Heimskringla Snorra Sturlusonar er eitt höfuðrita íslenskrar bókmenntaarfleifðar.
Í Heimskringlu er sögð saga Noregskonunga frá ómunatíð fram á miðja 12. öld. Heimskringla er varðveitt í nokkrum skinnhandritum, þar á meðal Fríssbók (Codex Frisianus) sem hefur safnmarkið AM 45 fol. (í það handrit vantar þó Ólafs sögu helga). Þá hefur stakt skinnblað varðveist af Heimskringlu sem er nefnt Kringlublaðið, það er geymt á Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni.
Heimskringla var fyrst prentuð á frummálinu árið 1697 í Stokkhólmi.
Heimskringla inniheldur sögur Noregskonunga fram að 1177, en rekur einnig sögu Uppsalakonunga og byrjar á Óðni, sem talinn er forfaðir þeirra. Þar styðst Snorri við Ynglingatal, ættarsögu í ljóðum, sem sennilega er ort af norska skáldinu Þjóðólfi í Hvini, sem var hirðskáld Haraldar hárfagra. Í formálanum rekur Snorri þær heimildir, sem hann hefur notað og ræðir um sannleiksgildi þeirra. Þegar hann nefnir sögumenn sína, getur hann þess frá hverjum þeir hafi heimildir sínar og hvort þær hafi farið margra á milli. Þannig byggir hann frásögn sína á aldagömlum frásögnum. En kvæðin segir hann að sér þyki „sízt úr stað færð, ef þau eru rétt kveðin og skynsamlega upp tekin".
Slíkt val og mat heimilda var ekki vandi sagnfræðinga miðaldanna. Og þegar talað er um sagnfræðilegt mat á heimildum, þá má líklega óhætt líkja Snorra við Polybios hinn gríska og Þjóðverjann Leopold von Ranke.
Heimskringla skiptist í eftirfarandi hluta:
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Heimskringla, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.