, hafa stutta fætur og langa rófu sem þeir nota til þess að halda jafnvægi þegar þeir eru uppi í trjám. Fullorðnir hlébarðar geta verið frá 50 kg og upp í allt að 120 kg á þyngd, þeir eru tveir til þrír metrar á lengd ef rófan er mæld með en rófan er oftast um 90 cm löng. Kvenkyns hlébarðar eru oftast um tveir þriðju af stærð karlkyns hlébarða. Hlébarðinn er með rósettumynstur á feldi sínum líkt og jagúarinn en munurinn er sá að rósettublettirnir á hlébarðanum eru minni. Feldurinn getur verið snöggur eða þykkur, það fer allt eftir því hvar hlébarðinn lifir.

Mataræði

Hlébarðinn er kjötæta og er fæða hans aðallega antilópur og önnur hjarðdýr grasbíta, einnig villisvín. En þeir éta einnig minni dýr eins og kanínur og stór skordýr. Hlébarðinn veiðir á næturnar. Þeir byrja á því að fela sig, laumast upp að bráðinni og stökkva á hana við fyrsta tækifærið. Þeir drepa bráð sína með einu snöggu biti í háls.

Uppeldi

Meðgöngutími hlébarða er um þrír mánuðir og eignast kvendýrið tvo til fjóra hvolpa. Hvolparnir fæðast blindir en fá sjónina eftir um níu daga. Þeir fara að heiman þegar þeir eru um 13 til 18 mánaða gamlir. Hlébarðar verða 12 til 15 ára gamlir úti í náttúrunni en það fer mikið eftir búsvæðum og fæðu.

Tenglar

  • Staðreyndir um hlébarðann
  • Uppeldi Hlébarða
  • Útlit hlébarða
  • „Hvernig lifir hlébarði?“. Vísindavefurinn.
  • „Hverjar eru deilitegundir hlébarðans og hversu útbreiddur er hann?“. Vísindavefurinn.
  • „Hvernig getur maður greint á milli hlébarða blettatígurs og jagúars?“. Vísindavefurinn.
Hlébarði   Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

Hlébarði HeimkynniHlébarði ÚtlitHlébarði MataræðiHlébarði UppeldiHlébarði TenglarHlébarðiFræðiheitiJagúarLjónStórkettirTegundTígrisdýrÆttkvísl (flokkunarfræði)

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Forsetakosningar á ÍslandiÞjóðleikhúsiðMorð á ÍslandiSkálmöldLars PetterssonVeðrunÞjóðhátíð í VestmannaeyjumVestfirðirFimleikafélag HafnarfjarðarMalaríaKapítalismiSnorri SturlusonCSSKrav MagaÞjóðvegur 1Albert Guðmundsson (fæddur 1997)JólasveinarnirÍsraelsherDanmörkGunnar ThoroddsenListi yfir persónur í NjáluBaldur ÞórhallssonÓpersónuleg sögnÞjóðvegur 26Knattspyrnufélag Reykjavíkur20. öldinFániStöð 2Forsetakosningar á Íslandi 2020Charles DarwinRíkharður DaðasonFriðrik DórSæmundur fróði SigfússonForsetakosningar á Íslandi 2024BeinþynningListi yfir íslensk mannanöfnÞróunarkenning DarwinsÁrnessýslaIcesaveLeigubíllStórar tölurJón Páll SigmarssonLionel MessiFallbeygingEiffelturninnErpur EyvindarsonHin íslenska fálkaorðaÓlafsfjörðurNafnháttarmerkiKríaValhöllJörðinÍsbjörnÓlafur Darri ÓlafssonISBNThe Tortured Poets DepartmentAskja (fjall)BeinSuðurlandsskjálftiKreppan miklaSystem of a DownGuðmundur Ingi GuðbrandssonBarokkKváradagurMesópótamíaÚlfurEldgosin við Sundhnúksgíga 2023–2024AlþingishúsiðHandknattleikssamband ÍslandsListi yfir lönd eftir mannfjöldaKínaAskur YggdrasilsJóhanna SigurðardóttirHugmyndMinkurXboxEinokunarversluninSkátafélagið Ægisbúar🡆 More