Wiki hefur innbyggða leitarvél sem nota má til þess að finna efni á vefnum.
Leitarramminn er efst til hægri á síðunni hjá þeim notendum sem nota sjálfgefið útlit vefsins (eða í hliðarstikunni vinstra meginn í flestum öðrum útlitssniðum). Ef leitarorðið þitt stemmir nákvæmlega við titil greinar eða tilvísunar þá opnar vefurinn þá grein eða greinina sem tilvísunin bendir á. Ef leitarorðið passar ekki nákvæmlega við neinn greinartitil þá opnast hins vegar listi yfir leitarniðurstöður þar sem þær greinar eru skráðar sem innihalda leitarorðið í titli sínum eða meginmáli. Ef þú vilt sjá þessar niðurstöður frekar en að fara beint í samnefnda grein þá getur þú valið „sem innihalda...“ möguleikann sem birtist ávallt neðst í fellilistanum sem kemur neðan leitarrammans þegar skrifað er í hann.
Niðurstöðusíðan býður upp á ítarlegri leitarmöguleika og því getur verið þægilegt að fara þangað til að framkvæma leit frekar en að skrifa leitarorð í rammann. Fljótlegasta leiðin til þess er að velja leitarramann og ýta á „enter“ án þess að gefa upp leitarorð eða smella á stækkunarglerið með tómum leitarramma.
Sjálfgefið er að leita aðeins í síðum sem eru í aðalnafnarými Wikipediu, það er að segja alfræðigreinum, aðgreiningarsíðum og tilvísunum, en því má breyta með því að fara í ítarlegri leitarkosti með þeim aðferðum sem lýst var hér að ofan og velja þar t.d. „Hjálpar- og verkefnasíður“ ef þú vilt leita í síðum sem varða notendahjálp og samfélagið á bak við Wikipediu fremur en í greinunum sjálfum. Þú getur einnig valið „nánar“ og fengið þá upp heildarlista yfir nafnarými á Wikipediu og valið nákvæmlega í hverjum þeirra þú vilt leita og hverjum ekki. Þannig er til dæmis hægt að leita sérstaklega í flokkum eða margmiðlunarefni (athugaðu að myndaleit á íslensku Wikipediu leitar í raun í hinum gríðarstóra margmiðlunargrunni Wiki Commons).
Það er einnig hægt að leita í öðrum nafnarýmum en aðalrýminu án þess að fara fyrst á ítarleitarsíðuna með því að skrifa forskeyti nafnarýmisins og tvípunkt á undan leitarorðinu. Ef þú leitar til dæmis að „wikipedia:hegðun“ þá færðu niðurstöðusíðu með síðum í Wikipedia-nafnarýminu þar sem orðið „hegðun“ kemur fyrir.
Hægt er að þrengja leitina með tilteknum leitarmöguleikum:
Þrír þættir ráða því hversu ofarlega síða lendir í leitarniðurstöðum. Í fyrsta lagi, í einfaldri leit, þar sem fáir leitarmöguleikar eru notaðir, gefur leitin niðurstöðum þar sem leitarorðin koma fram sem setning hærra vægi. Í öðru lagi hefur texti sem er utan meginmáls minna vægi. Undir þessa skilgreiningu fellur innihald taflna, myndalýsingar, greinamerkingar o.s.frv. Í þriðja lagi fær texti frá upphafi síðunnar til fyrsta kafla (inngangurinn) hærra vægi en annar texti.
Þú getur haft áhrif á vægi leitarniðurstaðna með tveimur leitarmöguleikum:
Leitarraminn í farsímaútgáfu Wikipediu er efst á síðunni, fyrir miðju. Eftir því sem notandinn slær inn leitarorðið koma upp leitarniðurstöður sem stemma við greinartitla. Ef leitarorðið passar ekki nákvæmlega við neinn greinartitil getur notandinn ýtt á leitartakka á lyklaborðinu til að fá leitarniðurstöður sem innihalda leitarorðið í meginmáli greina. Ólíkt leitinni í einkatölvu útgáfunni (hefðbundri leit), virka engir af ofangreindum leitarmöguleikum.
Enn ítarlegri leiðbeiningar um leitarvél Wikipediu eru á enskri útgáfu þessarar síðu.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Hjálp:Leit, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.