Haífa (hebreska: חיפה) er hafnarborg í Ísrael sem liggur á norðurströnd landsins við Miðjarðarhaf, nálægt landamærum Líbanons.
Íbúafjöldi er um 300.000. Bærinn hefur lengi verið þekktur sem dæmi um það að ólíkir trúarhópar geti búið saman í sátt og samlyndi.
Haífa | |
---|---|
Hnit: 32°49′09″N 34°59′57″A / 32.81917°N 34.99917°A | |
Land | Ísrael |
Umdæmi | Haífa |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | Einat Kalisch-Rotem |
Flatarmál | |
• Borg | 63,67 km2 |
Mannfjöldi (2022) | |
• Borg | 290.306 |
• Þéttleiki | 4.600/km2 |
• Þéttbýli | 600.000 |
• Stórborgarsvæði | 1.050.000 |
Vefsíða | www.haifa.muni.il |
Í borginni eru sérstök iðnaðarhverfi, eins og Matamgarðurinn, þar sem mörg ísraelsk og alþjóðleg hátæknifyrirtæki eru með rannsóknar- og þróunardeildir.
Í Haífa er heimsmiðstöð Bahá'í trúarinnar þar sem meðal annars er grafhýsi Bábsins á Karmelfjalli. Regla Karmelíta var stofnuð á fjallinu á miðöldum.
Höfnin í Haífa er stærsta farþegahöfn Ísrael og með stærstu útskipunarhöfnum landsins.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Haífa, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.