Haitham Bin Tariq Al Said: Soldán Ómans

Haitham bin Tariq Al Said (arabíska: هيثم بن طارق آل سعيد; f.

11. október 1955) er núverandi soldáninn af Óman. Áður en hann varð soldán hafði hann gegnt embættum í ríkisstjórn frænda síns, soldánsins Qaboosar bin Said, í marga áratugi. Hann var menningarmálaráðherra frá 2002 til 2020. Qaboos soldán útnefndi Haitham arftaka sinn í erfðaskrá sinni og Haitham var krýndur soldán þann 11. janúar 2020, fáeinum klukkustundum eftir dauða Qaboosar.

Skjaldarmerki Al Saíd-ætt Soldán Ómans
Al Saíd-ætt
Haitham bin Tariq Al Said
Haitham bin Tariq Al Said
هيثم بن طارق آل سعيد‎
Ríkisár 11. janúar 2020
SkírnarnafnHaitham bin Tariq
Fæddur11. október 1955 (1955-10-11) (68 ára)
 Múskat, Óman
Konungsfjölskyldan
Faðir Tariq bin Taimur
Móðir Shawana bint Hamud bin Ahmad Al-Busaidiyah
EiginkonaAhad bint Abdullah bin Hamad Al-Busaidiyah
BörnTheyazin bin Haitham
Bilarab bin Haitham
Thuraya bint Haitham
Omaima bint Haitham

Æviágrip

Haitham bin Tariq gekk í Pembroke-skólann í Oxford-háskólann og útskrifaðist úr áfanga í utanríkisþjónustu árið 1979.

Faðir Haithams var Tariq bin Taimur, sonur soldánsins Taimurs bin Feisal. Hann á sex bræður og tvær hálfsystur (þar á meðal Nawwal, fyrrum eiginkonu Qaboosar soldáns). Bróðir hans, Asa'ad bin Tariq, var varaforsætisráðherra í varnarmálum. Eldri bræður hans, Talal, Qais, Adham, og Faris, eru viðskiptamenn og eru ekki virkir í stjórnmálum.[heimild vantar] Hann á fjögur börn, tvo syni og tvær dætur. Elsti sonur hans, Theyazin bin Haitham, er krónprins Ómans.

Bandaríska tímaritið The Economist lýsti Haitham sem víðsýnum og höllum undir Vesturveldin.

Stjórnmálaferill

Haitham er íþróttaunnandi og var fyrsti forseti ómanska knattspyrnusambandsins á níunda áratugnum. Hann var aðstoðarritari utanríkisráðuneytisins í pólitískum málefnum frá 1986 til 1993 og var síðar útnefndur aðalritari utanríkisráðuneytisins frá 1994 til 2002. Hann var síðan útnefndur menningarmálaráðherra í mars árið 2002 og stýrði manntalsnefnd árið 2003. Hann var yfirleitt fulltrúi Ómans erlendis og tók árið 2016 á móti Karli Bretaprins og Kamillu hertogaynju í heimsókn til landsins.

Haitham var jafnframt formaður nefndar um framtíðarsýn um „Óman 2040“ auk þess sem hann er heiðursforseti ómanska fötlunarsambandsins.

The Economist taldi Haitham lítið hafa afrekað sem meðlimur í ríkisstjórn Qaboosar.

Soldán Ómans

Þegar frændi Haithams, Qaboos soldán, lést þann 10. janúar 2020, var Haitham bin Tariq nefndur erfingi að krúnunni í erfðaskrá hans. Hann var krýndur soldán Ómans daginn eftir með vígsluathöfn á neyðarfundi ómanska ráðgjafarþingsins í Al-Bustan. Ríkissjónvarp Ómans greindi frá því að varnarráð landsins hefði opnað innsiglað erfðaskrárbréf gamla soldánsins og tilkynnti að Haitham hefði verið lýstur nýr soldán stuttu síðar. Sem soldán er Haitham um leið forsætisráðherra, hæstráðandi hersins og varnarmálaráðherra. Hann var jafnframt utanríkisráðherra og fjármálaráðherra til 18. ágúst 2020, en þá útnefndi hann Sayyid Bbin Hamad bin Hamood Al Busaidi utanríkisráðherra og Sultan bin Salem bin Saeed al-Habsi fjármálaráðherra. Í fyrstu opinberu ræðu sinni lofaði Haitham því að viðhalda friðargæslustefnu forvera síns og halda áfram að þróa efnahag Ómans. Haitham bin Tarik er kvæntur og á börn, ólíkt forvera sínum.

Þann 12. janúar 2021 gaf Haitham út konunglega tilskipan þar sem elsti sonur hans, Sayyid Theyazin bin Haitham, var lýstur fyrsti krónprins Ómans. Hann breytti einnig lögum til þess að veita ríkisborgurum og íbúum Ómans tjáningar- og skoðanafrelsi og nam úr gildi lög sem heimiluðu ríkinu að vakta einkasímtöl og samskipti á samskiptamiðlum og í pósti. Hann veitti jafnframt réttindi til að iðka trúarbrögð samkvæmt viðurkenndum siðum svo lengi sem það bryti ekki í bága við samfélagsreglur eða almennt siðferði.

Tilvísanir


Fyrirrennari:
Qaboos bin Said al Said
Soldán Ómans
(11. janúar 2020 –)
Eftirmaður:
Enn í embætti


Tags:

Haitham Bin Tariq Al Said ÆviágripHaitham Bin Tariq Al Said StjórnmálaferillHaitham Bin Tariq Al Said Soldán ÓmansHaitham Bin Tariq Al Said TilvísanirHaitham Bin Tariq Al SaidQaboos bin Said al SaidSoldánÓman

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Manchester UnitedValgeir GuðjónssonHrossagaukurÁrnessýslaAnna FrankUpplýsingatækniGrindavíkSumardagurinn fyrstiSnæfellsbærRefirDemi LovatoListi yfir biskupa ÍslandsEinokunarversluninEvrópusambandiðKváradagurÍslensk mannanöfn eftir notkunÓlafsfjörður2016ÁstandiðÍslenski hesturinnÁbendingarfornafnKatrín JakobsdóttirLeikurDauðarefsingMeltingarkerfiðLissabonRagnar JónassonBjörn Sv. BjörnssonTyrkjarániðHrynjandiJósef StalínBólusóttKirgistanIlíonskviðaNorskaFreyrLaufey Lín JónsdóttirÞingeyjarsveitBríet (söngkona)KoltvísýringurStari (fugl)Sterk sögnMiðjarðarhafiðSuðurlandsskjálftinn 29. maí 2008StigbreytingÁsgeir ÁsgeirssonBrad PittHughyggjaInternetiðJakob Frímann MagnússonXXX RottweilerhundarHundurPóllandTaekwondoStrom ThurmondForsetningWayback MachineHellisheiðarvirkjunLjóðstafirListi yfir þjóðvegi á ÍslandiGoðorðHalldóra BjarnadóttirPalestínuríkiAlfræðiritListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaForsetakosningar á ÍslandiSpænska veikinSpurnarfornafnJörundur hundadagakonungurDagur jarðarLögreglan á ÍslandiKólumbíaSerbíaHávamálJárnbrautarlestFimleikafélag Hafnarfjarðar🡆 More